divider

divider

SKÓR!!!

Þessir SKÓR!!! 
Já, þessir trylltu skór koma frá hönnuðinum Iris van Herpen en þeir eru aldeilis að vekja athygli í hönnunarheiminum á netinu! :) Kannski ekkert skrítið. 
Skórnir eru framleiddir í samstarfi við skófyrirtækið United Nude og eru búnir til úr trefjaplasti sem er mótað eins og einhverskonar klær eða tennur. Það eru 10 klær á hverjum skó og þær eru mjög sterkar og eiga því ekki að brotna þegar maður gengur í skónum. 
Það er einungis búið að gera prótótýpur af skónum og sýna þá með vor/sumar línu United Nude
Þeir eru ekki komnir á markað enn...og ekki víst hvort þeir muni koma á markað.. En það væri gaman að sjá þá...og einhverjar pæjur staulast á þeim :) 






Skemmtileg motta á stofugólfið :)

Nú er þannig árferði að margir flytja inn í húsin sín ófullbúin. Oftast á eftir að setja gólfefni og hurðar hjá fólki og búa því margir við það að hafa bara steypt/flotað gólfið hrátt. Margir mála það en aðrir hafa það bara steingrátt. 
Persónulega finnst mér flotuð gólf ótrúlega töff og oft langar mig bara að rífa  gólfefnið af heima hjá mér og hafa grátt gólf...eða hvítmálað. 
En fyrir þá sem eru með tímabundið steypugólf þá er þetta hér fyrir neða skemmtileg hugmynd :) Gæti rokkað upp stofuna um nokkur level :) Og fyrst það er að koma hvort eð er einhverntímann bráðlega gólfefni...þá skiptir ekki máli þó að það sé málað smá á gólfið :) 


As We Grow

As We Grow er nýtt íslenskt merki sem framleiðir falleg, vönduð ullar barnaföt sem endast. 
Þær stöllur Guðrún Ragna, María og Gréta eru snillingarnir á bak við hönnunina, en þær segja að upphafið af þessu öllu hafi fæðst út frá lítilli sögu um peysu sem fór barna á milli og var allra mesta uppáhald allra barna sem notuðu peysuna í 9 ár...og peysan er enn í notkun. 

Akkurat í þessum rituðu orðum eru þær stöllur að kynna fatalínuna sína úti í Kaupmannahöfn á sýningunni CPH Kids. 
Vonandi gengur þeim allt í haginn úti og vonandi fá þær fullt að gera í framtíðinni því að þetta eru með þeim fallegustu ullarfötum sem hægt er að kaupa á börnin sín :) 

Mig hlakkar allavega til að sjá hvað þær eiga eftir að vaxa :) 







Uppáhalds áfangastaðirnir innrammaðir.

Það gæti bara verið ótrúlega sniðugt að halda utan um alla þá staði sem þú ferðast til með fjölskyldunni þinni svona. 
Efri rammninn gæti verið t.d. road-trip sem farið var í og þá uppáhalds staðir ferðarinnar klipptir út úr kortnumu og rammaðir fallega inn í einn ramma. 
Eða ef það er einn uppáhalds staður..þá má gera stórt korta-hjarta í fallegann ramma. 

Rómantískt <3


Íslensk hönnun í barnaherbergið.

Ég er alltaf að betrumbæta og sjæna barnaherbergin...og stofuna...og hjónaherbergið...og eldhúsið... í huganum. En barnaherbergin hafa verið pínu uppáhalds hjá mér og þar getur maður alltaf á sig blómum bætt :) 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir og góðar hugmyndir fyrir barnaherbergið...og það sem skemmtilegast er, er að þetta er allt saman íslensk hönnun :) 

Þennan vegglímmiða hér fyrir neðan á Mosi Design heiðurinn af. 
Fallegt að hafa kvöldbæn fyrir ofan rúmið hjá litlu englunum okkar :) 
Þetta er komið á innkaupalistann minn... og ég skal bara segja ykkur það strax að þetta er til í Hrím á Akureyri...þær senda hvert á land sem er :) 


Þessir skemmtielgu vegglímmiðar eru frá Bimbi og koma líka í grænu og bláu. Ofsalega fallegir og skemmtilegir límmiðar sem hægt er að raða hvernig sem er og búa til sína eigin sögu :) 


Bimbi á líka heiðurinn af þessu hér fyrir neðan.. :) æði :) 


Vegghillan hér fyrir neðan er líka á óskalistanum hjá mér.. en hún er eftir Siggu Heimis og er til í Epal. 
Hún verður keypt þegar ég veit ekki hvað ég á að eyða peningum í næst :) haha... :) Yndisfögur. 


Þetta fatahengi hér fyrir neðan er líka fallegt í barnaherbergið...eða bara inn í anddyrið. Mjög fallegt og íslenskt og á rætur sínar að rekja í vísuna sem við þekkjum öll "Hani, krummi, hundur svín..." En eins og gefur að skilja þá má sjá þarna hest, mús og snjótittling.  Þetta er eftir hönnunarteymi sem fer undir nafninu Hár úr hala. Vel gert og skemmtilegt :) Fæst líka í Epal.

Bara gaman.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá kertapoka sem sérstaklega eru gerðir til þess að vera með kerti í. Ofsalega fallegir og skapa fallega stemmningu í skammdeginu. En pokarnir eru til sölu ásamt fleiri skemmtilegum  og flottum stemmningsvörum í vef-versluninni Bara gaman. 

Pokarnir eru flottir heima fyrir en svo eru þeir líka flottir í veislur ;) - Svona ef einhver er að fara að gifta sig :) 


Maude & Tilda töskur

Þessar töskur komu á markað á ný liðnu ári og eru frá merkinu Maude & Tilda. 

Þær eru skemmtilega öðruvísi, tau-pokar sem gaman er að dröslast með því að hver poki hefur segir sinn djók um allar fallegu töskurnar sem að er svo erfitt að eignast eftir dýrustu og flottustu hönnuði heims. 

Það er skemmtilegra að eiga svona frekar heldur en einhverja fake?