divider

divider

Millibil

Hún Edda bekkjarsystir mín gerði þessa snilldarlega hönnuðu hurð sem hún kallar Millibil. 
Hurðin er bara venjuleg hurð en hægt er að opna hurðina án þess þó að opna hana og þá kemur í ljós Millibil hurðarinnar sem hefur að geyma ótrúlega sniðug hólf og hyrslur fyrir allt það sem maður þarf að geyma nálægt útidyrahurðinni. Eins og t.d. skóhorn, skóbursti, lyklar, sími, póstur ofl. 

þessi hurð er hrein snilld og er eitthvað sem ég ætla að safna mér fyrir til þess að eignast:) 



MaríuBjalla

 Hún María Morkovic - bekkjarsystir mín hún hannaði þessa líku rosalega flottu dyrabjöllu sem heitir Maríubjalla. Bjallan virkar þannig að maður á á hoppa á bleika og fjólubláa hringinn og þá lýsast upp litlar grænar Maríubjöllur á trénu og kemur skemmtilegt hljóð í leiðinni:)  

Maríubjallan er hluti af sýningunni á Kjarvalsstöðum og mega sýningargestir prufa bjölluna með því að hoppa og prófa að dingla:)  - en það er enginn heima....

G5

Hún Guðrún Valdimarsdóttir gerði skemmtilega samsetnings-hillu sem hún kallar G5. 
Hillan er lokaverkefnið hennar, en hún er að útskrifast með mér úr Vöruhönnun úr Listaháskóla Íslands og er verkið til sýnis á Kjarvalsstöðum:)

Hillan er gerð úr krossvið og virkar eins og babúska... hún staflast öll inní sjálfa sig og kemur þannig útúr kassanum þegar þú kaupir hilluna, en svo er hægt að leika sér með uppsetninguna og setja upp hilluna á skemmtilegan hátt:) 

Ótrúlega falleg hönnun eftir ótrúlega fallegan vöruhönnuð:)





Veggflétta


Hér sést glitta í lokaverkefnið mitt sem er til sýnis á Kjarvalsstöðum:) 
Opnunin á sýningunni var í gær og gekk bara rosalega vel... líklega um 2000 manns sem mættu á svæðið:) 

Fyrir áhugasama þá er sýningin opin alla virka daga frá 10 - 17 alveg til 3 maí :)



Útskriftasýningin


Í dag opnar útskriftasýning Listaháskóla Íslands á Kjarvalsstöðum.
Sýningin opnar kl 14:00 og það kostar ekkert inn...og mun sýningin vera opin til 3. Maí.

Verkið mitt, Veggflétta mun þar vera til sýnis í sal vöruhönnunarnemanna:) þar er meðal annars að sjá Maríubjöllu, húsgögn, Reykjavík Moments, Millibil o.fl... og mun ég fjalla betur um sýningunna eftir opnunina:) 

Allir velkomnir í dag...og alla daga til 3. Maí:) 

hlakka til að sjá ykkur.

krúttmynd dagsins...



svona í tilefni þess að ég er búin að hengja upp lokaverkefnið mitt á Kjarvalsstöðum:)



A Tribute to Camper eftir Hellu Jongerius.

Hönnunarvikan í Mílano, Salone del Mobile, hefst eftir 2 daga... eða næstkomandi miðvikudag. 

Hella Jongerius, ein af mínum uppáhalds, mun sýna nýja skólínu sem hún hefur hannað fyrir Campers og munu skórnir vera til sýnis í Campers búðinni í Mílano... mjög spennandi og flott skólína þarna á ferð...og mér finnst hún brjóta vel upp strigaskóna hjá þeim... þótt erfitt hafi verið:)

Af skónum á myndinni hér fyrir neðan þá eru þessir efst til vinstri mínir uppáhalds!:)





Hella Jongerius þarna á miðju kafi að velja liti og leður í skóna:) 
hún er snillingur:)


draumurinn

Mikið ofsalega væri ég til í að eiga þetta hús! og mesta snilldin að mínu mati er þessi sundlaug sem er vatnstankur - endurnýttur sem sundlaug og pallurinn byggður svona flott í kring! 

Heillandi!




Svona er þetta bara!

 
og ég er rétt að skríða á annað stigið....:) vei vei!!

Páskar og fjöruferð:)

Páskarnir voru bara nokkuð yndislegir...þeir einkendust af lærdómi, sundi og Langasandi:) og auðvitað páskaeggjum og málsháttum:)


Litir

mér finnst þessir lita-hringir eftir Timothy Liles algjör snilld...:) það er ekkert mál að þrífa litina burt ef búið er að lita óæskilega staði:)





langar svolítið í svona.... verð nú eiginlega að játa það barasta...

Gleðilega Páska

Kæru blogglesendur og vinir.
Ég óska ykkur Gleðilegra Páska og páskaeggja:) 
Ég er að hugsa um að skella í muffins með svona nammieggjum á í tilefni páskanna:) 


kreppu-ráð


Svona afþví að það er kreppa og allt það.. þá fannst mér tilvalið að skella inn einu kreppu-ráði. 
Við á mínu heimili kaupum aldrei afmælikort, við búum þau alltaf til sjálf... og hér kemur flott hugmynd til þess að búa til kort eða merkimiða... með puttunum...:)  það er örugglega hægt að búa til allskonar skemmtilegar myndir með fingrafarinu einu saman...:)