divider

divider

Íslensk hönnun í barnaherbergið.

Ég er alltaf að betrumbæta og sjæna barnaherbergin...og stofuna...og hjónaherbergið...og eldhúsið... í huganum. En barnaherbergin hafa verið pínu uppáhalds hjá mér og þar getur maður alltaf á sig blómum bætt :) 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir og góðar hugmyndir fyrir barnaherbergið...og það sem skemmtilegast er, er að þetta er allt saman íslensk hönnun :) 

Þennan vegglímmiða hér fyrir neðan á Mosi Design heiðurinn af. 
Fallegt að hafa kvöldbæn fyrir ofan rúmið hjá litlu englunum okkar :) 
Þetta er komið á innkaupalistann minn... og ég skal bara segja ykkur það strax að þetta er til í Hrím á Akureyri...þær senda hvert á land sem er :) 


Þessir skemmtielgu vegglímmiðar eru frá Bimbi og koma líka í grænu og bláu. Ofsalega fallegir og skemmtilegir límmiðar sem hægt er að raða hvernig sem er og búa til sína eigin sögu :) 


Bimbi á líka heiðurinn af þessu hér fyrir neðan.. :) æði :) 


Vegghillan hér fyrir neðan er líka á óskalistanum hjá mér.. en hún er eftir Siggu Heimis og er til í Epal. 
Hún verður keypt þegar ég veit ekki hvað ég á að eyða peningum í næst :) haha... :) Yndisfögur. 


Þetta fatahengi hér fyrir neðan er líka fallegt í barnaherbergið...eða bara inn í anddyrið. Mjög fallegt og íslenskt og á rætur sínar að rekja í vísuna sem við þekkjum öll "Hani, krummi, hundur svín..." En eins og gefur að skilja þá má sjá þarna hest, mús og snjótittling.  Þetta er eftir hönnunarteymi sem fer undir nafninu Hár úr hala. Vel gert og skemmtilegt :) Fæst líka í Epal.

Bara gaman.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá kertapoka sem sérstaklega eru gerðir til þess að vera með kerti í. Ofsalega fallegir og skapa fallega stemmningu í skammdeginu. En pokarnir eru til sölu ásamt fleiri skemmtilegum  og flottum stemmningsvörum í vef-versluninni Bara gaman. 

Pokarnir eru flottir heima fyrir en svo eru þeir líka flottir í veislur ;) - Svona ef einhver er að fara að gifta sig :) 


Maude & Tilda töskur

Þessar töskur komu á markað á ný liðnu ári og eru frá merkinu Maude & Tilda. 

Þær eru skemmtilega öðruvísi, tau-pokar sem gaman er að dröslast með því að hver poki hefur segir sinn djók um allar fallegu töskurnar sem að er svo erfitt að eignast eftir dýrustu og flottustu hönnuði heims. 

Það er skemmtilegra að eiga svona frekar heldur en einhverja fake?





Litir sem gleðja augað í skammdeginu :)

Stundum þarf maður bara að fá eitthvað sætt og sumarlegt í æð á veturna :) 
Svona glaðlegir litir gera alveg sitt gagn og veita innblástur :) 







Rómantískt hár.

Finnst svo fallegt að hafa svona rómantískar hárgreiðslur. Þær hitta beint í mark hjá mér :) 
Verst hvað mitt hár er erfitt viðureignar sökum þess hversu þykkt það er... 


DIY: Ljósastjakar

Þessa fallegu ljósastjaka er ekki bara auðvelt að gera...það ætti líka að kosta lítið :) 
Það er fallegt að vera með svona gamlar byggingar í svarthvítu, lýstar upp í glugganum í skammdeginu... svona núna þegar að blessuð jólaljósin eru farin eða að fara. 


Það sem til þarf eru útprentaðar myndir af gömlum fallegum byggingum. Eða þá bara að nýta myndir úr tímaritum, auglýsingum eða annað. 
Svo þarf góð skæri eða góðann hníf, límband og svo til þess að forðast eldsvoða þá er best að nota svona  batteríis-sprittkerti. Þau eru til út um allt nú til dags. 


Svo er að byrja að klippa. Útlínurnar af byggingunni klipptar þannig að himinn fari af og svo er líka svakalega flott að skera út gluggana í húsinu..þannig að það lýsi eins og það sé kveikt inní húsinu :) 


Þá er límbandið notað til að líma þetta í hring. 




Afskaplega fallegt og skapar kósý stemmningu :) 

Shuffle Table

Ég var ábyggilega ekki búin að sýna ykkur þetta gull og gersemi. Þvílíka Djásn sem þetta borð er. 
Er búin að horfa á það núna í um ár og græt næstum alltaf... yfir því að eiga það ekki. 

Borðið ber nafnið Shuffle Table og er eftir norska hönnuðinn Miu Hamborg. Framleitt af danska fyrirtækin &Tradition

Þetta borð er svo mikið ÉG eitthvað.... LOVIT!