divider

divider

Postulín

Anne Black er dönsk listakona, með vinnustofu í Kaupmannahöfn. Hún útskrifaðist úr Listaháskólanum í Kolding 1996 og hefur síðan þá gert postulínið að sínu aðal vörumerki. Það er hægt að gera ýmislegt annað en fína kaffibolla úr postulíni.

Hér er ein vörulínan hennar.
Skemmtilegar flísar sem eflaust væri hægt að leika sér með. Ég er sérstaklega hrifin af munstrinu með hinu klassíska viskustykkja munstri.
Svo get ég auðvitað ekki sleppt veggskrautinu. Ég held að ég sé sjúklegur veggskraut safnari...eða ég væri það ef ég léti allt eftir mér. Þarf þá líklega ekki að nefna það að ég væri alveg til í að eignast svona fugl á vegginn hjá mér.

Poki Design

Poki er hannað af þeim Holm Giessler & Jennifer Heiman og er sería af húsgögnum sem öll hafa það sameiginlegt að hafa skúffu sem hefur ekki botn heldur poka. 

Að mínu mati er þetta ótrúlega falleg samsetning á við og textíl og alveg ótrúlega vel heppnað :) 

Ég er mjög skotin í þessu :) 





Blúndur

Hérna eru blúnduhúsgögn eftir Marcel Wanders. Ef þú vissir það ekki, þá er allt til í dag. Mér þykja þau mjög falleg fyrir augað, veit ekki með notagildið á hinu hefðbundna heimili.

Crochet Chair
Crochet Lamp
Crochet Table
Annars er þetta eitthvað sem ég gæti hugsað mér að eiga.
Ef einhver vildi vera svo æðislegur og demba sér í að búa til eitt svona teppi og gefa mér, þá myndi ég örugglega brosa allan hringinn í heilt ár. Ég legg amk ekki í það...ennþá.




Jólaskreyting

Falleg og einföld jólaskreyting sem allir ættu að geta hent saman á "nó-tæm". :) 


Dóttir&Sonur

Úti í Berlín er íslenskt par, Tinna (grafískur hönnuður) og Ingvi (vef-hönnuður), að hanna saman skemmtilegar vörur undir vörumerkinu Dóttir&Sonur. 
Ég get sagt ykkur það að ég er mjög hrifin af púðunum sem þau gera, og mér finnst skemmtilegur húmor í verkunum þeirra. :) 

Ég er reyndar ekki viss um hvar hægt er að nálgast vörurnar þeirra hérna á íslandi...en ég er nokkuð viss um að þær séu í sölu hérna einhversstaðar :) 
veit það einhver?


Þessi skemmtilegi púði hér fyrir neðan ber nafnið KR-Pillow :) - Við skagamenn gætum þurft að kaupa nokkra til þess að lúskra á ;)



Jólapakkinn :)

Hér má sjá nokkrar hugmyndir af jólapökkum sem pakkaðir eru inn í brúnann pappír og skreyttir með hlutum sem til eru á heimilinu :) 

HÉR má einnig finna gamla færslu frá því í fyrra með góðum hugmyndum fyrir jólapakkann :)