divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Hvítt. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Hvítt. Sýna allar færslur

Heimilis-innblástur

Á miðvikudegi sem þessum, þar sem ég sit við eldhúsborðið og læri og hlusta á rokið úti þá er um að gera að taka sér pásu og skoða fallegar myndir. Hér eru nokkrar myndir sem veita mér örlítinn heimilis-innblástur. Ég held að ég verði að fara að fá mér fallega plöntu í pott til þess að lífga uppá stofuna mína. Það er ótrúlega fallegt að hafa smá grænt með.

Seinnipartinn ætla ég svo að skunda til Reykjavíkur, draga í mig smá menningu, kíkja í miðbæinn og enda svo í saumaklúbb með skemmtilegustu skvísum landsins þó víðar væri leitað. Tilhlökkun er á háu stigi...enda hef ég bara setið heima í náttbuxum að skrifa ritgerð síðustu daga. Morkn. 





Allt sem er hvítt hvítt...




Það er eitthvað við hvít rými sem fær mig alveg til að vera agndofa... 

...kannski er það árferðið og snjórinn sem loksins kom?