divider

divider

Ég baka Muffins

Ég er í óðaönn að undirbúa 4 ára afmælið hennar Nínu Daggar, dóttir minnar...:)
Hún hefur pantað prinsessuafmæli og það inniheldur prinsessukökur og prinsessudiska og ég veit ekki hvað og hvað.... ég fór á netið að leita mér að hugmyndum og fann ALLT annað en prinsesukökur en vakti áhuga minn engu að síður:)

...mér finnst cookie monster muffinsið bara ÆÐI... pottþétt komið á lista yfir kökur sem ég verð að prófa að gera:)

Bubbi byggir muffins er nú ekki flókinn. Reyndar þarf að hnoða í Sykurmassa....en það er lítið mál:)

þessar hundamuffins eru auðveldar og allir geta gert með lítilli fyrirhöfn

hér fyrir neðan er notaður sykurmassi og bráðið súkkulaði.

Þessar eru í raun gerðar eins og þessar fyrir ofan nema svo er sett smjörkrem í úthringinn á ljóninu... og smarties í eyrun:)

Sykurmassinn er tilbúinn inní ískáp hjá mér og muffinsið var að fara í frystinn... þetta verður eitthvað fjör á föstudaginn:)

hér má finna uppskriftina af sykurmassanum og í leiðinni fá fullt af góðum kökuhugmyndum og frábærum leiðbeiningum:)

Tré fyrir heimilið partur III

Hér koma nokkrar hugmyndir í viðbót fyrir veggina á heimilinu:)
Ég er mest skotin í næst neðstu myndinni...þar sem hvíta blómið er sett á dökkann vegg fyrir ofan vögguna:) En reyndar er ég voðalega hrifin af öllum útfærslunum:)





Má bjóða þér Peru?

Ég er með tómatatré í eldhúsglugganum hjá mér og á von á allnokkrum tómötum á það...ætli ég geti ekki prófað þetta?

Þetta lítur ekkert út fyrir að vera neitt flókið:)



það er bara spurning um hvort perurnar bragðist jafn vel eða betur þegar þær eru orðnar búdda-perur:)

ljótir hlutir poppaðir upp :)

Ef þú átt 1 stakt glas sem passar ekki við neitt og skál sem er svo ljót að þú villt ekki nota hana..þá er nú ekki flókið að sansa eitthvað flott úr þessu :)

hér fyrir neðan er hugmynd um hvernig má poppa uppá hlutina sína með fínum sokkum.

- það sem þarf eru skæri, sokkar, ljótir hlutir nál og tvinni. Og svo er það bara að byrja:)





Kemru svolítið skemmtilega út...:)

Tré fyrir heimilið partur II

Það ætti ekki að vera flókið að gefa heimilinu smá sjarma með smá handavinnu:)

Hér koma nokkrar hugmyndir:)






Gemmér!!!

Á haustin verð ég oftast voða fatasjúk.... og nú er ég alveg veik...ég held ég verði bara að kaupa mér eins og 1 par af skóm og kjól og og og.... ...verst að það er kreppa!




Prjóna-fíkn.


Ég fór í Föndru fyrir ömmu fyrir helgi...sem er nú ekki frásögu færandi nema að ég var að kaupa fyrir hana garn.. og datt svo ofaní prjónablöð sem eru með svakalega fallegum uppskriftum í...bæði fyrir fullorðna og börn. Svo komst ég að því að allar uppskriftirnar í blöðunum er hægt að nálgast frítt á netinu hér.

Og ég er alveg sjúk... þessa sokka ætla ég að prjóna fyrir veturinn...svo er þarna ýmislegt sem mig langar líka í:)

Ættleidd kartafla.


Á Menningarnótt var hægt að heimsækja mig og vinnufélaga mína á vinnustofuna okkar við Vesturgötu 12 og ættleiða kartöflu. Þarna má sjá gjöfina sem vex og gefur af sér góðar kartöflur :)

Límbandið reddar öllu:)

tékkið á listamanninum Mark Khaisman. Hann er einfaldlega snillingur að meðhöndla límbandið :)

Rosalegt!



Vantar þig hillur?


þetta er nú bara ágæt hugmynd að hillum fyrir heimilið.... og hægt að nálgast allskonar borð bæði í Búkollu, á Akranesi og svo í Góða hirðinum í Rvk... svo þarf maður að hafa sög og fallega málningu:)

ekki nógu vandvirkur skohh...

ég get ekki sagt að Ísland sé vel útskorið þarna...lítur út eins og sökkvandi skúta.... ! ;)