divider

divider

skemmtileg kökuform

þessi skemtilegu kökuform er hægt að fá í þessari skemmtilegu búð hér!

Í búðinni er til alveg fullt af skemmtilegum hlutum fyrir heimilið, veisluna eða vinnuna o.fl. :)
Njótið!



Snilldar snagar!

Ég fann þessa skemmtilegu snaga alla í einu og sömu búðinni sem er reyndar staðsett í Noregi, en það er nú alltaf hægt að láta senda sér :)
ótrúlega flottir!

Ég er staðráðin í því að kaupa fuglana á greininni!




Scooter-húbíll :)


Þýski iðnhönnuðurinn Cornelius Cormanns hefur hér hannað 3 hjóla scooter-húsbíl fyrir 1 :)
Mjög vel innréttaður þannig að þú hafir allt sem þú þarft með í ferðalagið :)

Nú geta þessi hjólreiðamenn sem fara hringinn hér á íslandi aðeins endurskoðað tjaldbúnaðinn... miklu sniðugra að kaupa svona og fitna svolítið á ferðalaginu heldur en að vera að rembast við að hjóla þetta... :)

WallArt

Þetta er skemmtileg lausn á endurvinnslu hjóla :)
Listaverk úr hjólum!

Þú ert svo sæt... ég gæti étið þig!

Þið eruð kannski að velta fyrir ykkur þessum myndum af börnunum hérna fyrir neðan...?

En kæru blogglesendur...þetta er NAMMI!!

langar ykkur ekki að éta eins og eitt barn?
allavega segi ég stundum við litlu 2 mánaða dóttir mína "ohh...ég gæti étið þig, þú ert svo sæt!" en ég meina það samt ekki kannski alveg.. en ég gæti látið búa til nammi útgáfu af henni..en efast að ég mundi týma að borða hana :)






Photojojo er æðisleg ljósmyndavöruverslun fyrir ljósmynda-nördana :)

hér fyrir neðan er sittlítið af nokkru sem ég væri til í að eiga eða prufa :)




fyrir ofan er skemmtileg festing fyrir myndavélar á hjólahjálminn..þá ætti maður ekki að missa af neinu :)
og fyrir neðan er ótrúlega flottur ljósmyndastandur sem ég eiginlega verð að eignast :)


hér fyrir neðan eru límmiðar á lyklaborðið sem hjálpa manni að muna stuttu leiðirnar í PS og AI og þessum skemmtilegu vinnsluforritum :) - þarfnast þess!


Armbands-úr :)


Mér finnst þetta ótrúlega skemmtileg og flott armbönd sem ég væri ótrúlega til í að eiga :)
Ég væri til í að eiga armband sem segir að klukkan sé hádegi...það er minn tími :)

þið getið keypt þessi armbandsúr í Etsy búðinni Misako Mimoko

Góðar stundir!






Land of Giants

Ameríska arkitektastofan Choi + Shine Architects hefur hannað mjög skemmtilega rafmagnslínu-kalla sem bera heitið Land of Giants hannaða sérstaklega fyrir íslenskt landslag :)

Það væri gaman að ferðast um landið og sjá þessar skessur upp um öll fjöll :)
Vonandi kemur þetta einhverntímann í framtíðinni... það passar vel inní sögu landsins og er miklu skemmtilegra fyrir augað :)






Hang On

Hægt er að kaupa þetta skemmtilega fatahengi hjá Normann Copenhagen

Það er komið á óskalistann minn :)



Fuglaskjólið fyrir veturinn :)


Mig langar svo að fá mér eitthvað fallegt fuglahús í tréin mín úti í garði... og ég held að þessi hér fyrir neðan séu komin á lista yfir það sem mig langar í :)

Verst að það séu ekki leðurblökur á íslandi.... frekar fyndin hugmynd :)


Slim Cup eftir Sharona Merling

Þetta finnst mér ótrúlega fyndnir bollar :)
En bollarnir eru skólaverkefni og eru eftir Sharona Merling en hún er í Shenkar College of Engineering and Design

skemmtilegt að bjóða uppá 10 dropa í þessum :)



Skemmtileg Ristavél!

Hér sjáum við prótótýpu af mjög skemmtilegri ristavél :)
Ristavélin er því miður ekki komin í framleiðslu... en vonandi sjáum við hana einhverntímann í búðum :)


Mig langar í...

...fallega púða í fína sófann minn og á hjónarúmið :)

þessir púðar hér á næstu 3 myndum eru til í Sirku á Akureyri




Hreindýrapúðarnir eru íslensk hönnun eftir stelpurnar í Stáss



Skemmtileg glös :)

Mig langar ALLTAF í furðuhluti eins og þessa :)
en það er hægt að kaupa Vino Mug, eða Vínkönnuna hér
og Buttoms up bjór glasið hér

skemmtileg gjöf jafnvel :)

Fuglafóðrari


Nú fer að hausta og þá fara fuglarnir að bíða eftir því að við gefum þeim að borða...
Þá er þessi fallega fuglafóðurskúla ótrúlega flott lausn :)
Hún er hengd á gluggana og þá geta litlu krúttlegu fuglarnir fóðrað sig og við og börnin okkar fylgst með þeim inni í hlýjunni :)

Hægt er að kaupa þessa fuglafóðurs-kúlu hér

Tíminn

Þýski hönnuðurinn Matthias Zschaler hannaði þetta skemmtilega armbandsúr sem hann kallar Cube.
En geometrían í úrinu kemur frá teikningu af hornréttum ferningi eins og sjá má og kemur skemmtilega út á hendi :)


Vöffluboð :)

fáið ykkur sæti og skelltu í eina vöfflu ;)

Ilan Dei

Þessi húsgagnalína eftir Ilan Dei ber nafið "Namibia Credenza".
Hönnunin er innblásin af ferðum hans við jaðar eyðimarkarinnar í Namibíu og línan skartar skenk, hliðarborði og fráleggs-borði sem öll hafa eitthvað sem hönnuðurinn tengir við Namibíu.
Verkin koma öll á óvart á einhvern hátt :)




skemmtilegt hvernig skápurinn kemur manni á óvart þegar hann er opnaður :)



Botninn á borðinu hefur spegil sem speglar undir borðplötuna og sýnir leyndarmálin sem þar eru :)
Ég er skotin í conseptinu :)


Fráleggs-borðið geymir sitt leyndarmál í rammanum sem tengir borðlappirnar saman niðri við gólf :)