divider

divider

DIY: Verkefni fyrir helgina :)

Svona ljós er ekki svo flókið að gera :) 
Það sem þarf er bolti (og boltanál til að hleypa loftir úr þegar öllu er lokið), EÐA bara blaðra. 
Held samt að boltinn gefi fallegri lögun. 
Svo þarf gott lím. Gott er að nota veggfóðurslím, en ég er viss um að hægt sé að nota hverskyns föndurlím :) 
Svo er það garn í þeim lit sem hver kýs, eða svona bómullarsnæri eins og er notað hér á myndunum fyrir neðan. 
Gott er að byrja á því að nota glas til þess að teikna hring meðfram á bolta/blöðru, en sá hringur markar það svæði sem við erum að passa að vefja ekki garn yfir. 
Þegar byrjað er þá er gott að láta bandið veltast aðeins uppúr líminu áður en því er vafið utan um boltann/blöðruna...það er ágætt að gera það bara jafn óðum og maður vefur. Svo er þetta látið harna vel og þá er loftið tekið úr bolta/blöðru og ljói komið fyrir í kúlunni :) 








DIY: Fatahengi.

Þetta fatahengi er eitthvað sem allir ættu að geta gert. OG það er stílhreint og töff :) 
Það sem þú þarft eru 5 stk. kústsköft, snæri í einhverjum flottum lit ( til skær-appelsínugult, skærbleikt  og karrý-gult í Húsasmiðjunni og Byko). 
Maður byrjar á því að setja öll kústsköftin saman í "hrúgu" og láta öll snúa eins (beint upp). Þá vefur maður utan um kústsköftin nokkuð vel og strekt og þegar það er búið þá tekur maður sköftin í sundur og lætur þau standa í allar áttir... gott er að nota trélím og smella nokkrum dropum hér og þar á milli þegar búið er að gera standinn eins og hann á að vera, þá ætti þetta ekki að fara á neitt flandur. :) 

Gangi ykkur vel! :) 


Milan Design Week - Playble


Helga Björg Jónasardóttir sýndi þetta fallega og stórkostlega skemmtilega borð á samsýningunni 
"Play In Progress" á nýliðinni hönnunarviku í Mílanó. 
Samsýningin var í boði Child Culture Design deildarinnar i HDK skólanum í Svíþjóð og vakti mikla lukku. 

Playble er borð úr gegnheilli eik sem getur "staðið upp" á öðrum endanum, þar sem borðfæturnir breytast í stiga og borðplatan hallar sem rennibraut.
Undir borðinu leynist krítatafla þar sem krakkar geta í ró og næði teiknað eða skrifað.
Einnig er auðvelt að leggja teppi yfir og þá breytist það í hús, þá er hægt að nota stigaopið sem búð auk fjölmargra leikmöguleika sem kunna að búa í huga barns.

Þær Helga og María (sjá fyrri færslu) hafa vakið mikla lukku í Mílanó enda frábærir íslenskir hönnuðir hér á ferð :) 





Milan Design Week.


Nú stendur yfir Milan Design week í Mílanó en þar má finna ýmislegt skemmtilegt, fallegt og fræðandi.
Hún María Markovic vinkona mín er þar að sýna í samsýningu með sinni deild í skólanum. Hún sýnir 3 skrímsli sem gegna því hlutverki að vera líka dótakassar og kollar... DótakassakollaSkrímsli ef við búum til orð yfir þetta. 
Skrímslin eru öll nánast eins, nema á einni hlið þar sem hvert og eitt skrímsli hefur sitt andlit og sýnir með því sína innri hlið og function :) 

María nemur Child Culture Design í HDK í Svíþjóð. 

Mjög skemmtilegt verkefni hjá Maríu :) 




Polder

Ég er svo hrifin af Polder sófanum frá Vitra. Hollenski hönnuðurinn Hella Jongerius á heiðurinn af honum. Hún vann hann út frá yfirlitsmyndum af ökrum.





 Svo er hann auðvitað til í nokkrum litum og stærðum.





DIY: Loftljós

Svona má breyta IKEA ávaxtaskál í fallegt loftljós :) 

Sprey og snúra með perustæði og peru :)