divider

divider

Pistacchi Design

Pistacchi Design er nýtt vörumerki frá Taiwan. 
Hönnunin sem kemur frá þeim eru ótrúlega fersk og nær að kalla fram bros á lang flesta :) 

Hér fyrir neðan má sjá matarílát sem kallast "Rauðhetta" en ef þetta er skoðað nánar þá má þar sjá Rauðhettu sjálfa, úlfinn og úlfinn dulbúinn sem amman :) Virkar eins og Babúskur og staflast inní hvert annað (þannig að úlfurinn í raun borðar Rauðhettu) en eru líka skálar fyrir mat til þess að hafa í eldhúsinu :) - mig langar rosalega að skoða þetta nánar! :) 



Hér má svo sjá hann Gosa... en hans hlutverk er að ydda blýantinn sem hefur það hlutverk að vera minnkandi nef Gosa. Yddarinn ber nafnið "Honest Boy" :) 
Langar í einn svona :) 



Brúðkaup - Skreytingar

Nú eru eflaust margir að undirbúa haustbrúðkaup. 
Á haustin er svo fallegt og rómantískt og gaman að geta nýtt svolítið kertaljós og fallega birtu í dimmunni.

Hér má sjá nokkur dæmi um fallegar skreytingar :) 









Gerist

Hönnunarteymið GERIST hefur getið af sér gott orðspor síðastliðin árin. 
En teymið er skipað af þeim Friðgerði og Kristínu Birnu, en þær útskrifuðust saman úr vöruhönnun í Lhí árið 2008. 

Þær stöllur hafa hannað nokkrar vörur og meðal annars unnið til verðlauna fyrir hönnun sína á handklæðinu, Reykjavík Towel, og sápunni, Reykjavík Soap, sem sjá má hér fyrir neðan. 
Hægt er að kaupa handklæðið og sápuna í sundlaugum Reykjavíkurborgar og einnig í hönnunarversluninni Kraum. 




Síðastliðinn HönnunarMars komu þær stöllur svo með smokka á markað sem ætlaðir eru túristum sem hingað koma. Umbúðirnar fyrir smokkana eru ótrúlega skemmtilegar og ég held að það sé ekki hægt að segja annað en að það sé mikill húmor í þessari hönnun hjá þeim :) 
Náttúran segir að minnsta kosti til sín þarna :) 




Björg í bú

Björg í Bú hefur komið með þónokkrar vörur á markað síðastliðin árin. 
Hér fyrir neðan má sjá þær frábæru vörur sem komið hafa frá Björg í Bú. 

Peysuleysi - algjör snilld fyrir veturinn



Blómasegull - falleg viðbót í eldhúsið og passar hnífana vel :) 


Kjötbretti - skurðarbretti sem sýnir hvernig nautskrokknum er skipt upp hjá slátraranum.


Barnagull - nýjasta viðbót Björg í bú


Örflögur - fitulausar kartöfluflögur


Minn Ásmundur - púslaðu upp þínum eigin skúlptúr í anda Ásbjarnar Sveinssonara


Skínandi skart - endurskinsmerki fyrir veturinn.


SunbirdKids

Sunbird er íslenskt hönnun eingöngu með barnafatnað. Fötin frá merkinu eru alveg fáránlega flott og heldur betur töff á litla töffara. Bæði stelpur og stráka :) 
Hönnuðurinn á bakvið merkið heitir Sunna og er hún lærður vöruhönnuður. 
Dætur mínar eru búnar að eiga föt frá þessu merki núna í um 2 ár og ég get ekki sagt annað en að ég sé ánægð. Fötin eru falleg, þæginleg og miðuð út frá börnunum.

Hægt er að kaupa fötin frá Sunbird í barnavöruverslununum Fífunni og í Rumputuski á Laugaveginum. 







Drukknar í skuldum

"Drowning in Debt" nefnast þessir salt og piparstaukar eftir Sebastian Errazuriz, hönnuð í New York :) 

skemmtilega steikt :) 




Barcelona bench

Þetta er náttúrulega bara rugl!
Nákvæm eftirlíking af Barcelona bekknum.... sem má borða! :)