divider

divider

Vinaþel

Ef þið leitið að fallegri gjöf sem jafnframt er íslensk hönnun, þá ættuð þið að kíkja á þessa stensla sem kallast Vinaþel eftir Megan Herbert.

Vinaþel eru stenslar til þess að skreyta mjólkurfroðuna á kaffibollanum eða kökusneiðarnar... eða jafnvel bara ristabrauðið... flott að smyrja sultunni yfir stensilinn og fá flott munstur á sneiðina :)
Það er aldrei leiðinlegt að borða fallegan mat :)
Og ALDREI leiðinlegt að gleðja vini sína með fallegum gjöfum :)




Hægt er að kaupa Vinaþel í Minju, Epal, Kraum og öllum helstu hönnunar og túristabúðum um landið :)

Babette

Elísabet Björgvinsdóttir hannar undir vörumerkinu "Babette".
Ég er ótrúlega skotin í hönnuninni hennar sem eru nokkurskonar fylgihlutir fyrir skó :)
Ég bara einfaldlega verð að fá svona skó-skraut :)




Functional Ornamental Dishes

Þetta fallega stell hér fyrir neðan bera nafnið Functional Ornamental Dishes og eru eftir franska hönnuðinn Ariane Prin

Ég get ekki sagt annað en ég er voða voða voða skotin í þessu stelli :)





Fjörulallar

Hún Guðrún Björk Jónsdóttir, vöruhönnuður gerði þessa fallegu kolla sem eru á myndunum hér fyrir neðan. Kollarnir eru útskriftarverkefni hennar í Listaháskólanum og eru ætlaðir sem úti-húsgögn.

Fjörulallar verða á sýningunni Náttúra og íslensk hönnun sem verður opnuð á laugardaginn 19.júní í Ljósafossvirkjun.
Á þessari sýningu er samband íslenskra samtímahönnuða við náttúruna skoðað en þangað sækja hönnuðir form, efnivið og innblástur

Textinn hér að neðan er lýsing hönnuðarins á hönnun sinni:

Fjörulallar eru kollar/skúlptúrar sem tilheyra fjörunni, þeir hafa rekið upp á land og áhrifin frá náttúruöflunum eru farin að láta á sjá á efni og formi kollanna. Hugmyndin er fengin frá manngerðum hlutum sem finnast í fjörunni.




Einstaklega falleg hönnun og vel heppnaðir kollar :)
Ég verð líka að segja að þessi steypti fór strax á óskalistann hjá mér :)

Listaverk í eldhúsinu

Ég tók þessa ljósmynd í eldhúsinu hjá mér. En hér má sjá soð af kjöti sem helltist niður á borðið og þornaði/harnaði.
Mér fannst myndast svo ótrúlega fallegt mynstur útfrá fitunni í soðinu :)

Skyrta dagsins :)

Leikum okkur að matnum :)

Þessi skemmtilegu hnífapör fyrir litla prakkara fást í búðinni Flying Peas og eru að mínu mati hin mesta snilld til þess að fá litlu gaurana til þess að vera duglegir að borða :)
Það er jú miklu skemmtilegra að borða þegar það er orðið leikur einn :)



Grænar byggingar


Græn, vistvæn og sjálfbær hönnun poppar upp um allan heim um þessar mundir.
Bæði vöruhönnuðir og Arkitektar keppast við að koma með skemmtilegar lausnir á vistvænan hátt í vörum og byggingum.
Húsið hér að neðan kallast Sky Garden og er eftir arkitektana Jorge Hernandez og Daniel Libeskind.



Krítartafla

Mér finnst svona málaðar krítartöflur ótrúlega sniðugar.
Sniðugt að nýta gömlu hurðina í eldhúsinu undir eina slíka... mamma og pabbi skrifa efst og börnin neðst :)

Skemmtilegt :)

Er ekki flestum börnum bannað að leika sér að matnum?

Ég hef reyndar örlitla trú á því að þau börn sem leika sér að matnum hafi kannski einhverja listræna hæfileika... allavega hæfileika til þess að sjá eitthvað nýtt útúr hlutunum :)

Þessir diskar gætu verið til að örva ímyndunaraflið :)



Mig langar örlítið í svona diska...:)

Föstudags-desertinn :)

Þegar að sólin er svona góð við okkur að skína og steikja okkur þá er ekkert betra en að raða í sig ávöxtum :)
Föstudags-desertinn er því búinn til úr ávöxtum, en þessi hér fyrir neðan var síðasta föstudag... í kvöld verður eitthvað jafn skemmtilegt og framandi :)
Börnin elska að borða ávextina af spjóti...:)

Trash Me Desk Lamp

Lampinn "Trash Me Desk Lamp" eftir Victor Vetterlein finnst mér vera svolítið skemmtilegur :)
Lampinn er endurunnin úr eggjabökkum. En í hvern lampa fara 4 eggjabakkar. Eggjabakkarnir eru bleittir upp með vatni og "hakkaðir" niður, svo er blaða "deginu" raðað á mót.
Hver hlið á lampanum tekur nokkra daga að þorna og eru hliðarnar svo festar saman með álskrúfum.




Ég er svolítið skotin í því hvernig hægt er að nota pappírinn líkt og leir... og á pottþétt eftir að prófa það... enda fullt af hugmyndum þegar komnar upp í kollinn á mér :)

þungur/léttur

Ætli maður mundi þora að ganga á svona gólfi?
Það er kannski fínt fyrir þá sem þurfa að fara að passa sig á mataræðinu... en fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir þyngdinni.... spurning?

En þetta er húmor :)