divider

divider

DIY: Ljósakróna úr pappír

Ótrúlega fallegt sem er mjög auðvelt að gera sjálfur :) 

Horfið á videoið neðst, þá sjáið þið mjög fínar leiðbeiningar um hvernig á að gera svona :) 

Það er ekkert mál :) 




Púða-ást

Þessir skemmtilegu og fínu púðar gætu alveg verið fullkomnir í barnaherbergin á mínu heimili. 
Púðarnir fást í Land of Nod sem er skemmtileg búð með allskonar flottum vörum fyrir heimilið :) 

Lóan er komin...

Fyrirtækið Hekla Design hér á Íslandi er þegar orðið frekar þekkt fyrir fallegu kertin og servíetturnar sem  svo margar húsmæður hér á landi hafa keypt sér :) 
Hekla hefur líka komið með á markað fatahengi/skúlptúr sem kallast Lóa og er líkt og búkur Lóunnar. 
Hægt er að kaupa matt og glansandi stál-hengi og svo aftur á móti málað stál-hengi. 
Ég er orðin OF skotin í máluðu Lóunni og er þegar búin að ákveða hvar ég ætla að setja hana þegar ég loksins eignast hana. En hún er auðvitað ekki fríkeypis og kostar litlar túttífemmþús!
Er byrjuð að safna :) 



Ombré sokkabuxurnar!

Langar svo að þessar sokkabuxur rati inn í skáp hjá mér... er eiginlega alveg að fara að panta mér :) 
En sokkabuxurnar eru handlitaðar og eru til sölu á HÉR á Etsy síðunni skemmtilegu :) 



Páskaskraut - Eggja-listaverk :)

Hér fyrir á myndunum 2 fyrir neðan má sjá harðsoðin egg sem eru svo lituð með sama hætti og eggin frá seinustu færslu... :) mjög skemmtilegt :) 




Svo má auðvitað gera þetta eins og í gamla daga og grípa til pensils og málningu og skreyta þannig egg :) 
Virkið endilega börnin með ykkur í þetta :) Þeim finnst þetta meira en spennandi :) 


Skreytum Egg

Fyrir ykkur sem skreyta egg á páskunum þá er það nú bara hin fínasta hugmynd (og auðveld) að skreyta harðsoðin egg áður en þau verða borðuð :) 
Smart að bjóða uppá falleg egg með hádegis eða morgunmatnum á páskadag :) 
Þessi skemmtilegu og fallegu egg hér fyrir neðan eru harðsoðin, vafin inn í blúndu og blúndan fest með teygju. Því næst eru þau látin vera í heitu vatni með matarlit og ediki í sirka 15-20 mínútur með blúndunni utaná. því næst eru eggin látin þorna...gott er að stinga títuprjónum í pappa og leggja þau svo ofaná. 
Martha okkar Stewart skýrir þetta allt saman mjög vel á video-upptöku sem má finna hér: Skreytum Egg
Videóið er á link þarna vinstra megin :)