divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Fyrir/eftir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Fyrir/eftir. Sýna allar færslur

Notað verður nýtt.


Jæja, þá mun bloggleysið hætta. Nýja tölvan mín reyndist vera örlítið gölluð, en hún var að koma úr viðgerð og þá er hægt að fara að skrifa um allt það sem hlaðist hefur upp hérna á skrifborðinu hjá mér :)

Systir mín á 11 stk. af svona gömlum eldhússtólum sem við erum að lappa uppá.  Við erum að hugsa um að mála helminginn af stólunum hvíta og hafa helminginn af þeim gráa.  Eftir að búið er að mála stólana lífga þeir aldeilis mikið uppá "stofuna" í gamla húsinu sem hún og maðurinn hennar eru að gera upp í sveitinni. Húsið sem þau byrjuðu að taka í gegn vorið 2012 leit út eins og eyðibýli til að byrja með en er að taka hægt og rólega á sig betri mynd. - ég leyfi ykkur að fylgjast með breytingum þar bráðum þegar búið er að klára að múra og mála :) 



Vinsælustu bloggfærslur ársins 2012 á Svampinum

Í forvitni minni fór ég að skoða hvaða færslur voru mest skoðaðar árið 2012. 
Ég tók saman 4 vinsælustu færslurnar :) 

Allra vinsælasta færslan árið 2012 var skrifuð í Janúar 2012 og var... daddararammm....




Færslan sem var næstmest skoðuð var tekin saman í maí mánuði og er bara nokkuð áhugaverð líka...sérstaklega fyrir pæjur ;) 



Í febrúar skrifaði ég um þessa íslensku barnafatalínu sem er alveg algjört æði. 




Og síðast en ekki síst var það barnaherbergi dóttur minnar sem ég tók í gegn og bloggaði um það í nóvember :) - þarna á myndinni má einmitt sjá glitta í bænina sem er á myndinni hér að ofan.





Fyrir/eftir - Barnaherbergi

Barnaherbergið hjá yngstu heimasætunni hefur of lengi verið sett á bið. Það var löngu kominn tími til að taka herbergið hennar í gegn, enda hafði ekkert verið gert þar inni síðan við fluttum og henni komið þar fyrir án þess að laga það til. 
En nú í haust var herbergið tekið í gegn, málað og lagað til, breytt og bætt... það er reyndar ekki alveg tilbúið, en kósýhornið okkar þar sem við lesum fyrir svefninn er orðið klárt.  Herbergið er pínulítið, svo það er pínu vandaverk að raða inn í það svo það verði líka pláss fyrir dömuna að leika :) 

Hér fyrir neðan má sjá hvernig herbergið leit út fyrir breytingar. Hillurnar á veggnum voru þarna frá fyrri eigendum. 


Húsbóndinn tók við af mér að mála. En það er mín tækni til að fá hlutina gerða, að byrja bara á þeim þegar bóndi er ekki heima...þá neyðist hann til að hjálpa mér að klára þegar hann kemur heim... eins og málningarvinna og annað sem honum finnst ekkert skemmtilegt :) - annars gerist aldrei neitt :) 


Við erum bara voðalega ánægð með útkomuna á þessu litla horni. 
Á litla hvíta veggnum við hliðiná glugganum er lítil bæn frá Mosi Íslensk hönnun, límmiði sem keyptur var í Hrím. Bleiku fiðrildin eru frá Laura Ashley. Bréfdúskarnir voru keyptir í Söstrene Grene, þeirri flottu búð :) Og hvítu hillurnar fengust í eldhúsdeildinni í IKEA og kosta þær heilar 790 kr.  Ég reyndar málaði þær hvítar því þær koma í viðarlit.


Ég mun einhverntímann pósta restinni af herberginu þegar allt er klárt. :) 
Veit þó ekki hvenær það verður.

Heimilisfrúin

Vinkona mín hún Hildur Arna hefur hafist handa, ásamt eiginmanni sínum, við að klára húsið sem þau hafa byggt, herbergi fyrir herbergi. Húsið var í raun tilbúið og þau löngu flutt inn, en það var svona eitt og annað inní húsinu sem átti eftir að ditta að. 
Á meðan að á ferlinu stendur ákvað Hildur að stofna blogg og blogga um allt 
ferlið frá A- Ö. 
Planið er að vinna þetta eitt rými í einu á nokkrum mánuðum og einbeita sér sð því að klára hvert og eitt rými alveg til enda. 
Hér má sjá barnaherbergi sem hún og maðurinn hennar unnu að og kláruðu í seinustu viku. 

Mjög vel heppnað. 


  Fyrir. 



Eftir. 




Endilega fylgist með þessu hjá þeim...þetta er allt voða spennandi. 
Og flottar hugmyndir þarna :) 

Fyrir & Eftir

Þessi fallegi eikarskápur var tekinn í gegn af ferðamömmunni á TravelingMama
Hún var frekar óviss með litinn og prufaði hvítann áður en hún ákvað svo steingráann. 
Skápurinn breyttist alveg ROSALEGA mikið við þetta og varð bara þokkalega huggulegur! :) 
Eru ekki einhverjir þarna úti sem eiga fullt af eikarhúsgögnum sem þeir hafa fengið leið á?