divider

divider

Næringarríkir litir.

Þessir litir eru í raun ætlarðir til átu, en þeir eru eftir Luxirare.
Hönnuðurnir fundu til fæðu sem þeir flokkuðu eftir litum, muldu niður í duft og bundu svo saman með sykurpúðum. Degið settu þeir svo í mót af litum og látið harna.
Það má borða alla litina í litaboxinu og jafnvel lita, en hver og einn litur hefur næringar innihaldslýsingu aftaná pakkanum. Sumir litir eru næringarmeiri en aðrir en það fer að sjálfsögðu eftir innihaldi litanna :)
Litirnir koma 8 saman í pakka :)












Endurnýtingar snilld :)

Ég sá þetta á síðunni hjá stelpunum í Ígló kids og get ekki sagt annað en að þetta sé bara ótrúlega góð endurnýting á gömlum og ljótum fingravetlingum :)
Endilega prófið:)

Þetta skemmtilega hús ert gert úr bylgjupappa og er svo sniðugt að það er ekkert mál að taka það í sundur og láta það hverfa, og henda því svo saman fyrir ævintýragjörn börn:)
Hægt er að kaupa þessa snilld í búðinni Shakshuka og kostar það 32 evrur :)


Fyrir bílastráka!

Hægt er að fá þessar skemmtilegu vörur fyrir sæta bílastráka hér.



Þessa skemmtilegu mjólkurkönnu fjárfesti ég í hjá skvísunum í Hrím hönnunarhúsi á Akureyri :)
Hún hefur vakið mikla lukku hjá gestunum sem koma til mín :)
Ég mæli með könnunni í gjöf :)


Pick your cup!

Nú þarf maður ekkert að fara í megrun... þú kaupir bara tvær svona töskur og hefur þær sitthvoru megin :) svo er líka svo niðugt að þú getur valið þér brjóstastærð :)

Október - Bleika Slaufan

Nú er kominn 1. okt.
Dóttir mín er 5 ára í dag :)
Og sala á bleiku slaufunni hófst í dag.

Bleika slaufan var í ár hönnuð af vöruhönnuðinum Ragnheiði I. Margeirsdóttir en til eru 3 mismunandi útfærslur af slaufunni í ár. Ein með dökkum bleikum steinum og önnur með ljósari steinum, sem mér finnst persónulega fallegri. Og svo er sú þriðja gerð úr ekta silfri og er seld í Leonard.
Ég hvet allar konur að fjárfesta í bleiku slaufunni því þetta er ekki bara fallegt skart heldur líka stuðningur við gott málefni :)