divider

divider

Sumarhúsið

Þetta fallega litla sumarhús er staðsett í Finnlandi. 
Góð hugmynd fyrir þann sem að á sumarbústaðalóð en ekki peninginn til að byggja allann bústaðinn strax :) Þá má byrja á því að gera "gestakofann" og hafa hann tveggja hæða fegurðarkofa með fallegum palli :) Það ætti ekki að kosta eins mikið og allur risa bústaðurinn eins og við íslendingar gerum :) 

Mig langar allavega til að kúra á svona stað :) 







Fyrir & Eftir

Þessi fallegi eikarskápur var tekinn í gegn af ferðamömmunni á TravelingMama
Hún var frekar óviss með litinn og prufaði hvítann áður en hún ákvað svo steingráann. 
Skápurinn breyttist alveg ROSALEGA mikið við þetta og varð bara þokkalega huggulegur! :) 
Eru ekki einhverjir þarna úti sem eiga fullt af eikarhúsgögnum sem þeir hafa fengið leið á?




Pappírs-skraut

Sjáiði bara hvað þetta er fallegt svona hangandi fyrir ofan rúmið?! 
ohh...ég bráðna alveg yfir svona skrauti :) 
OG svo var ég líka að kaupa svona :) 

En fyrir ykkur sem langar að kaupa þá er þetta til núna í Söstrene Grene. Allavega eru pappírs-kúlurnar til núna. Blómin fékk ég einhverntímann í vetur hja þeim. 


Bókahillan

Jæja... þá er þetta stutta frí á enda :) 
Nú detta inn bloggin aftur af...ja....svona þokkalegu krafti...svona miðað við það að það er sumar og skemmtilegt að vera úti :) 

Þetta er svolítið sniðug geymsla sem er vel falin :) 
Það er nú ekki flókið að föndra svona inní bókahilluna og fela þar einhverjar gersemar :) 





Sumarleyfis-bloggpása

Fyrir ykkur sem kíkið reglulega þá vildi ég láta ykkur vita að ég ætla mér að taka smá blogg-pásu næstu daga sökum sumarleyfis og almennrar leti. :) 
Ég kem aftur hress og kát eftir nokkra daga með eitthvað rosalegt góss til að sýna ykkur. 

En á meðan megið þið fá hérna smá sník á það sem ég er að dunda í. 
Þetta mun verða á endanum stóll. :) 


Kósýness

Mig dreymir um að vera með eitthvað svona kósýhorn heima hjá mér þar sem ég get legið og lesið með börnunum :) 
Fyrsta myndin er þó tileinkuð voffunum...því þá dreymir líka um kósýness :)






Draumurinn....

Allar konur elska skó! Er það ekki?
Allar konur eiga skilið fallegann skóskáp! 
Er það ekki? 
Hér má sjá tvo flotta!