divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Arkitektúr. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Arkitektúr. Sýna allar færslur

Fögur hús um landið

Hofsós

Síðastliðnar tvær vikur hef ég verið á flakki um landið okkar fallega í sumarfríi með manni, börnum og vinum. Ég sá margt ótrúlega fallegt enda ekki furða þar sem landið okkar fallega leynir á fögrum stöðum hvert sem litið er. En þrátt fyrir fallegt landslag (sem ég tók jú líka myndir af) þá heillaðist ég mjög af fögrum húsum sem ég átti leið framhjá um allt land. Þannig æxlaðist það að ég fór að "safna húsum"...sem er mjög skemmtileg iðja. Börnin mín fóru að taka eftir þessu blæti mínu og fóru að hjálpa mér að finna fyndin, skemmtileg og falleg hús til þess að taka myndir af hvert sem við fórum manninum mínum til mikillar gleði (hann keyrði yfirleitt bílinn). "STOPPUM HÉR! - TÖKUM MYND AF ÞESSU HÚSI!! - SNÚA VIÐ!" heyrðist reglulega í aftursætinu og stundum var eins og við ætluðum aldrei að komast áfram þar sem margir bæjir landsins luma á svo mörgum fögrum og skemmtilegum húsum. 
Meðfylgjandi eru myndir af uppáhalds húsum þessarar ferðar...og eitt hús fær að fylgja með sem ég tók mynd af í fyrra en fyrir neðan myndirnar má sjá hvað húsin eru að finna. 

Gæti verið að ég hafi eignast nýtt ferðaáhugamál ;) 

Hofsós

Húsavíkur kirkja

Skriðuklaustur

Seyðisfjörður

Seyðisfjörður

Eskifjörður

Reyðarfjörður

Berufjörður 
(leiðréttið mig ef þetta er vitlaust hjá mér)


Höfn

Víkingaþorpið á Höfn

Trjákofi í Atlavík

Skagaströnd

Svarta húsið nr. 16.


Í svörtu húsi í Barwon Heads í Ástralíu býr O´Meara fjölskyldan.
Heima hjá þeim leynist allt í bland gamalt og nýtt, hönnun og fallegir hlutir sem safnast hafa í gegnum tíðina sem og góðar hugmyndir sem hægt er að útfæra sjálfur nokkuð billega. 

Heimilið er mjög nútímalegt og fallegt en það er gaman að sjá hvernig grá steypan og svartur viðurinn blandast saman við fallega liti á heimilinu sem koma með húsgögnum og aukahlutum. 

Í eldhúsinu hjá þeim er líka skemmtileg hugmynd að hengja upp risa stórar "skálar" á veggina þannig að hljóð dempast og veggurinn er fallega skreyttur með þessum skemmtilega skúlptúr. 

Mjög fallegt heimili. 










Fallegt heimili úr fortíðinni.

Á fasteignavef morgunblaðsins er til sölu Brúnastekkur í 109 Reykjavík. 
Húsið er eins og safngripur frá árinu 1985 eða fyrr því þarna er vart að finna nokkur einasta hlut sem nútíma samfélag segir að maður verði að eiga. 
Ég er einfaldlega orðin ástfangin af þessu húsi og ég væri meira en til í að fara þangað inn og skoða :) Stíllinn hjá húseigundunum hefur á sínum tíma verið mjög úthugsaður enda hefur heimilið elst vel og á myndum að sjá er allt þarna inni eins og nýtt. 
Eina stílbrotið sem ég fann af myndunum sem hægt er að skoða á fasteignavefnum er kaffikannan sem er frekar nýleg og stendur uppá borði í eldhúsinu.
Húsið er risastórt, heildir 533 fermetrar og það eru settar litlar 63 millj. á húsið sem er nánst gjöf en ekki gjald fyrir hús að þessari stærðargráðu. 

Skrifstofan er í sérstöku uppáhaldi hjá mér þar sem hvorki er að finna tölvu né sjónvarp. Skrifborðsstóllinn er ofsalega fallegur og hvernig raðað er á borðið gömlum síma, fána og lampa er bara eitthvað svo fallegt :) Algjört uppáhald. 









A-bústaða rómantík

Það er einhver vorhugur kominn í mig nú þegar að jólin eru búin og hækkandi sól á himni. Ég er farin að láta mig dreym um sumar og sól í sveitalofti. 

Ást mín á A-bústöðum fer bara vaxandi. Ég bara fæ alltaf pínu sting í hjartað þegar ég skoða þessa bústaði. Þeir eru bara svo fallegir og kósý. 

Hér fyrir neðan eru nokkrir sem ég er skotin í. 





