divider

divider

Óróar í barnaherbergið II

Mér þykir svo auðvelt að gleyma mér inn á hinni margumtöluðu Etsy -sölusíðu. Í þetta skipti var ég að láta hugann reika um óróa í barnaherbergið. Hugmyndirnar og úrvalið er svo mikið að ég fer í marga hringi. Fæ hugmynd sem mig langar að útfæra sjálf, skoða svo aðeins meira og hugmyndin breytist, svo gleymi ég mér aðeins of lengi og myndin sem ég hafði í huganum er horfin, eða bara ekkert svo sniðug lengur.
Hérna eru nokkrir óróar.

Svo á maður bara að láta verða af því að kaupa einhvern sem manni líst vel á. Hversu lengi á maður að komast upp með það að segja "ég get alveg gert svona sjálf"? 

Baby Mobile Somewhere Over the Rainbow - Baby Mobile - Modern Crib Mobile

Children mobile Waldorf inspired needle felted : The rainbow colors

CUSTOM Felt Baby Mobile - Basic 6 Strand Mobile with Custom Animals or Pet Portraits

Baby crib mobile, Monster mobile, Alien mobile, felt mobile, nursery mobile "Monster Friends"

Baby Mobile - Baby Crib Mobile - Nursery Super Heroes Mobile (You Can Pick Other Custom Heroes)

Það mætti halda að ég væri á prósentum hjá þessari síðu (Etsy) en svo er ekki. Mér þykir hún bara svo einstaklega sniðug.

Falleg íbúð í Stockholm


Mjög miðsvæðis í Stockholm er þessi fallega íbúð á efstu hæð og lofti í gömlu húsi. 
Búið er að taka íbúðina allrækilega í gegn og færa hana í nokkuð nútímalegt horf en íbúðin er bæði elegant og nútímaleg.

Myndirnar tala sínu máli.... njótið.




















Náttuglur

Ég er alveg hugfangin af handunnu barnavörunum undir merkinu Náttuglur.
Bangsarnir, skýin og stjörnurnar eru saumaðar af Silju Kristjánsdóttur, sem er textílmenntuð.

Stjarnan er spiladós, með hnappi innan í.

Skýin eru líka spiladósir, sem spila þegar þú tosar í spotta sem dinglar á meðal þæfðu marglitu "regndropana".



Hér eru svo hinar upphaflegu Náttuglur. Einstakir bangsar en enginn þeirra er eins og annar. Kúrudýr með meiru. Litlir puttar hafa gaman af því að þreifa á eyrunum og miðunum. Svo er líka bjalla innan í þeim, sem hringlar í, eins og lítið bangsahjarta.


Ef þetta eru ekki hinar fullkomnu sængur- og skírnargjafir, þá veit ég ekki hvað.
Ekta íslenskt, enda hægt að fá þær á nokkrum góðum stöðum, Ígló, Beroma/Fiðrildinu, Hótel Ísafirði, Safnbúð Listasafns Íslands, Around Iceland, Hrím og Made in Iceland.

Falleg veggfóður frá Mr. Perswall


MR. Perswall er skemmtileg netverslun sem selur öðruvísi veggfóður. Ég gleymdi mér alveg við að skoða allt það sem þeir bjóða uppá en veggfóðrin frá þeim fyrir barnaherbergin eru ótrúlega falleg. 
Búðin er sænsk svo það ætti að vera lítið mál að panta frá þeim og láta senda hingað heim. 
Ég gat varla valið úr fallegum veggfóðrum til þess að sýna ykkur hér á blogginu, það er svo mikið til hjá þeim fallegt, en þetta er bara hluti af því sem er í boði. 








NeverWet - snilldar uppfinning

Ég einfaldlega varð að deila þessu videoi með ykkur. En hér er verið að kynna á markað nýja vöru sem heitir NeverWet. Þið einfaldlega verðið að kíkja á þetta og sjá hvað þetta er mikil snilld.

Þetta er allavega snilld fyrir brussur eins og mig og ef ég giftist einhverntíman þá fæ ég mér svona til þess að gluða á kjólinn...þá helst ég pottþétt fín alla veisluna :) 



Þjóðhátíðardagur Íslands


Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru íslendingar. 
Ég eyddi deginum hér á Akranesi með dætrum mínum. Farið var eftir venjubundinni uppskrift af þjóðhátíðardegi. Keypt blaðra, sleikjó, horft á skemmtiatriði og ræðuhöld og almenn gleði hjá börnum. 
Veðrið hefði samt mátt verða betra. Það er hálfgert haustveður þessa dagana. 

En í tilefni dagsins deili ég bara með ykkur lífinu á instagram. En þið getið fylgst með mér á instagram hér.  
Myndirnar eru teknar á pallinum heima hjá mér og í ferðalögum sem farin hafa verið á þessu kuldalegu sumri. 






Svarta húsið nr. 16.


Í svörtu húsi í Barwon Heads í Ástralíu býr O´Meara fjölskyldan.
Heima hjá þeim leynist allt í bland gamalt og nýtt, hönnun og fallegir hlutir sem safnast hafa í gegnum tíðina sem og góðar hugmyndir sem hægt er að útfæra sjálfur nokkuð billega. 

Heimilið er mjög nútímalegt og fallegt en það er gaman að sjá hvernig grá steypan og svartur viðurinn blandast saman við fallega liti á heimilinu sem koma með húsgögnum og aukahlutum. 

Í eldhúsinu hjá þeim er líka skemmtileg hugmynd að hengja upp risa stórar "skálar" á veggina þannig að hljóð dempast og veggurinn er fallega skreyttur með þessum skemmtilega skúlptúr. 

Mjög fallegt heimili. 










Postulín með húmor


Hér er ótrúlega fyndið og krúttlegt postulín. Það er breskt og búið til af Camila Prada, það er gott að hafa húmor í lagi.

 Hérna fyrir ofan er Booty Shakers, fyrir salt og pipar.

 Hérna er Gold Digga, hann er sparibaukur.

 
 Sweet Mommy er sykurskammtari

Hér er Sweet Talker, sem er líka sykurskammtari.

Þetta er svo Pippy, hún er "bara" stytta.