divider

divider

Prettypegs

Ég bara get ekki annað en deilt þessu með ykkur :) 

Sænska fyrirtækið Prettypegs hefur nú hafið að framleiða ótrúlega fallegar húsgagna-lappir sem passa undir öll IKEA húsgögn!!:) Hversu mikil snilld er það?!? 
Það að fá nýjar fætur undir sófann, eða skenkinn í stofunni getur algjörlega breytt heildarlúkkinu í stofunni og jafnvel bara sett punktinn yfir I-ið :) 

Mér finnst þetta æði :) Er alveg skotin! 

Skemmtilegt frá því að segja að ef þú kaupir tvílitar viðarlappir frá PrettyPegs undir skenkinn þinn, og vasann Keilir (sjá fyrri færslu), eftir Guðrúnu Vald. þá er bara allt í stíl undir og uppá skenknum :) 




Guðrún Vald. - Design

Guðrún Vald. kynnti skemmtilegar og fallegar nýjungar frá sér á Hönnunarmarsinum um helgina. 

Ný vara kom frá henni sem hún kallar Keilir. 
Keilir eru kertastjakar gerðir úr mahóný við og svo málaðir að ofan. 
kertastjakarnir koma í 3 stærðum. 

Fallegir :) 


Svo eruð það kubbarnir sem komu á markað á seinasta ári, en þeir voru til sýnis í Ólátagarði.



Til hamingju með þetta Guðrún Vald. :) 

HönnunarMars-ipan

Í dag hófst Hönnunarmarsinn með pompi og prakt út um allan bæ í Reykjavík. 
Ótrúlega mikið af spennandi sýningum hér og þar um miðbæ Reykjavíkur og margt fallegt að sjá.

Í Ár verður endurkoma á HönnunarMarsipaninu fallega og bragðgóða sem kynnt var á hönnunarmarsinum í fyrra. En í ár eru smá breytingar á.  Marsipanið er blátt og bleikt til skiptis og er til styrktar Krabbameinsfélaginu. 

ALLIR AÐ KAUPA!!! 

Hönnunarmarsipanið er hannað af þeim Örnu Rut Þorleifsdóttir og Rán Flygenring í samstarfi við Sambó. 


Hægt er að kaupa Hönnunarmarsipanið á eftirtöldum stöðum: 

Forréttabarinn, Nýlendugötu 14
20BÉ, Laugavegur 20b
Hrím Hönnunarhús, Laugavegi 25
Kiosk, Laugavegi 65
Kraum, Aðalstræti 10
Minja, Skólavörðustíg 12
Netagerðin, Nýlendugötu 14
Vínberið, Laugavegi 43


Lýsing frá Tom Rossau

Falleg lýsing getur gert mikið fyrir rými.
Hinn danski Tom Rossau býr til loftljós, borð-/gólflampa úr birki.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um þetta, ég er mjög hrifin.


Þrjár mismunandi stærðir af loftljósum og gólflampi, sem er að auki borð.
Borðlampi og gólflampi úr sömu línu og hér fyrir ofan.

Og svo þrjár mismunandi týpur af loftljósum.

Hjarta-dúskar á bandi :)


Ég geri ráð fyrir að einhverjar sem lesa bloggið mitt ætli að gifta sig í sumar :) 

Ég ætla að henda inn svona stundum og stundum einhverjum hugmyndum sem hægt er að framkvæma sjálfur fyrir brúðkaup, ódýrt og skemmtilegt :) - föndur sem má dúllast í á meðan veturinn ræður enn ríkjum :) 

Hér má sjá falleg hjörtu sem má skreyta með.... og það sem þarf eru hjörtu sem klippt eru út úr fallegum pappír (eða fallegu tau-efni) og saumavél. 

Í hvert hjarta þarf 4 hjörtu og best finnst mér að klippa bara öll hjörtun jafn stór til að byrja með, taka svo hjarta nr. 2 í "dúskinum" og minnka aðeins og svo koll af kolli með skærum. Svo notar maður hjörtun sem minnkuð voru sem skapalón fyrir fleiri hjörtu þannig að öll hjörtun verða eins í laginu. 
Það má líka hafa 7 hjörtu í hverjum "dúsk". En þá eru höfð minni hjörtu báðu megin við stærsta hjartað og svo saumað saman í miðjunni. 




Fallegt og fínt frá Stokkhólmi :)

Hendi bara inn nokkrum myndum af fallegum hlutum frá Design Week. 
Er ekki að finna upplýsinarnar sem ég hafði um þessa hluti hér fyrir neðan... en þið megið  nú samt sjá fallegu hlutina sem ég tók myndir af :) 

Er að elska fatahengið á neðstu 2 myndunum :) 

En hér á myndinni fyrir neðan má ská eldhúsborð sem hægt er að rækta kryddjurtirnar sínar í þarna í miðjunni...svo vaxa þær upp um lítil göt sem mynda fallegt skandínavískt prjónamynstur, átta blaða rós :) 



Hér fyrir neðan má sjá barnaleikföng




Stockholm Design Week - Greenhouse/VIA University College.

Greenhouse er nafið á salnum sem að mínu mati er mest spennandi á sýningunni í Stokkhólm. Þar sýna ungir hönnuðir og nemendur í skólum héðan og þaðan frá Evrópu. Reyndar var þarna einn bás alla leið frá Kína, eins og sást í seinustu færlsu. 

En hér fyrir neðan má sjá 3 fallega hluti sem nemendur frá Teko, VIA University College frá Danmörku sýndu í Greenhouse. 

Hér fyrir neðan má sjá húsgagn eftir hana Ingu Sól Ingibjargardóttir, Askur. 
Askur er svona það sem kallast multifunctional furniture og er bæði borð, sæti eða geymsla fyrir ýmislegt smálegt sem ekki má týnast. 



Fyrir ofan: Leikfang eftir Michael Lindgaard Sörensen sem kallast SJOVERT. 
Sjovert er leikfang hannað út frá gamalli danskri hönnun og leikföngum eins og "apans"sem að Kay Bojensen hannaði hér um árið. Leikfangið er hugsað fyrir allan aldur og færi mjög vel t.d. í stofunni minni :) - ég varð mjög skotin í þessu leikfangi. 
En það eru semsagt samsett af 7 mismunandi hlutum sem allir hafa segul og svo getur hver og einn leikið sér. 

Fyrir neðan: Borð sem hannað er af Pernille Rask sem nefnist SWAP. 
Með borðinu fylgja 3 aukahlutir til þess að prýða borðið með. Skál sem hægt er t.d. að geyma ávextina í, hitaplatta til þess að verja borðið frá heitum hlutum og vasa fyrir öll fallegu blómin sem ættu alltaf að prýða heimilið :)  En allir þessir aukahlutir eru eins í laginu og falla því allir ofan í eina litla "holu" sem búið er að fræsa ofan í borðið á einum stað. Svo skiptir maður bara út eftir því sem á við. :) 


Það mun týnast inn hér hægt og rólega frá sýningunni :)