divider
Jólin að renna í hlað!
Nú ætlar þetta blogg að fara í smá jólafrí.
Ég ætla að eyða sem minnstum tíma í tölvunni um jólin og knúsa börnin mín þeim mun meira í staðin :)
Æðislegar Múmín-piparkökur :) - Reyndar fann ég hvergi nein múmín-mót.
En það er alltaf hægt að prenta út af netinu, klippa fígúrur út og skera út kökur eftir blaðinu :)
Jólatréið í stofu stendur!
Tréið hér efst er eftir Ólöfu Jakobínu og fæst í Epal.
Og tréin á neðstu myndinni eru jólaskraut eftir Dansk/Ítalska parið, Saminga Langholz og Andrea Brugi.
Hin tréin eru bara skemmtilegar hugmyndir :)
Jólapakkinn
Hvernig væri að endurvinna svolítið um jólin og nota gömul dagblöð til þess að pakka inn jólapakkanum?
Svo er líka voða gaman að klippa út snjókorn og nota þau til skreytinga á jólapakkann :)
Hér má sjá hvernig þú klippir út svona blóm... :) Um að gera að prufa :)
Fallegt :)
Jólapakkinn
Ég elska að pakka inn gjöfum.
Elska líka fallega pakka undir tré ;)
Hér eru nokkrar hugmyndir að fallegum pökkum fyrir jólin ;)
Eldhúsglugginn minn
Filmurnar í eldhúsgluggana mína eru loksins komnar í :)
En munstrið taldi ég upp eftir vetlingum sem amma mannsins míns hefur prjónað á alla familíuna seinustu 30 árin eða svo en sökum aldurs þá hefur hún lagt prjónaskapinn á hilluna núna.
Ég er ótrúlega ánægð með úkomuna og kósýheitin hafa hreint magnst upp í eldhúsinu hjá okkur ;)
hvað finnst fólkinu?
Jólakransinn minn
Jólakransinn minn er kominn upp :)
Ég féll algjörlega fyrir ljósmyndakransinum og gróf upp gamlar myndir af foreldrunum mínum sem ég átti til.
Vinstra megin má sjá fallegann föður minn sem barn og hægra megin er það að sjálfsögðu elskuleg og bestasta mamma mín. En þar sem hún hefur kvatt þennan heim þá finnst mér tilvalið að hafa nokkrar auka myndir af henni uppi á jólunum :)
Kransinn lokast svo með gömlu jólakorti frá mömmu og pabba frá árinu '71 eða '72 :)
Ég er bara helsátt við þetta :)
Ást og friður gott fólk :)
Góða helgi :)
Þetta finnst mér fallegt og skemmtilegt jólaskraut sem hægt er að gera með börnunum.
Á efri myndinni þarf til glært einnota plastmál, spotta/borða og jafnvel perlur, einnota hvíta glasamottur, lím og eitthvað fallegt til að setja inní ;)
og á neðri mynd þarf gamla sokka (fyrir húfu), tómar klósettrúllu og málningu ásamt einhverju skrauti sem hver og einn velur að setja á :)
flott og skemmtilegt fyrir lítinn pening og skemmtilegar minningar sem skapast :)
svo skemmir ekki fyrir að þetta er svo góð endurvinnsla :)
Jólastjarna
Fyrir hver einustu jól reyna flestir að gera eitthvað smá jólaföndur. Margir nenna því kannski ekki lengur og kenni ég þar um "frúarpjatti" :)
En það er alveg hægt að gera fallegt jólaföndur og gera það jafnvel svolítið persónulegt og í stíl við eitthvað annað fallegt á heimilinu :)
Hér fyrir neðan er uppskrift að fallegri jólastjörnu sem lítið mál er að gera :)
það sem þarf til er lím, skæri og fallegur pappír. Og svo þarf auðvitað uppskriftina að stjörnunni sem er hér fyrir neðan.
Myndirnar skíra sig sjálfar held ég :)
2. í Aðventu
Ég hef tvisvar gert tilraun til þess að kaupa mér aðventuljós í gluggana hjá mér.
Bæði skiptin keypti ég ódýrt 990kr ljós í húsasmiðjunni og í hvorugt skiptið lifði ljósið í gegnum jólin...
...þetta er kannski spurning um að fjárfesta bara í alvöru ljósi?
Þá kemur þetta hérna fyrir neðan sterklega til greina :)
-fæst reyndar ekki á íslandi svo ég viti af...en ég mun finna það fyrir næstu jól. ;)
Staircase eftir Danny Kuo
Danny Kuo útskrifaðist úr Design Academy Eindhoven núna í ár og hér má sjá lokaverkefnið hennar sem er unnið með þægindi, sparnað á plássi og skipulag í huga.
jólakúlur
Ég er alveg komin í rosalegt jólaskap og er alltaf að sjá eitthvað sniðugt jóla jóla :)
En mig langar til að deila því með ykkur að það er hægt af fá fallegar glærar jólakúlur í 3 stærðum í Föndru og bæði setja inní þær ljósmyndir af einhverju fallegu eða einhverjum fallegum eða þá t.d. setja inn í þær grenigreinar líkt og þessar hér fyrir neðan.
Ég fjárfesti í þremur og ætla að láta reyna á sköpunargáfurnar :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)













































