divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Innlit. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Innlit. Sýna allar færslur

Litla Hönnunar Búðin í Hafnarfirði.


Ég gerði mér ferð í Hafnarfjörðinn síðastliðinn þriðjudag og kíkti þar á Strandgötuna. Þar er að finna mikið af skemmtilegum búðum sem gaman er að kíkja í en ein af þessum skemmtilegu búðum er Litla Hönnunar Búðin.  Það er ekki hægt að segja annað en að ég heillaðist strax af þessari búð bara með því að skoða í gluggann. Þegar inn var komið var ég aldeilis ekki svikin en þar var heill hellingur af fallegum hlutum sem gaman var að skoða og láta sig dreyma um. Þar má finna allskonar skemmtilega hönnunarvöru í sambland við listmuni og fallega grafík. Verk eftir búðareiganda og fleiri íslenska listamenn og erlenda hönnuði. Ég fékk að smella af nokkrum myndum til þess að sýna ykkur og ég stóðst ekki mátið og fjárfesti í fallegum pappírs-nashyrning sem ég ætla að setja saman og hengja upp í stofunni minni. 
Ég get ekki annað en sagt að það er alveg þess virði að fá sér rúnt í Hafnarfjörðinn, kíkja í kaffi á Súfistann og taka rölt eftir Strandgötunni, skoða í búðirnar skemmtilegu, láta sig dreyma og jafnvel fjárfesta í einhverju fallegu :) Dásamleg uppskrift af góðum degi :) 







Back to the 70's

Þessi fallega eign er ný komin í sölu hér á Akranesi. Þegar myndirnar eru skoðaðar þá má sjá að litlar breytingar hafa verið gerðar á húsinu frá upphafi og því hefur það ótrúlegan sjarma yfir sér. 
Ég skoðaði þetta hús fyrst í gær á fasteignir.is og heillaðist alveg. Kopar arininn með þessum grænu flísum er hreint alveg magnaður. Ótrúlega fallegur. Sérsmíðaðar innréttingar sem skilja af stofu og borðstofu ásamt þessum skemmtilega karrýgula bekk. 
Vá! - ég bara get ekki sagt annað! Þetta er eins og að fara 40 ár aftur í tímann! :)
Og sjáiði hvað eldavélin er krúttleg! ;) Jimundur minn hvað þetta hús er fínt!

Það má skoða fleiri myndir hér







Heima hjá Elínu Kling

Elin Kling er fræg fyrirsæta, tískubloggari og ritstjóri sænska tímaritsins STYLEBY. Elin hefur verið mjög farsæl í starfi og er fyrsti tískubloggari í heiminum sem hefur hannað sína eigin línu fyrir H&M og ferill hennar verður alltaf bara æ farsælli. En ég ætla ekki að rekja feril hennar hér... að öðru..

Nú hefur Elin sett litlu íbúðina sína í Stockholm á sölu en hér fyrir neðan má skoða myndir af íbúðinni hennar.  Mjög falleg og minimalisk íbúð sem ber samt pínu vott um að þarna búi einhver sem lítið er heima. En vegna vinnu sinnar hefur Elin þurft að ferðast mikið um heiminn og er því ekki mikið heima.
























Fyrir/ eftir - Stofuveggurinn.


Ég keypti þennan fagra gamla skenk fyrr á þessu ári og hef verið að velta veggnum fyrir ofan skenkinn mikið fyrir mér. Vildi ég setja hillur eða vildi ég hengja upp myndasafn, mála vegginn í lit eða ekki...? Miklar pælingar og ég er búin að sofa ansi mikið á þessu. Nú nýlega ákvað ég að hengja upp samansafn af fallegum myndum og skrauti eftir ættingja, íslenska listamenn og hönnuði. 
Hér fyrir ofan má sjá hvernig veggurinn hefur verið nánast frá því að skenkurinn var keyptur og fyrir neðan má sjá hvernig hann er núna. 



Stóra myndin með rauða hestinum er eftir Nínu Dögg dóttir mína en hún málaði þessa mynd þegar hún var 4 ára að verða 5 ára gömul í leikskólanum. Ég heillaðist strax af þessari mynd og lét ramma hana inn *stolt*.  Brúna spýtan vinstra megin við stóru myndina (sést betur hérna fyrir neðan) er spýta sem ég fékk að eiga hjá steinsmiðjunni S. Helgason í einhverri heimsókninni þangað. Spýtan hefur fylgt mér í nokkur ár en aldrei átt neinn sérstakan samastað þar til núna. Ég elska hana svolítið mikið. 
Hvíti diskurinn fyrir neðan spýtuna er eftir ungan sænskan hönnuð og hefur að geyma spor eftir fugl sem borðaði af disknum. Jón í lit trónir þarna efst fyrir ofan fallegu myndina eftir Unni Jónsdóttur listakonu. Málverkið í brúnu tónunum er svo eftir hann fænda minn Vigni Jóhannson listmálara en myndirnar hans fást m.a. í Gallerí List í Skipholtinu. Myndin sem er innrömmuð með gulu límbandi á vegginn er mynd sem fylgdi með einhverju blaði sem ég keypti. 


