divider

divider

Sykurpúðafjör :)

Fyrir þá sem ætla að taka sykurpúðana með í útileguna... ja eða þá sem eiga von á skemmtilegu fólki í heimsókn um helgina, þá er hægt að skapa skemmtilega sykurpúðastemmningu með því að skreyta sykurpúðana léttilega með matar-skreytingar-penna :)
Hægt er að kaupa slíka penna hér á íslandi hjá mömmunum ásamt allskonar skemmtilegu skreytingardóti :)
- þær luma líka á fullt af uppskriftum og góðum hugmyndum fyrir veisluna :)









Minn Ásmundur

Nú geta allir eignast "Minn Ásmund":)

Púslið er komið í sölu í versluninni Kraum í Aðalstræti og í safnbúðum Listasafnanna :)






Góða skemmtun gott fólk :)

Bókahillan :)

Flott bókahilla og góð hugmynd að setja þarna bókahillu í stað þess að vera með eitthvað handrið eða hálfan vegg til þess að enginn hætta sé af stiganum :)
Tvær flugur í einu höggi þarna! :)

Taga Bike Stroller

Hér sjáum við hvernig framtíðin verður í borgarkerrum :)

Algjör snilldar hönnun!









Kaffitími ;)

Þessir skemmtilegu kaffibollar eru eftir hönnuðina Scholten & Baijings og eru gerðir úr pappírs-postulíni :)

flottir :)

Langar í....

Mig langar svo í skemmtilega samsett húsnúmer á húsið mitt....

... óska eftir tölunni 43!

Hún þarf að vera ótrúlega flott og skemmtileg og fyndin :)


Cristian Zuzunaga

Þetta rúm fangaði athygli mína... en hönnuðurinn Cristian Zuzunaga gerði það í samvinnu við tímaritið Wallpaper og Hastens, 2010 og fékk það nafnið "Handmade" sem er kannski við hæfi :)
Hönnuðurinn hefur hannað ýmislegt pixlað eins og sést á meðfylgjandi myndum :)









Álit þegin takk :)


Hvað finnst ykkur kæru blogglesendur... um þennan sófa?

hann er allavega alveg örugglega mjúkur.... en er hann eitthvað meira en það?

Sófinn ber nafnið Cushionized sofa og er eftir Christiane Hoegner

Ljós

Mér finnst svona litaðar rafmagnssnúrur voða fallegar...og ég er einmitt svooo hrifin af þessari rauðu með glærri peru á endanum ;)
Ég veit að það er hægt að kaupa svona tilbúin ljós í Lumex í Skipholti í nokkrum litum og það kostar á milli 7-8 þúsund... en ég er líka nokkuð viss um að hægt sé að kaupa svona litaðar snúrur í Ikea... og gæti jafnvel verið mun ódýrara :)

Skemmtilegt að nota þvottaklemmurnar til að stytta ljósið... kemur fallega út :)

Boxal Picnic box

Þessi skemmtilegu Picnic öskjur eru gerðar úr bylgjupappa og eru því bæði léttar og umhverfisvænar fyrir nestið í nestisferðina :)
Svo eru þær líka frekar töff :)

Hér er hægt að kaupa sér eina slíka :)





Innblásturinn :)

Þegar ég var að vinna í lokaverkefninu mínu í Lhí, þá byrjaði ég að vinna með þríhyrninga í pappír... gerði ýmsar tilraunir sem hefðu getað endað allavega...og mig hefur alltaf langað til þess að halda svolítið áfram með þær tilraunir og hugmyndir sem komu í ferlinu :)

Á mynd 1 eru nokkrar tilraunir frá mér... en fyrir neðan eru myndir af ótrúlega fallegum ljósum sem unnin eru útfrá sömu pælingu... ég er alveg heilluð :)

Nú klæjar mig í fingurnar að byrja aftur að baksa aðeins í þessu :)




Hellur

Hellur eru margnota glerdiskar eftir hönnuðina Guðrúnu Valdimarsdóttur og Öldu Halldórsdóttur en þær hönnuðu vöruna í samstarfi við glerverksmiðjuna Samverk.
Hellur er til í tveimur mismunandi pakkningum með mismunandi litasamsetningu.

Skemmtileg hönnun og fallegir diskar fyrir hvaða tækifæri sem er :)


Skemmtileg lyklageymsla á vegg ;)