Helga Björg Jónasardóttir sýndi þetta fallega og stórkostlega skemmtilega borð á samsýningunni
"Play In Progress" á nýliðinni hönnunarviku í Mílanó.
Samsýningin var í boði Child Culture Design deildarinnar i HDK skólanum í Svíþjóð og vakti mikla lukku.
Playble er borð úr gegnheilli eik sem getur "staðið upp" á öðrum
endanum, þar sem borðfæturnir breytast í stiga og borðplatan hallar sem
rennibraut.
Undir borðinu leynist krítatafla þar sem krakkar geta í ró og næði teiknað eða skrifað.Einnig er auðvelt að leggja teppi yfir og þá breytist það í hús, þá er hægt að nota stigaopið sem búð auk fjölmargra leikmöguleika sem kunna að búa í huga barns.
Þær Helga og María (sjá fyrri færslu) hafa vakið mikla lukku í Mílanó enda frábærir íslenskir hönnuðir hér á ferð :)
















