divider

divider

Sápukúlu-ljósakróna (Surface Tension Lamp) frá Front Design

Sænska hönnunargrúbban Front Design (mínar uppáhalds!) voru beðnar um að hanna ljós fyrir  fyrirtækið Booo, til þess að sýna á nýafstaðinni sýningu í Mílanó. 
Þær skvísur í Front hönnuðu þetta snilldar sápukúluljós. 
Surface Tension Lamp eins og ljósið er kallað hefur ekki neina krónu/skerm heldur býr það hana til sjálft jafn óðum með því að blása út röð af sápukúlum endalaust þangað til þær springa og þá byrjar ljósið uppá nýtt. Þannig að ljósið skiptir endalaust um lögun og er aldrei eins. 
Sápukúlurnar lýsast fallega upp með LED peru sem endist í 50,000 klukkustundir :) 

Þetta er bara flott! 
Tékkið á videóinu! - þetta er rosalegt!







Sumarhús í A-bústaðar-stíl :)

Þetta skruggusmarta sumarhús er komið á "einhverntímann-ætla-ég-að-byggja-bústað-langar-í-þennan" listann minn. 
Húsið er hannað af Hus og Hjem Arkitektur í Noregi og er staðsett rétt fyrir utan Osló. Ölluheldur á Nesodden rétt hjá Osló. 
Mér finnst A-bústaða stemmningin sem þessi bústaður skartar alveg gera útslagið og svo kemur smá sveigur á húsið sem geriri það enn flottara! 







Heart-Attack!

Það er eflaust þó nokkur fjöldi að fara að gifta sig í sumar :) 
Vonandi einhverjir lesendur á þessu bloggi! :) 

En hér fyrir neðan er skemmtileg OG ÓDÝR skreyting sem má gera við hvaða tilefni sem er...en hentar mjög vel við brúkaup... jafnvel útibrúðkaup eða sveitabrúðkaup! :) 

Það sem þarf til þess að gera þetta er: 
Skæri, 
Stór og fín kartön-örk, 
skál
hveiti
sigti. 

En afþví að við erum svo umhverfisvæn þá notum við hveiti en ekki hvítt spreylakk! því Hveitið rignir bara í burtu og skaðar ekki umhverfið :) 

Myndirnar tala svo bara sínu máli :) 








Bathing Girl Tea Set.

Þessir ótrúlega fyndnu bollar eru eftir hönnuðinn Esther Horchner. 
Þarna hefur hönnuðurinn teiknað stelpur sem baða sig í teinu/kaffinu sem  fer í bollann :) 
ótrúlega fyndin og skemmtileg hugmynd! :) 

Bollarnir eru til sölu á Dutchbydesign



DIY: Verkefni fyrir helgina :)

Svona ljós er ekki svo flókið að gera :) 
Það sem þarf er bolti (og boltanál til að hleypa loftir úr þegar öllu er lokið), EÐA bara blaðra. 
Held samt að boltinn gefi fallegri lögun. 
Svo þarf gott lím. Gott er að nota veggfóðurslím, en ég er viss um að hægt sé að nota hverskyns föndurlím :) 
Svo er það garn í þeim lit sem hver kýs, eða svona bómullarsnæri eins og er notað hér á myndunum fyrir neðan. 
Gott er að byrja á því að nota glas til þess að teikna hring meðfram á bolta/blöðru, en sá hringur markar það svæði sem við erum að passa að vefja ekki garn yfir. 
Þegar byrjað er þá er gott að láta bandið veltast aðeins uppúr líminu áður en því er vafið utan um boltann/blöðruna...það er ágætt að gera það bara jafn óðum og maður vefur. Svo er þetta látið harna vel og þá er loftið tekið úr bolta/blöðru og ljói komið fyrir í kúlunni :) 








DIY: Fatahengi.

Þetta fatahengi er eitthvað sem allir ættu að geta gert. OG það er stílhreint og töff :) 
Það sem þú þarft eru 5 stk. kústsköft, snæri í einhverjum flottum lit ( til skær-appelsínugult, skærbleikt  og karrý-gult í Húsasmiðjunni og Byko). 
Maður byrjar á því að setja öll kústsköftin saman í "hrúgu" og láta öll snúa eins (beint upp). Þá vefur maður utan um kústsköftin nokkuð vel og strekt og þegar það er búið þá tekur maður sköftin í sundur og lætur þau standa í allar áttir... gott er að nota trélím og smella nokkrum dropum hér og þar á milli þegar búið er að gera standinn eins og hann á að vera, þá ætti þetta ekki að fara á neitt flandur. :) 

Gangi ykkur vel! :)