divider

divider

Rómantískt hár.

Finnst svo fallegt að hafa svona rómantískar hárgreiðslur. Þær hitta beint í mark hjá mér :) 
Verst hvað mitt hár er erfitt viðureignar sökum þess hversu þykkt það er... 


DIY: Ljósastjakar

Þessa fallegu ljósastjaka er ekki bara auðvelt að gera...það ætti líka að kosta lítið :) 
Það er fallegt að vera með svona gamlar byggingar í svarthvítu, lýstar upp í glugganum í skammdeginu... svona núna þegar að blessuð jólaljósin eru farin eða að fara. 


Það sem til þarf eru útprentaðar myndir af gömlum fallegum byggingum. Eða þá bara að nýta myndir úr tímaritum, auglýsingum eða annað. 
Svo þarf góð skæri eða góðann hníf, límband og svo til þess að forðast eldsvoða þá er best að nota svona  batteríis-sprittkerti. Þau eru til út um allt nú til dags. 


Svo er að byrja að klippa. Útlínurnar af byggingunni klipptar þannig að himinn fari af og svo er líka svakalega flott að skera út gluggana í húsinu..þannig að það lýsi eins og það sé kveikt inní húsinu :) 


Þá er límbandið notað til að líma þetta í hring. 




Afskaplega fallegt og skapar kósý stemmningu :) 

Shuffle Table

Ég var ábyggilega ekki búin að sýna ykkur þetta gull og gersemi. Þvílíka Djásn sem þetta borð er. 
Er búin að horfa á það núna í um ár og græt næstum alltaf... yfir því að eiga það ekki. 

Borðið ber nafnið Shuffle Table og er eftir norska hönnuðinn Miu Hamborg. Framleitt af danska fyrirtækin &Tradition

Þetta borð er svo mikið ÉG eitthvað.... LOVIT!


5 o'clock

Nika Zupanc útskrifaðist frá listaháskólanum í Ljubljana í Slóveníu árið 2000. Síðan þá hefur hún gert ótal margt og hannað fyrir mörg hönnunarfyrirtæki.
Þessa húsgagnalínu gerði hún í samstarfi við Moooi og nefnist hún 5 o'clock.

Frekar stílhrein húsgögn og mynstrið, sem minnir mann óneitanlega á skreytingar á gömlu postulínsbollunum, nýtur sín virkilega vel.


Leikum okkur að matnum :)

Það var nánast sagt við mig í hverjum matartíma þegar ég var lítil "EKKI LEIKA ÞÉR AÐ MATNUM". 
Ég var alltaf strax farin að búa til eitthvað úr matnum... af því að það er einfaldlega skemmtilegra að borða mat sem lítur út eins og eitthvað skemmtilegt...og svo borðar maður alltaf allt saman af því það er svo skemmtilegt :) 
Ég skil því dóttir mína mjög vel þegar hún fer að búa til eitthvað... sem er svosem ekki ekkert svo oft því að ég er ansi dugleg að skreyta diskana hennar áður en hún fær þá... og með því móti borðar hún mun meira :) 
Hér eru nokkrar skemmtilegar hugmydir. 

Langar líka að segja ykkur frá Bento boxes....en það er voða í tísku núna (í útlöndum) að senda börnin með fallega skreytt nestisbox í skólann... sem eru eitthvað. Þarna má sjá eitthvað af nestishugmyndum...en ég hvet ykkur til að googla "Bento boxes". Því það er gaman að skoða þessa vitleysu :) 








Árið 2011

Ég hef tekið saman uppáhalds myndirnar mínar og færslur fyrir liðið ár, hvern mánuð fyrir sig. 
Svona smá upprifjun á árinu hér á blogginu er bara nokkuð skemmtileg :) 

 Janúar var uppfullur af Do-It-Yourself verkefnum og góðum hugmyndum sem alltaf er gaman að glugga í og nýta sér.
Í Febrúar skoðaði ég mikið fallega hönnun.

HönnunarMarsinn stóð uppúr í Mars, en þá má segja að Íslensk hönnun blómstri með sýningum útum alla borg.  Auðvitað stendur uppúr frumsýning okkar stallna á Örflögum í Norræna húsinu á hönnunarmarsinum :) 



Apríl var rólegur, enda svo mikið um að vera í mánuðinum á undan í hönnun.
En í Maí fór allt að blómstra og fallegar, sumarlegar myndir hófu að hlaðast inn á bloggið :)


Í Júní keypti ég mér klukkuna Cuckoo sem prýðir stofuna mína... hjá mér stendur það uppúr enda líka svo ossalega gaman að eiga svona fallega hluti. Sumarið var í hávegum og allir í fríi :) 
Júlí var einnig frekar rólegur, enda sumarfrí og slökun hjá bloggara og lesendum. En eitt er víst að Hidden Animal Teacups fóru á "langar í " listann minn...og eru þar enn. 


 Í Ágúst fór allt af stað aftur, bæði í hönnunarheiminum og á blogginu mínu. Mikið um dýrðir og fallega hönnun sem vert er að skoða:)
September var mjög annasamur mánuður hjá mér sökum þess að við kallinn vorum að leggja lokahönd á veitingastað sem við opnuðum í lok mánaðarins.

Október var líka mjög annasamur mánuður, enda veitingastaðurinn Galito ný opnaður og mikið um að vera þar. Lífið snérist um það þann mánuðinn.



Eins og alltaf þá voru Nóvember og Desember ótrúlega skemmtilegir og uppfullir af góðum hugmyndum fyrir jóla-föndrið, jólabaksturinn, hugmyndum af gjöfum eða hvernig flottast væri að pakka inn gjöfunum :) 


Ég þakka bara ykkur frábæra fólki sem fylgist með blogginu fyrir að lesa og lofa að árið 2012 hér á blogginu mun bjóða uppá góða og skemmtilega lesningu, frábærar hugmyndir og fjör. 

Postulín

Anne Black er dönsk listakona, með vinnustofu í Kaupmannahöfn. Hún útskrifaðist úr Listaháskólanum í Kolding 1996 og hefur síðan þá gert postulínið að sínu aðal vörumerki. Það er hægt að gera ýmislegt annað en fína kaffibolla úr postulíni.

Hér er ein vörulínan hennar.
Skemmtilegar flísar sem eflaust væri hægt að leika sér með. Ég er sérstaklega hrifin af munstrinu með hinu klassíska viskustykkja munstri.
Svo get ég auðvitað ekki sleppt veggskrautinu. Ég held að ég sé sjúklegur veggskraut safnari...eða ég væri það ef ég léti allt eftir mér. Þarf þá líklega ekki að nefna það að ég væri alveg til í að eignast svona fugl á vegginn hjá mér.