divider

divider

Púða-ást

Ég er alveg að fara hamförum í sumarfríinu mínu og kaupi bara og kaupi!
Ég má ekki detta til RVK öðruvísi en að koma með eitthvað fallegt heim :)
En... afþví að ég er ekki að kaupa mér föt, þá má þetta svosem alveg :) 
En ég keypti mér semsagt NotKnot púða!!! VEI!!! 
Ég er búin að horfa á þá lengi og alltaf ætlað að kaupa en aldrei lagt í það að eyða peningunum í hann...en svo fór ég Laugavegsrúnt með vinkonu sem að hafði svona góð áhrif á mig þegar ég fór inn í Hrím. Púðinn var keyptur og allir eru glaðir :) 
Minn púði er eins og þessi grái, en rauður á litinn :) 
Elsk'ann!!




Hárteygjan

Góð leið til þess að fá smábörnin til þess að horfa í myndavélina :) 
Þetta er bara hárteygja sem búið er að bæta á augum og nebba :) 
Ekki flókið og virkar! 


Sumarhúsa-dónaskapur :)

Ég fann síðu á netinu sem heitir, með góðri íslensku-þýðingu, því skemmtilega nafni "Frítt Kofa klám"
Þessi síða er skemmtileg síða fyrir alla þá sem hafa áhuga á fallegum sumarhúsum. 
Mjög gaman að skoða :) 



Skemmtileg hilla

Hér má sjá skemmtilega hillu sem hefur verið sérsmíðuð fyrir þennan vegg.
Minnir einna helst á borgar-útlínur og til þess að undirstrika það má sjá þarna stafina NY og frelsisstyttuna.
Mér finnst þetta rosalega flott hugmynd og frábært fyrir unglingaherbergið :) 


Bird

"Langar í" listinn minn styttist örlítið fyrir helgina :) 
Ég gerðist svo djörf að fjárfesta í fuglinum Bird, Made by Architects.
Kristian Vedel hannaði þennan fallega fugl árið 1959 ásamt nokkrum öðrum útgáfum af honum. Í raun á hann heila fjölskyldu :) 
Algjört bjútí! Get ekki sagt annað :) 




BoboBoom

Þessir fallegu kollar eru það sem kallast "Re-Design" á ensku. En efnið sem notað er í þá eru gamlar krosssaums-myndir sem saumaðar hafa verið saman utan um kollinn. Þetta kemur rosalega fallega út og úr verður fallegur grafískur kollur með sögu :) 
Kollarnir eru eftir franska hönnuðinn Mitri Hourani, en hann framleiðir undir merkinu Boboboom.
Ykkur til mikillar gleði þá eru þessir kollar til sölu í búðinni Heimli&hugmyndir sem er til staðar á Suðurlandsbrautinni. :)


Trjákofar

Töfrandi trjákofar!

Ætli það séu til margir trjákofar á íslandi? 
Ég hef að minnsta kosti bara séð einn í Þingholtunum... :)