Langar svo að þessar sokkabuxur rati inn í skáp hjá mér... er eiginlega alveg að fara að panta mér :)
divider
Páskaskraut - Eggja-listaverk :)
Hér fyrir á myndunum 2 fyrir neðan má sjá harðsoðin egg sem eru svo lituð með sama hætti og eggin frá seinustu færslu... :) mjög skemmtilegt :)
Svo má auðvitað gera þetta eins og í gamla daga og grípa til pensils og málningu og skreyta þannig egg :)
Virkið endilega börnin með ykkur í þetta :) Þeim finnst þetta meira en spennandi :)
Skreytum Egg
Fyrir ykkur sem skreyta egg á páskunum þá er það nú bara hin fínasta hugmynd (og auðveld) að skreyta harðsoðin egg áður en þau verða borðuð :)
Smart að bjóða uppá falleg egg með hádegis eða morgunmatnum á páskadag :)
Þessi skemmtilegu og fallegu egg hér fyrir neðan eru harðsoðin, vafin inn í blúndu og blúndan fest með teygju. Því næst eru þau látin vera í heitu vatni með matarlit og ediki í sirka 15-20 mínútur með blúndunni utaná. því næst eru eggin látin þorna...gott er að stinga títuprjónum í pappa og leggja þau svo ofaná.
Martha okkar Stewart skýrir þetta allt saman mjög vel á video-upptöku sem má finna hér: Skreytum Egg
Videóið er á link þarna vinstra megin :)
Inbetween
Vöruhönnuðurinn Lee Ki Seung hannaði þessa línu af vörum sem sést hérna fyrir neðan undir nafninu "Inbetween"
Þessar vörur voru allar til sölu á DesignBoom sölubásnum á Stockholm Furniture Fair í Febrúar.
Ég að sjálfsögðu fjárfesti í svona fallegum disk með fuglasporum, en hann fékk í lið með sér fugla til að spora á diskana með því að setja þá út með fuglamat áður en postulínið harnaði :) skemmtilegt :)
Á neðstu myndinni má sjá skemmtilegann bakka sem er negatívan af trjám og himninum :)
A-Bústaður
Ég er alltaf frekar heit fyrir A-bústöðum og mig hefur alltaf dreymt um að eignast einn slíkan. Helst vil ég þó byggja minn eigin með öllu því sem mig dreymir um innanstokks :) Það verður vonandi einhverntímann :)
En þessi A-bústaður eftir hann William O'Brien Jr. arkitekt kemst rosalega nálægt því að vera eins og bústaðurinn sem mig dreymir um :) - til þess að uppfylla mínar þarfir þar bara örlitlar breytingar á miðju byggingunni :)
Fallegt :)
Páskafrí
Nú eru skólabörnin okkar fallegu komin í páskafrí og eitthvað þarf að hafa ofanaf fyrir þeim á meðan við fullorðna fólkið klárum vinnuvikuna fyrir páskafrí.
Hér er eitthvað sem má gera :)
Það sem þarf er bara að steikja nokkur egg á pönnu með matnum og hirða svo skurnina, þrífa vel, bræða upp kertaafganga og nota gömul afmæliskerti sem þvælast endalaust fyrir sem kveikiþráð :)
Agalega lekkó og skemmtilegt á borðstofuborðið með páskasteikinni :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)



