Miss Ko - París


Einn af þeim skemmtilegu veitingastöðum sem ég heimsótti í París var veitingastaðurinn Miss Ko. Staðurinn er hannaður af hinum heimsfræga hönnuði Philippe Starck. 
Hönnun staðarins á að gefa fólki örlitla upplifun á asíska menningu og þann ævintýraheim sem þar er að finna. En staðurinn er bæði frekar hrár og yfirþyrmandi. Lýsingin er frekar dimm-rauð þarna inni en svo gefur barinn frá sér ljós þar sem að allur barinn er sjónvarpsskjár með milljón "litlum sjónvarpsstöðum".  Veggirnir eru allir flúraðir japönskum ævintýraheim og borðin eru frekar þétt. Allt þetta á að veita manni örlitla innsýn í götumenningu fjölmennustu borga Asíu.  
Miss Ko er staðsettur á besta stað í bænum eins maður segir, en hann er við aðal verslunargötu Parísar sem nefnist Champs-Elysées við hliðná Louis Vuitton tískuhúsinu. Þegar maður gengur út af staðnum eru öll helstu tískuhúsin rétt hjá ásamt því að hinn fagri Sigurbogi blastar sínu fegursta við enda götunnar nokkrum skrefum frá. 

Maturinn var mjög góður og matseðillinn var fjölbreyttur. Við fengum mjög gott sushi í forrétt ég fékk góðan kjúklingarétt í aðalrétt sem var bara mjög góður og asískur. 
Þegar okkur var svo réttur eftirréttaseðilinn þá leit hann út eins og vegabréf miss Ko og var alveg einstaklega fallegur. Tók því miður ekki mynd af honum, en vonandi bæta aðrar myndir það upp. 

Verðlagið var kannski frekar í hærra lagi miðað við það sem við eigum að venjast þegar við förum til útlanda, en ætli það hafi ekki bara verið svipað og við erum að rukka hér heima á vinsælum veitingastöðunum.









Barnaherbergi


Mig langar svo til þess að sýna ykkur þetta fallega barnaherbergi hjá bloggaranum Chloé en hún er mikill origami pappírslistamaður. Barnaherbergið er málað í fallegum litum og veggurinn með þríhyrnda munstrinu kemur ákaflega fallega út. Mjög góð hugmynd. 
En það sem heillaði mig mjög við herbergið er litasamsetningin og fallegu pappírskanínurnar fyrir ofan rúmið. - Þetta kallar á ferð á bókasafnið eftir origami bókum. Svo eru púðarnir í barnarúminu hrikalega flottir og ekki mikið mál að gera svona dúska-púða ;) 





Bloomingville


Ég kíkti í saumaklúbb til góðrar vinkonu í gær og sá þar þessar fallegu hillur frá Bloomingville uppá vegg hjá henni. Hillurnar eru ofsalega fallegar og komu rosalega vel út á veggnum hjá Elfu enda mikil smekk manneskja þar á ferð :) 
Hillurnar fást í Hrím hönnunarhús og Húsgagnahöllinni og svo má skoða allt það fallega sem fæst undir merkinu Bloomingville á heimasíðunni þeirra. 

Hér fyrir neðan má sjá nokkra fallega hluti frá Bloomingville sem ég varð svolítið skotin í  :) 

Góða helgi gott fólk.



Salt Eldhús


Síðastliðinn þriðjudag fór ég ásamt skemmtilegum skvísum á námskeið hjá Salt Eldhús. Við lærðum þar hjá henni Auði í Salt að gera franskar makkarónur sem samkvæmt Auði eru mikil vísindi. Að baka franskar makkarónur er ansi flókin iðja og nauðsynlegt að fara vel eftir uppskrift þegar bakað er. En það sem skiptir ekki minna máli er rakastig í loftslaginu og því er nær ómögulegt að baka makkarónur ef það er rigning úti.  
Þegar komið er inn í eldhúsið hennar Auðar, Salt eldhús, þá verður maður einfaldlega bara hamingjusamari. Vel stíliserað eldhúsið fær mann til þess að líða eins og maður sé allt í einu kominn inn í einhverja skemmtilega bíómynd. Litavalið í eldhúsinu og öll smáatriði eru svo falleg að fólk eins og ég nær næstum ekkert að hlusta á það sem Auður segir á bakvið kennaraborðið. Athyglin fer alltaf á fellegu hlutina og vel samsett eldhúsið. Hvert einasta smáatriði er vel út hugsað og ekki mátti finna eitt einasta stílbrot. Bara fallgur skandinavískur sveitastíll eins og hann gerist bestur með vott af frönskum sveitastíl í bland.
 Auður hefur mikið unnið sem stílisti og heldur úti síðunni Tilefni.is ásamt því að reka Salt eldhús og fara út um allan heim á námskeið í matargerð. Auður býður uppá fjölbreytt námskeið í matargerð og hefur bæði haldið námskeið fyrir lokaða hópa sem og opin námskeið. 

Það má með sanni segja að Auður sé einhversskonar Nigella okkar íslendinga ;) 

Ég er allavega nokkuð viss um að ég eigi eftir að skrá mig á námskeið hjá Salt Eldhús næstkomandi haust. 








Auður kennir hópnum um vísindin á bakvið Franskar makkarónur




Einstaklega fallegur litur á KitchenAid vél. 



Hópurinn skemmtilegi :) 



Fallegu frönsku makkarónurnar komnar í skál heima.