divider

divider
Ef þig langar í loftljós við rúmið þitt í stað þess að hafa náttljós á borði, en ert ekki með dós í lofti fyrir því þá er þetta jafnvel lausnin barasta :)

Festingin í vegginn, snúran þrædd í og sett í samband niðri við gólf... og voila!
Hangandi ljós gjörsvovel!

Frosting uppskrift :)

Ég var beðin um að deila með ykkur frosting uppskriftinni sem ég nota. Mér finnst hún voða góð og minnir mig frekar mikið á kókosbollu...:)

hér fyrir neðan er uppskriftin.


Frosting uppskrift:

2 stk eggjahvítur
185 gr sykur
1 msk síróp
2 msk vatn
safi úr hálfri sítrónu
1/2 tsk vanilludropar
250 gr. kókosmjöl, gróft. (ef vill)

Látið vatn í pott og suðu koma upp, skál yfir með hvítum, sykri, vatni, safa, sírópi og vanillu.
Passið að vatnið í pottinum komist ekki upp í skálina. Þeytið innihald skálarinnar með rafmagnshandþeytara þar til sykurinn er allur vel uppleystur og blandan orðin mjög heit.
Takið þá af hitanum og þeytið í ca. 8 mín þar til kominn er góður marengs/frosting. Blandið þá kókosmjölinu rólega saman við með sleikju og setjið yfir kökuna.

gangi ykkur vel :)




Jerusalem

þetta skemmtilega skart er eftir Knockoutdesign en það sýnir götukort af Jerusalem og mynstur úr menningu.



Hugmynd fyrir helgina.

Hugmyndin er að baka ljósa svampbotna... skipta deginu upp í nokkrar skálar... skella smá matarlit, 1 litur í hverja skál. Búa svo til listaverk í kökuformið og skella því inní ofn.
Svo er snilld að setja marengs-krem yfir (kannski bleikt) og á milli botna....

...og hverjum fyndist leiðinlegt að fá sér svona regnbogaköku?


Kofi í garðinn.

Dóttir mín sem er 4 ára er alveg rosalega sátt við sumarið. Nú erum við í nýju húsnæði þar sem við erum með lítinn garð og því fylgir mikil spenna svona firsta sumarið. :)

Hana langar svakalega mikið að fá kofa í garðinn fyrir búdótið sitt en spurning þó hvort það sé nóg pláss fyrir einn slíkan hér í garðinum hjá okkur :)

En þessi hér fyrir neðan er rosalega flottur... og þeir sem eru að fara útí að smíða kofa ættu að skoða þennan flotta kofa :)



A-bústaður

Ef ég ætti A-bústað...þá fengi ég smið til þess að bæta við hann tveimur örmum og vera með 3xA-bústað :)

Útsýni í allar áttir er ekki verra :)


Bókahillur....

Ég er að láta hugann reyka varðandi bókahillu á einn vegginn í stofunni....

....þessi er bara þokkaleg og gæti alveg komið til greina... mig vantar bara mdf plötu ( sem reyndar er ekki gott efni í kringum smábörn... gefur frá sér eitur), sög og hvítt lakk :)

Matur og Föndur

Það eru ekki bara kartöflurnar sem hægt er að nota sem stimpil.
Hér fyrir neðan er gott dæmi um það... en þarna er að finna sellerí enda og kínakáls enda sem notaðir hafa verið til þess að stimpla á pappír og búa til gjafapappír :)

Nú er það bara að nota ímyndunaraflið :)



Mig langar í....

Þessir fataskápar eru ótrúlega skemmtilegir... þeir gera allavega mikið fyrir augað mitt og ég er alveg að elska litina á fótum skápanna :)
Ég væri til í að eignast svona :)

Are you Positive?

Þessi skemmtilegu ljós eftir hönnuðinn Marcus Tremonto eru mjög einstök og frekar fyndin :)
Ljósin bera nafnið "Are you positive" og voru frumsýnd á hönnunarsýningunni Salone di Milano nú í Apríl 2010.

Hönnuðurinn hefur allavega skemmtilegan húmor :)



Langar í takk fyrir og takk!

Mikið ofsalega er ég skotin í sumarlínunni frá Mara Hoffman

Það eru þarna ansi margir kjólar, buxur, pils og stuttbuxur á óskalistanum mínum fyrir sumarið :)



Skemmtilegt skart

Ég er rosalega léleg að nota skart, en mér finnst svakalega skemmtilegt að vera með skart sem er skemmtilegt að hafa og jafnvel eitthvað sem skapar umræðu þar sem maður er :)
Hér eru nokkrir skartgripir sem ég væri til í að eignast :)








Næst á dagskrá

Næst á dagskrá hjá mér er að finna einhvað þessu líkt hér í stofuna hjá mér.
planið er að fara bara í Ikea og kaupa efri eldhússkápa... líklegast viftuskápa og setja þá hérna á vegginn hjá mér og búa mér til fallegann skenk á vegginn við borðstofuborðið :) - miklu ódýrari lausn heldur en að kaupa einn slíkan...sem virðist kosta tvo handleggi eftir allar mínar verðkannanir.





Mig langar svolítið í svona límmiða á mína tölvu :)

en í búðinni Karvt er hægt að fá allskonar skemmtilega límmiða á tölvuna sína :)

Skemmtileg hilla :)



Ljós III

Þetta fallega ljós kallast MOTHEATEN LIGHT og er eftir Eleanor-Jayne Browne.

Ég ímynda mér að það myndist ótrúlega fallegir skuggar útfrá ljósinu þegar kveikt er á því :)


Minn Ásmundur

Það er mér sönn ánægja að segja ykkur frá því að tillaga sem ég, Edda Gylfadóttir og Helga B. Jónasardóttir sendum saman inn í hönnunarsamkeppni Ásmundarsafns, bar sigur úr býtum í gær.

Hægt er að skoða okkar tillögu ásamt 14 öðrum flottum tillögum sem til greina kemur að framleiða, á safninu til 15. Maí

Hér má sjá myndir af tillögunni okkar sem við köllum "Minn Ásmundur"
En hugmyndin er púsl sem bæði púslast 2D og 3D og getur sá sem púslar búið til sinn eigin skúlptúr og haft uppá punt.







Ljós II

Þetta finnst mér ótrúlega flott lausn á því að vera ekki með nægilega margar rafmagnsdósir í loftinu...
...þetta er skemmtilega grafískt :)

Ljós

Það er hægt að leika sér allskonar með "rússaperurnar" skemmtilegu :)

- mér finnst þetta bara mjög skemmtileg hugmynd fyrir t.d. kaffihús...eða bókabúðir, bókasafn eða bara bókaherbergið heima :)