divider

divider

Vagga

Þessi vagga er nú þegar komin á óskalistann fyrir sumarið... ótrúlega falleg vagga sem myndi sóma sér ótrúlega vel hérna heima hjá mér...:) ef einhver hefur þörf á að gefa slíka vöggu..þá má gefa mér hana :)


Polaroid-slæður


Ég er alveg að elska þessar fallegu slæður eftir Philippe Roucou

Slæðurnar eru komnar á óskalistann minn :)

páskaföndrið :)

Það er alltaf svo gaman að föndra með börnunum :) - og fyrir okkur stærri börnin þá eru hér fyrir neðan góðar leiðbeiningar af fallegu páskaföndri sem ekkert mál er að gera :)



Allt sem þarf er: Beltagatari (kvósagatari), fallegt band, fallegar perlur að eigin vali, góð skæri, blýant og felt-efni sem fæst í öllum föndurbúðum.


Hér fyrir neðan er mótið af fuglinum sem fínt er að nota... hægt er að klikka á myndina, þá stækkar hún..þannig er betra að prenta hana út.

Klippið fuglinn út þegar búið er að prenta hann, og gerið göt þar sem búið er að merkja fyrir þeim með kvósagataranum.

Teiknið eftir fuglinum á felt-efnið og klippið út.


Fallegt er að hafa nokkra mismunandi liti af fuglum.


Merkið því næst fyrir götunum á felt-efninu.


Notið kvósagatarann til þess að gera göt á efnið.


Klippið niður band í hæfilegum lengdum til þess að þræða í götin.


Þræðið upp líkt og sýnt er hér að neðan og búið til lykkju svo hægt sé að hengja fuglinn upp.


því næst þræðið þið eitt band í bæði götin að neðan og það verða lappirnar á fuglinum.


þræðið perlu á sinn hvort enda bandsins og hnýtið hnút fyrir neðan þannig að perlan detti ekki af.


Snyrtið bandið fyrir neðan hnútinn.


Þá ættu fuglarnir að vera tilbúnir til þess að börnin geti hengt þá upp á einhverja góða grein sem var klippt af trjánum í garðinum :)


Einnig er hægt að gera óróa eða festa fuglana á snúru líkt og hér fyrir neðan :)

Gangi ykkur vel :)

Candy & Shoes :)


Þessir skór gætu hentað nammigrísum eins og mér vel :) En þeir eru eftir hönnuðinn Belma Arnautović frá Sarajevo. En það er hægt að skoða fleiri skó eftir hana hér.

Í tilefni af Mottu-Mars 2010 :)

Svona í tilefni mottu-mars sem er í gangi núna þá fannst mér algjör skylda að kynna ýmsar hugmyndir af gervi-mottum sem hægt er að redda sér...svona fyrir þá sem ekki fá skegg jafnvel :)

Til að byrja með þá kynni ég Skegghúfuna sem er íslensk hönnun og er framleidd af Vík Prjónsdóttir og hægt er að kaupa hana í hinum ýmsu hönnunarverslunum hérlendis :)



Svo er það þessu skemmtilegu bollar sem gefa manni hin ýmsu skegg. :)

Hægt væri að prjóna sér svona líka skemmtilega skegg-vetlinga :)

Blýantar með skegg eru líka mesta þarfaþing á hverju heimili :)


Fyrir bíllyklana.... já eða jólatréið:)

Fyrir börnin okkar litlu :)

Skart sem hægt er að leika sér með....



Servíettur...!


og svo í partýið :)

Svo getur fólk líka búið sér til svona líka fallegt alskegg með smá garni :)


og svo að lokum er þessi skemmtilega hugmynd af skeggi til þess að setja á spegilinn... þannig að þegar litið er í spegilinn þá fær maður skegg :)


Gleðilegan mottumars og vonandi hafa allir styrkt málefnið :)

Krítartöflur

Ég var að taka barnaherbergið í gegn fyrir litlu prinsessuna á heimilinu og prófaði að kaupa þessa sniðugu krítartöflu málningu. Ég gerði fyrir hana kastala á vegginn í herberginu hennar þar sem hún hefur síðan verið að kríta alla daga. Málningin er þunn og þarf að fara 3-4 umferðir með hana, en engu að síður er ekkert mál að nota hana.
Ég byrjaði á því að nota málningarteip til þess að gera útlínur kastalans á vegginn og málaði svo innan þess.
Krítartöflumálningin er frekar dýr... en maður notar líka voða lítið af dollunni í eitt stykki kastala... og planið er að nýta hana á fleiri stöðum. Málningin fæst í Byko og hjá Slippfélaginu um allt land.

Kastalinn sló alveg í gegn hjá stelpunni :)


skart sem ég myndi skarta :)






sumt af þessu er að finna inn á Etsy
en annað er eftir hina ýmsu hönnuði :)

Tryllt :)

skemmtileg samsetning á grófleikanum og fínleikanum :)


Mottan 2010 :)

Nú eru karlmenn um allt land að safna mottu til styrktar Karlmenn og Krabbamein
og ég verð nú að segja að þetta finnst mér mesta snilldin...:) ef ég ætti stærri hund þá gæti ég kannski reddað mottunni á hann...:)

Hundar með mottu eru bara flottir!


Lego

Mér finnst Lego vera eitt það skemmtilegasta sem hægt er að finna í barnaherberginu...
...ég væri ekkert á mót því að eiga þetta borð!

Ekkert er nýtt undir sólinni

Funstackable stools eftir Hafstein Júlíusson eru skemmtilegir kollar sem gaman er að raða saman :) Haffi hannaði þessa kolla á 2 ári sínu í LHÍ eða vorið 2007. En ég gat ekki annað en hugsað til þessarra skemmtilegu kolla þegar ég sá neðri myndina hér... en þar má sjá bekk og koll eftir Design Studio Kawamura Ganjavian.