Viðbyggingin á bústaðnum hér fyrir ofan er ofsalega falleg lausn til þess að stækka bústaðinn. Ég er sjúk í þennan bústað! ;) 



Sumarhús

Mig dreymir um að eignast fallegt hús uppí sveit til þess að eyða helgunum (og jafnvel líka öðrum dögum vikunnar). Kósý kot sem ég get alveg gert að mínu og haft eins og ég vill. Reyndar þarf ég fyrst að vinna í lottóinu :) 
En þetta útlit og þessi kofastemmning sem þessi sumarhús hér fyrir neðan hafa heilla mig alveg uppúr skónum. Ég fæ pínu illt í hjartað...mig langar svo að eiga svona í sveitinni :) 



New York I - Hótelið.

Við skötuhjúin skelltum okkur til New York um síðustu helgi. Það var æði!
Við gistum á ótrúlega mikið sraight friendly hóteli 42st. rétt hjá Times Square í midtown. Mjög miðsvæðis.  Þar unnu bara fallegir karlmenn og þar gistu nánast bara karlkyns pör...og það var æði að vera þarna, þrátt fyrir að vera gagnkynhneigð. Lítið hótel og mjög svona öfgafull 2007 hönnun þar.. allt svart og hvítt og space-að :) En það var frábært að vera þar og ofsalega lang bestu rúm sem ég hef lent í á hóteli áður. Sem er jákvætt...því maður þarf á góðu rúmi að halda í NY :)
Hótelið bauð líka uppá falleg úti-garðasvæði inni á hótelinu og ofsalega frábært spa sem örugglega er næs að slappa af á í góðu veðri og sóla sig.
Hótelið heitir The Out NYC


(Fyrir ofan) Hótelið er bara 3 hæðir, en með risa RISA stórum skemmtistað í kjallaranum. Við urðum ekkert vör við læti frá skemmtistaðnum, enda lögreglustöð í húsinu við hliðiná hótelinu.
(Fyrir neðan) Lobbýið á hótelinu séð frá innganginum. - mér fannst stundum eins og ég væri í einhverju geimskipi...haha!




(Fyrir ofan) Herbergið sjálft var mjög rúmgott og fínt. Góð loftræsting og fáránlega góð rúm... einfaldlega bestu rúm sem ég hef sofið í á hóteli til þessa. Herbergið var allt svart og hvítt og space-að í takt við allt hótelið. Við kveiktum nánast ekkert á sjónvaprinu, en það var stórt sjónvarp með fullt af stöðvum og þar á meðal einni stöð sem sýndi beint frá skemmtistaðnum í kjallaranum...þar gat maður séð fullt af karlmönnum sem voru berir að ofan..haha! :) 
(fyrir neðan) Herbergin voru mjög flott og baðherbergin rúmgóð og fín. Það var risastór spegill inní sturtunni sem ég skildi ekki alveg hvert notagildið var, sökum þess að ef þú ert í heitri sturtu, þá sést ekki neitt í spegilinn vegna móðu. En kannski er tilgangurinn ekki sá sami og ég hélt...? hver veit? :) 




Á jarðhæðinni, við innganginn var líka þessi voða fíni veitingastaður sem framreiddi mjög góðann mat. Og eins og með allt þarna, þá unnu bara mjög myndarlegir dillibossar þarna sem gaman var að horfa á.... og þeim fannst líka voða gaman að horfa á manninn minn. 
Það var mikið hlegið af öllum sénsunum sem Hilmar minn komst á þarna á hótelinu. 

En frábært hótel í alla staði og ég mæli hiklaust með því fyrir þá sem eru að fara til NY :) 


Sumarhús í A-bústaðar-stíl :)

Þetta skruggusmarta sumarhús er komið á "einhverntímann-ætla-ég-að-byggja-bústað-langar-í-þennan" listann minn. 
Húsið er hannað af Hus og Hjem Arkitektur í Noregi og er staðsett rétt fyrir utan Osló. Ölluheldur á Nesodden rétt hjá Osló. 
Mér finnst A-bústaða stemmningin sem þessi bústaður skartar alveg gera útslagið og svo kemur smá sveigur á húsið sem geriri það enn flottara! 







A-Bústaður

Ég er alltaf frekar heit fyrir A-bústöðum og mig hefur alltaf dreymt um að eignast einn slíkan. Helst vil ég þó byggja minn eigin með öllu því sem mig dreymir um innanstokks :) Það verður vonandi einhverntímann :) 
En þessi A-bústaður eftir hann William O'Brien Jr. arkitekt kemst rosalega nálægt því að vera eins og bústaðurinn sem mig dreymir um :) - til þess að uppfylla mínar þarfir þar bara örlitlar breytingar á miðju byggingunni :) 

Fallegt :)