divider

divider

Tré fyrir heimilið:)

Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið veik fyrir allskonar trjám og skrauti inná heimilið...:) Og er reyndar með eitt á veggnum heimahjá mér sjálf...sem ég málaði sjálf á:) Og svo var það auðvitað lokaverkefnið mitt.... sem unnið er út frá skriðjurtinni Bergfléttu.
hér koma nokkrar skemmtilegar hugmyndir fyrir stofuna, anddyrið og barnaherbergin :)

Að sjálfsögðu byrja ég á Íslenskri hönnun...
Hilla eftir hana Þórunni Árnadóttir sem er ótrúlega falleg og er að sjálfsögðu á óskalistanum:)




Svo eru það barnaherbergin... en þetta getur maður dundað í sjálfur... bæði með því að mála og nota veggfóður... fuglahúsið er fallegt detail sem gerir heilmikið fyrir þetta:)

Svo er líka fallegt að mála bara og bæta svo við litlum blómum fyrir litla angann okkar til að horfa á...:) þetta er nú líka bara voða falleg fyrir hjónaherbergið:)



Og svo að lokum er það þessi snilld. Fatahengi búið til úr allskonar gömlum trébútum svo eru bara stórir naglar notaðir sem hengi... ótrúlega fallegt og einlægt eitthvað....


Parísarhopp á ganginum.

Nú er að byrja tími rigninganna og flensunnar, inniveran nær örugglega hámarki, og þá er nú gott að luma á góðum ráðum svo að börnunum leiðist ekki...

...þetta finnst mér nú bara ótrúlega auðvelt í framkvæmd og ætti að hafa ofanaf fyrir litlum prinsessum :)


óskin mín ein...

ohhhh mig langar svoooooo ....

drauma fataskápurinn...ef ég ætti nú nóg af plássi...


og ekki er nú verra eiga alla þessa skó..:) og hundinn líka:)
og pant fá þessa!

Ferðalagið árið 2010

Það lítur allt úr fyrir að enginn eigi eftir að eiga neinn pening árið 2010, þá fannst mér við hæfi að gefa fólki smá von. Övæntið ekki því að nú er hægt að spara bensínkosnað en ferðast samt með stæl:)

hann Kevin Cyr hefur reddað málunum...:)






Ættleiddu Kartöflu á Menningarnótt


Nú er Menningarnótt næsta laugardag eða þann 22. Ágúst n.k. og að sjálfsögðu ætlum við, vöruhönnuðurnir 5 á Vesturgötu 12 að vera með viðburð til þess að auglýsa fyrirtækið okkar sem við vorum rétt í þessu að stofna og að sjálfsögðu auglýsa verkefnin sem við erum að fást við þessa stundina. Matarhönnun.
Viðburðurinn okkar heitir "Ættleiddu kartöflu" og erum við þarna að upphefja kartöfluna, sem er 4. mikilvægasta fæða heimsins. Þannig viljum við líka hvetja fólk til þess að rækta sjálft kartöflur og annað grænmeti:)

Allir eru velkomnir að koma á viðburðinn. Við verðum með heitt á könnunni og tökum vel á móti öllu frábæra fólkinu sem kíkir í bæinn á Menningarnótt á milli kl 16: 30 - 22:00


Bækurnar okkar í sýnu gamla hlutverki...:)

mig langar svo ótrúlega mikið að eiga flotta bókahillu með fullt af bókum:) og þá væri nú sniðugt að raða þeim eftir litum:)




en svo er auðvitað hægt að einfalda þetta alveg rosalega og raða bókunum bara öfugt inn í hillurnar þannig að hvítu blöðin snúi fram...og þá er komin flott og fín hvít bókahilla... ótrúlega stílhreint:) flott að hafa svo bara vegginn fyrir aftann flottann á litinn:)


Bækur fá nýtt hlutverk 3. hluti

ég hvet starfsmenn Eymundsson á Akranesi eindregið til þess að búa til svona fallega útstillingu í búðina hjá sér:)


bækur fá nýtt hlutverk :) framhald...

hverjum hefur ekki dottið þetta í hug?? ... þetta er ótrúlega fyndin hugmynd:) algjör endurnýting... bókin er framleidd út tré og hýsir svo blómin:) flott fyrir kryddjurtirnar:)


Bækur fá nýtt hlutverk :)

þar sem ég er áhugamanneskja um endurvinnslu og vildi óska þess að allir myndu hugsa vel um umhverfið og hugsa um hvað það er að setja í ruslið o.s.frv. þá er nú bara skylda að koma með sniðugar hugmyndir um hvernig hægt er að endurnýta hlutina heima hjá sér:)

- þetta er nú örugglega ekkert flókið...og skemmtileg hugmynd:) ég væri alveg til í að eiga tvær þrjár bóka-töskur:) - langar í nestu töskuna: History of art :)

kannski er þetta bara jólagjöfin í ár:)






Gleðilegan fösdudag og happy weekend:)

nokkar krúttmyndir til að byrja með... afþví að það kætir mann:)



...og svo er það þessi fallegi blaðastandur sem ég er alveg svakalega skotin í:)
ég væri örugglega ennþá æstari í að endurvinna blöð ef ég ætti svona...:)
- en ég notast að sjálfsögðu við blaðberann sem fréttablaðið dældi út fyrir kreppu:)


úúúúú....!!

Mikið væri yndislegt ef að ég ætti heimsins nóg af peningum og gæti keypt mér alla þá yndislegu skó sem mig langar í!!! ohmæ!

þessir eru allavega komnir á óskalistann.... ég á afmæli í desember....






Gleðilegann frídag verslunarmanna...:)

Bara svona uppá gannið þá henti ég inn nokkrum klippum úr teiknimyndum Disney.... og á þeim má sjá að teiknarar Disney hafa greinilega ekkert svo svakalega mikið að gera í vinnunni... aðeins að stroka út og laga liti og svo er vinnudagurinn búinn :)

þeir allavega standa sig í endurvinnslunni:)



Gómsæta Verslunarmannahelgi:)

við ákváðum að eyða verslunarmannahelginni í heimahúsum þetta árið...enda búin að vera að ferðast í allt sumar :)
þegar maður er heima og ekkert að gera....hvað er þá skemmtilegra að gera en að fara að baka með litlu snillingunum sínum?