divider

divider

Teiknimyndahúsgögn

Ég var að grúska á Established&Sons og uppgötvaði þennan skemmtilega hönnuð. Richard Woods. Hann hannaði þessa húsgagnalínu í samvinnu við Sebastian Wrong. Hún kallst Wrongwoods. Línan kemur í 4 stærðarútfærslum og 4 litasamsetningum. Hrikalega töff verð ég að segja.





Woods hefur mikið verið að hanna út frá hálfgerðri teiknimynda graffík.



DIY: Herðatré úr gömlum stólum

Þetta finnst mér falleg hugmynd sem hver og einn getur útfært á sinn hátt! :) 

+


Hidden Animal Teacups

Hidden Animal Teacups eru bollar sem eru komnir á óskalistann minn!!!

Bollarnir eru japanskir og eru framleiddir af Ange-line tetrault. 

hægt er að kaupa þessa undurfögru bolla í amerísku búðinni Huset sem er ótrúlega skemmtileg búð sem leggur uppúr skandinavískri hönnun (þrátt fyrir að bollarnir komi frá Japan)





Fadeout Chair

Ein af fjölmörgum snilldum frá Japanska fyrirtækinu Nendo er þessi skemmtilegi stóll sem kallast Fadeout Chair. 
Eftir að hafa skoðað hvað fyrirtækið gerir þá verð ég að segja að þeir eru mjög frumlegir og skemmtilegir  og það er ALLS ekki leiðinlegt að skoða síðuna þeirra :) 



Frítími

Fólk gerir ýmislegt í frítíma sínum.
Ég rakst á svipað verkefni og listamenn í París gerðu. Þar sem þeir settu garn í götuholur.

Maður að nafni Jan Vormann fór að setja legokubba í sprungna veggi. Það vatt svo upp á sig og úr varð Dispatchwork. Sem hefur farið víða um heiminn og fjölmargir tekið þátt.

Toulouse í Frakklandi

Tarragona í Kataloníu á Spáni

Tel Aviv í Ísrael

Bocchignano á Ítalíu

Belgrad í Serbíu

Amsterdam í Hollandi
Nú þarf einhver að taka það að sér að koma þessu til Íslands.


Pixluð hönnun

Hinn spænski Cristian Zuzunaga er mikið fyrir pixla. Ég var ekki mikið fyrir pixlaðar myndir fyrr en ég sá hvað hann gerir.

Geggjuð motta
Ég væri svo til í að hafa sófann minn troðinn af þessum púðum!

Margir litríkir klútar til hjá honum,
Hann er með netverslun hér

Hann verður með sýningarherbergi í London Design Festival núna í september. Þar sem hann sýnir meðal annars þetta verk.


Og já ef ég var ekki búin að nefna það, ég elska liti.

Mér finnst rigningin góð


..og það er alveg satt. Gróðurinn þarf að drekka. Rokið mætti hinsvegar róa sig aðeins.

Ég vildi að regnhlífar væru meira notaðar á Íslandi. Þessi er sérhönnuð fyrir rok og rigningu, þ.e. hún fýkur ekki upp þannig að þú þurfir að slást við hana.