divider

divider

Aðventan

1. í aðventu bankar uppá á morgun... og má taka eftir fólki jólaskreyta heimili sín útum allan bæ í dag :) Jólabaksturinn og konfektgerðin fer líka að hefjast á næstu dögum hjá mér með mikilli tilhlökkun - það kemur svo góð lykt í húsið í jólabakstrinum :)
Planið er að byrja á piparkökunum með börnunum og taka svo sirka 4 sortir af einhverjum gómsætum smákökum í viðbót :) - Konfektgerð, bróstsykursgerð og tertubakstur kemur svo aðeins seinna í desember... en nóg til þess að hlakka til :)



Trefillinn :)

Skemmtileg hugmynd af trefli sem gaman væri að fá í jólapakkann :)


Coka Cola

Hér fyrir neðan sjáiði hvernig kók flaskan hefur verið í gegnum árin :)

frá vinstri til hægri: árið 1899, 1900, 1915, 1916, 1957 og 1986.
- en þó svo að ég hafi ekki verið fædd árið '57 þá man ég eftir þeirri flösku.


Ísland

Íslandið okkar hefur verið mjög vinsælt í hönnun síðastliðin ár... enda er það ekkert skrítið, við búum á svo fallegu landi :)


- hér fyrir neðan er diskur eftir hana Þóru Breiðfjörð sem hægt er að nálgast á Birkilandi.

- svo er það mjög ódýr íslensk hönnun eftir hana Siggu Heimis, en þetta eru borðtuskur sem fást í Kraum.

- hægt er að fá sér líka hitaplattann Heitt/kalt eftir hann Stefán Pétur Sólveigarson, en hann fæst líka í Birkiland

- mig langar svolítið í þessi klakabox eftir hann Óðinn Bolla sem heitir Klakinn.
Klakinn fæst líka í Birkiland

Þessa hillu fann ég svo á netinu, en hún er eftir erlendann hönnuð.


Ísland - best í heimi?