Þetta er skemmtileg hugmynd sem einfaldlega er hægt að leysa með því að kaupa falleg karton í skærum litum og sníða þau til inn í hillurnar og smella smá kennaratyggjói á bakvið :) Þá er minnsta mál að losna við þetta þegar maður er orðin leiður á litunum og hillan skemmist ekkert :)
divider
Borðstofuborðið
Ég er orðin svo leið á gamla ljóta borðstofuborðinu mínu. Langar svo að gefa því andlitslyftingu.
Þetta er geggjaður litur! :)
Finnsdottir Design.
Þóra Finnsdóttir keramiker nýtur vaxandi vinsælda meðal þeirra sem elska skandínavíska hönnun.
Þóra býr í Danmörku og hannar undir nafninu Finnsdottir.
Ég er sjúk í stærsta vasann sem er á mynd nr. 4 hér fyrir neðan! Ég væri reyndar ekkert á móti því að eignast bara eitthvað eftir hana... mér finnst þetta allt rosalega fallegt!
Þeir sem vilja eignast eitthvað eftir Þóru getað farið í Mýrina í Kringlunni.
Þar er mikið um dýrðir :)
DIY: Snagar
Þessir snagar eru gerðir úr gömlum viðarkubbum.
Hver man ekki eftir að hafa átt svona...eða þekkt einhvern sem hefur átt svona?
Mér finnst þetta ótrúlega fallegt og ekki er þetta flókið :)
Bókað að ég prufa þetta! :)
Það sem þarf eru:
Kubbarnir
Málning - flottir litir!
pensill
borvél (til að bora fyrir skrúfunum)
og hankaskrúfur sem stingast inn í kubbinn í annan endann, og inn í vegginn í hinn.
Sumarbústaðurinn
Einhverntímann ætla ég að gerast svo fræg að eignast sumarbústað.
A-bústaður er pínu í uppáhaldi hjá mér...það er bara eitthvað svo sjarmerandi við svoleiðis bústaði.
Þetta svefnloft í A-bústað hefur verið tekið í gegn og er ansi sjarmerandi...ég get ekki annað sagt :)
Hvíta gólfið birtir svo upp loftirð og gerir heilann helling :)
DIY: Húsgagna-fætur
Fáránlega einfalt og ótrúlega töff!
Þetta geta allir gert! :)
Það sem þarf er gott teip, til þess að afmarka málninguna og ramma inn það sem mála á.
Og góðann svamprúllu-pensil.
Og auðvitað flotta liti :)
( er að elska ferskju-bleikann.... langar að prufa hann á svona :) )
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


























