divider

divider

fallegar gjafir:)

Það er margt sniðugt og fallegt sem maður getur gert sjálfur og það er ekkert mál:) T.d. finnst mér ótrúlega fallegt, sniðugt og örugglega ódýrt er að setja svona myndir sjálfur á samfellur:) eða smekki eða eitthvað þessháttar og gefa:)

til að byrja með þá þarf að hafa augun opin fyrir ódýrum, hvítum samfellum...eða smekkjum:)




... svo þarf að fara í virku og kaupa svona efnalím... sem mað maður straujar fast á og hefur lím á báðum hliðum. og jafnvel einhverja efnabúta ef maður á enga....


...því næst straujar maður límið á efnið á röngunni.. teiknar svo einhverja fígúru sem manni finnst skemmtileg á bakhliðina og klippir út...




tekur þvínæst pappírinn af bakhliðinni og kemur fígúrunni fyrir á samfellunni, eða bara því sem verið er að fara að strauja á...


straujar svo fígúruna fasta á... og það þarf að passa að hafa ekki gufuna á...það þarf að þurr-strauja yfir þetta:)


...þá ætti að vera komin falleg mynd og jafnvel falleg, heimagerð gjöf tilbúin.


Gangi ykkur vel:)

góða helgi:)

spurning um að redda sér svona öskudagsbúningum fyrir næsta öskudag :) - mér finnst þetta ótrúlega fyndin mynd og litla stelpan voða mikið að skoða búninginn hjá pabbanum...:) hehe..:)

Bíló


þetta finnst mér alveg ótrúlega sniðugt teip. Þegar það er rigning, þá réttir maður bara litlu guttunum límband og bíla og þeir hafa ofan af fyrir sér allan daginn... Hægt er að búa til litla bæi með playmobil húsum og ýmislegt skemmtileg sem manni dettur í hug...

svo finnst mér þetta líka alveg tilvalin gjöf fyrir litla prinsa:)

hægt er að kaupa þetta hjá Up To You Toronto

Æðisleg Mjólkurkanna:)

þetta finnst mér alveg geggjuð mjólkurkanna.... frábær hugmynd...langar í svona!

REYKJAVIK MOMENTS

Súkkulaði-sleikjó eftir hana Örnu Rut sem býður okkur uppá að smakka á Hallgrímskirkju, Skuggahverfi og Tónlistarhúsi Reykjavíkur.











Byggingarnar eru gerðar úr hágæða súkkulaði.
Fæst í/ available in: 66°N Bankastræti 5.
Kraum Aðalstræti 10.
Landnámssýningin/ The Settlement Exhibition Aðalstræti 16.
Kaffi Loki Lokastíg.
Hallgrímskirkja Skólavörðuholt.
Inspired by Iceland Leifsstöð.
Grái Kötturinn Hverfisgötu.


- yndislega ógeðslega flott og gott.... og ég er auðvitað búin að fá mér eina Hallgrímskirkju:)

krúttmynda-kisur:)

Svona í tilefni þess að ég er að fara í sumarfrí og ætla að leggja leið mína í dag á Vestfirði...og svona bara afþví að það er ekkert merkilegt að gerast á hönnunarsíðum heimsins í dag þá hendi ég hérna inn nokkrum kisukrúttum:)




írskir dagar á Akranesi

Þetta er alveg pottþétt flottasta greiðslan sem hægt er að hafa á írskum dögum í ár:)