divider

divider

ShWood Sólgleraugu


Verkstæðið og fyrirtækið ShWood fann ég á þeirri snilldarsíðu sem Instagram er. 
Fyrirtækið er staðsett í Portland í Oregon fylki og sérsmíðar og hannar sólgleraugu úr við.
 Viðarlit eða lökkuð..hvernig sem þú vilt hafa þau. 
Þau eru fáránlega flott! 
Væri til í ein eikar-gleraugu og ein úr hnotu. ;) 
Ég er skotin! 
Mér finnst að þau ættu að koma í sölu hér á klakanum! Enda mikil þörf fyrir fallegu sólgleraugu í þessari lágu sól sem er á veturnar :) 






Falleg íbúð í Stokkhólm


Ég þekki alltaf fleiri og fleiri íslendinga sem eru að flytjast til Stocholm í Svíþjóð. Svo falleg borg! Ein af mínum uppáhalds :) 
Þessi fallega litla íbúð er til sölu núna á besta stað í Södermalm. 35m2 af fegurð :) 







DIY: Kökufánar

Í öllu bollaköku-æðinu sem farið hefur um heiminn síðustu árin hafa margir notað fána til þess að skreyta fallegu kökurnar. Það er aðeins einfaldara en að búa til einhverjar dúllur úr kreminu. 
Fána er hægt að kaupa...og svo má líka bara búa þá til sjálfur úr fallegu límbandi. 
Hægt er að kaupa fallegar límbandsrúllur út um allt þessa dagana, og man ég þá helst eftir Tiger og Söstrene Grene...og örugglega á fleiri stöðum. 

Þetta er bara einfaldara en það sýnist. Svoleiðis er það bara! :) 



Hundalíf

Við Íslendingar erum mikil hundaþjóð. Nánast annaðhvert heimili hefur hund. En við erum þó samt ansi aftarlega á beljunni miðað við aðrar evrópuþjóðir hvað varðar að taka tillit og gera ráðfyrir hundunum okkar í daglegu umhverfi. 
IKEA í Köln í Þýskalandi leyfir ekki hunda inni í búiðinni en til að koma til móts við hundaeigendur  hafa þau komið upp Dog-Parking fyrir utan búð sína. Nokkur "stæði" fyrir utan búðina þar sem hægt er að binda hunda, þannig að þeir komast ekki í tæri við hvorn annan (enginn slagur). Hvert hunda-stæði er upphækkað og teppalagt svo að voffarnir geti lagst á mjúkt og svo má finna þar vatnsskál (hugsað fyrir öllu).
Þeir sem eru með smáhunda (eða ketti) geta svo sett þá inn í lítil hús/búr þar sem líka má finna litla vatnsskál í. 
Mér finnst þetta algjör snilld og þar sem við Svampskellingar erum báðar hundaeigendur þá vonumst við til að Ísland fari aðeins að reikna oftar með hundunum okkar.

Á neðstu myndinni fáið þið að sjá mynd af henni Míu minni þegar hún var sætur lítill hvolpur :) Nokkrum númerum of krúttleg!






Túrkís

Verslunarmannahelgin yfirstaðin og gekk vel hjá flestum held ég :) 
Það er alltaf gott að koma heim eftir smá ferðalag :) 
Eftir verslunamannahelgi ætla margir alltaf að fara að gera eitthvað og græja fyrir haustið, skipuleggja heimilið betur, henda úr skápum og svona.... mála jafnvel eitthvað falleg á heimilinu :) 
Ég fer allavega alltaf í smá breytinga-skap þegar líða kemur að hausti. 

Ég er alveg að elska svona Túrkís bláa útidyrahurð :) Kemur fallega út :) 


Hér má sjá aðra túrkísbláa... og bekk fyrir utan og fallega krítartöflu sem hægt er að skrifa skilaboð á til gesta eða frá gestum :) Svolítið skemmtileg hugmynd :) 


Little Goodall

Þessar ótrúlega fallegu kápur má finna á skemmtilegu sölusíðunni Etsy. 
Kápurnar eru handgerðar og eru mjög vandaðar og fallegar og þegar krakkarnir eru komnir í kápuna verða þau alveg ævintýraleg! 
Búðin sem selur kápurnar kallast Little Goodall og er staðsett í Texas.






Barnaherbergið

Fallegar hugmyndir fyrir barnaherbergin.
Hægt er að fá bæði hillluna með hólfunum og bókahilluna í Ikea.