divider

divider

Barnaherbergi

Ég er að safna að mér hugmyndum fyrir annað barnaherbergið á heimilinu. 
...ég get alveg gleymt mér í að skoða allskonar falleg herbergi á netinu :) 



Ég er svo hrifin af svona kósý lestrarplássi...langar svo að útbúa eitthvað hreiður til að lesa í  :) 


Brúðkaup - Myndatakan.

Myndatakan þennan stóra dag skiptir miklu máli finnst ykkur ekki? 
Ljósmyndarinn er pínulítið ábyrgur fyrir því að brúðhjónin eigi góðar minnigar sem þau geta skoðað saman eftir stóra daginn og rifjað upp. 
Oft þurfa brúðhjónin að vera búin að ákveða hvernig þau vilja hafa myndatökuna, en oft er ljósmyndarinn líka bara góður í þessu. 

Hér eru flottar myndir sem gætu gefið einhverjum hugmyndir fyrir sína myndatöku :) 





Skemmtilegir Stigar ! :)

Í eldri húsum er oft að finna fallega stiga sem gaman er að taka pínu í gegn. 
Ef börn eru á heimilinu má oft leika sér pínu með stigann eins og hér er gert fyrir neðan með tölum. 
það gæti líka verið fallegt að hafa einhverja uppörvandi kveðju sem hægt er að lesa á leiðinni upp, eins og sjá má á seinustu myndinni... sá stigi er nú reyndar ofskreyttur að mínu mati... en það gæti verið fallegt á svörtum stiga að vera með hvíta stafi. :) eða öfugt :) 
Svo má nýta stigann fyrir geymslupláss :) 






Lestrar-hreiður I

Þetta finnst mér bara ótrúlega flott hugmynd :) 
Búið að rífa burt neðriskápana og búa til lítið kósý lestrar hreiður. 
Mig langar bara pínu að vera þarna! :) 

Það er örugglega ekkert mál að útbúa svona með því bara að taka skáphurðar af og hillur úr og fá svo bara einhvern handlaginn til þess að mæta með hamarinn :) 
Mig langar í svona :) 

Líka flottur þessi rauði litur með þessu hvíta :) 



Bókahillur


Þessa snilldarhugmynd sá ég á bloggsíðunni Skreytum hús. 
En á því bloggi ræður hún Soffía ríkjum og hún bloggar um allt það skemmtlega sem henni dettur í hug að gera. 
Þessar bókahillur fást í Ikea og eru þar seldar sem Servíettustandar og kosta bara 495 kr. 

Mér finnst þetta frábær hugmynd! 

gæti líka verið flott við hjónarúmið fyrir bækurnar sem húsfrúin les :) 


DIY: Matarleikur.

Það er gaman að leika sér að matnum. 
það er líka gaman að borða mat.
En því miður þá er oftast bannað að leika sér að matnum... flestir foreldrar vilja það ekki. 
Ég held samt að það auki bara sköpunargáfu :) 

Það má búa sjálfur til flotta diska sem leyfa börnunum að leika með matinn áður en hann er borðaður... maður er líka svo miklu duglegri að borða ef maður fær að borða svona fallegann mat sem segir sögu :) 

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar :) 
Festa þarf kaup á hvítum disk og postulíns-penna. 







Brúðkaups-boðskortið :)

Yfirleitt eru boðskort í brúðkaup hvít. Úr einhverjum rándýrum hvítum glanspapprí með dúfum og giftingahringum. 
Það er alveg fallegt. En nú er kominn tími fyrir flott OG skemmtileg brúðkaups-boðskort :) Eitthvað örðuvísi. - Það er svo gaman :) - svo má flétta dúfurnar og hringana inní það :) 

Hér eru 3 sýnishorn af skemmtilegum boðskortum :) 
Þetta neðsta er náttúrulega bara geggjað. Það þarf að blása upp blöðruna til að sjá hvað stendur í "kortinu" :) Frábær hugmynd :)