divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu origami. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu origami. Sýna allar færslur

Litla Hönnunar Búðin í Hafnarfirði.


Ég gerði mér ferð í Hafnarfjörðinn síðastliðinn þriðjudag og kíkti þar á Strandgötuna. Þar er að finna mikið af skemmtilegum búðum sem gaman er að kíkja í en ein af þessum skemmtilegu búðum er Litla Hönnunar Búðin.  Það er ekki hægt að segja annað en að ég heillaðist strax af þessari búð bara með því að skoða í gluggann. Þegar inn var komið var ég aldeilis ekki svikin en þar var heill hellingur af fallegum hlutum sem gaman var að skoða og láta sig dreyma um. Þar má finna allskonar skemmtilega hönnunarvöru í sambland við listmuni og fallega grafík. Verk eftir búðareiganda og fleiri íslenska listamenn og erlenda hönnuði. Ég fékk að smella af nokkrum myndum til þess að sýna ykkur og ég stóðst ekki mátið og fjárfesti í fallegum pappírs-nashyrning sem ég ætla að setja saman og hengja upp í stofunni minni. 
Ég get ekki annað en sagt að það er alveg þess virði að fá sér rúnt í Hafnarfjörðinn, kíkja í kaffi á Súfistann og taka rölt eftir Strandgötunni, skoða í búðirnar skemmtilegu, láta sig dreyma og jafnvel fjárfesta í einhverju fallegu :) Dásamleg uppskrift af góðum degi :) 







Hugmyndasvampurinn lifnar við !

Jææææja... Nú vaknar Hugmyndasvampurinn til lífsins aftur eftir aaaansi langt hlé. Ég hef ekkert bloggað síðan í desember en vegna veikinda og almenns orkuleysis vegna fjölgunnar í fjölskyldunni þá hef ég varla litið í tölvu. Ég hef bara farið í vinnu og hreiðrað svo um mig og sofið síðustu mánuði... ég s.s. skreið í hýði yfir verstu mánuðina eins og dýrin. En nú hef ég loksins lifnað við eftir járngjöf í æð og góða hvíld. 
Ég var að velta fyrir mér að hætta alveg að blogga samt...en fékk þó ansi oft frá fólki á förnum vegi gott pepp til að halda áfram. Svo nú fékk ég loksins andann yfir mig.

 Og að sjálfsögðu byrjum við á Origami ;) 


Origami er aldagömul pappírsgerðalist sem á rætur sínar að rekja til Japan. Listina geta allir lært og með nútíma tækni má læra þetta allt saman heima í stofu. Origami er nokkurð vinslælt meðal hönnuða í dag má sjá falleg ljós eða aðra fallega skrautmuni gerða eftir aðferðum origami í hverju hönnunarblaði. Með origami listinni er hægt að skreyta í kringum sig á fallegan, fágaðan og ódýran hátt... ef maður gerir það sjálfur. 
Með misstórum pappír má stækka og minnka listaverkin sem gerð eru en oft er gaman að nota stórar arkir sem nýtast þá betur undir gottið. 
Ég hef algjörlega heillast af origami listinni í gegnum árin og er ennþá heillaðri eftir að hafa dundað við að gera þrjár skálar undir góðgætið sem má narta í þegar dimma tekur á kvöldin og kertaljósin verða daglegt brauð.


Goggurinn.

Þessa skál kunna flestir að útbúa. Skálin er einfaldlega pappírsgoggur sem snúið er á hvolf og myndar þannig fjögur hólf undir hvað sem hugurinn girnist.


Stjarnan. 

Uppskrift af stjörnunni má finna á youtube.com en stjörnuna má bæði nota sem skál eða sem kertastjaka. Ég mæli þó með að nota frekar batteríis-kerti í svona pappírs-stjaka svo að minni líkur 
séu á að kvikni í. 
Slóð: https://www.youtube.com/watch?v=aMnkM3JylpM (Það má líka bara skrifa “Origami       Candle holder” og þá kemur upp greinagott video).


Gul skál.

Þessa skál gerði ég í raun útfrá uppskrift af origami demanti. En skálin er í raun bara helmingurinn af demantinum. 
Nokkuð góðar leiðbeiningar má finna af demantinum/gulu skálinni á heimasíðunni designoform.com http://designoform.com/crafts/tutorial-paper-diamonds-diy/



Moth ljós


Ég hef lengi haldið upp á Moth ljósin frá Hollenska hönnunarteyminu Studio Snowpuppe. Mér þykja þau hreint út sagt æðisleg. Litirnir og formið á þeim höfða einstaklega mikið til mín.

Verði þið ekki æst í þau líka?
Þau fást meira að segja á Íslandi, í netversluninni KRÚNK. Mér skilst að Krúnk verði á Glæsimarkaðnum um helgina. Mikið sem mig langar að fara og kíkja, kannski maður láti verða af því.





 Þetta er úr nýjustu línunni þeirra, ég á eiginlega ekki orð yfir hvað mér þykir þetta flott.










Origami - bátar


Þegar ég var lítil stelpa þá lærði ég að gera svona fallega pappírsbáta hjá ömmu og afa. Afi kenndi okkur öllum barnabörnunum að gera svona held ég og við fórum oft skælbrosandi með pappírsbáta úr gömlum dagblöðum heim. Ég þurfti reyndar að horfa á videoið hér að neðan til þess að rifja upp hvernig þetta er gert, en það löngu kominn tími til þess að fara að endurvekja þessa fallegu báta. 

Þeir eru fallegir í pakkaskraut fyrir litla pjakka.



17. dagar í jól. Origami jólasería.

Áður en við vitum af verður kominn aðfangadagur. 
Hér fyrir neðan er smá leiðbeiningar um hvernig á að gera svona fallega Origami jólaseríu :) - Svona seríu má þessvegna láta bara hanga í beinni línu niður úr loftinu, eða bara liggja fallega einhversstaðar. 
Gangi ykkur vel í þessu :) 


Jólin nálgast...21 dagur til jóla!

Nú nálgast jólin óðum og flestir eru að detta í gott jólaskap. 
Oft getur þó þessi tími árs verið sumum erfiður...og hann hefur verið það stundum hjá mér, því á þessum tíma sakna ég meira þeirra ástvina sem látnir eru. EN þá er nú gott að lyfta sjálfum sér svolítið upp og gera eitthvað með börnunum sínum sem nærir andann :) 

Mér finnst voða notalegt að setjast niður með mínum stelpum og föndra, teikna eða mála með þeim.  Hlusta svolítið á jólalög og segja hvor annarri sögur af jólasveinum og öðru skemmtilegu og spennandi. Hekla Dís, 2 ára hefur nú kannski ekkert margt um þetta að segja annað en t.d. að jólasveinninn hafi bitið hana í tána og eitthvað svoleiðis.. en henni finnst gaman að vera með :) 

Svona jólastjörnur geta nánast allir gert, bæði fullorðnir og börn kannski 5 ára og eldri. En gott er þó fyrir börnin að fá smá hjálp frá fullorðnum að setja hana saman og fá smá útskýringar við brotin.. en VÁ hvað þau verða stollt af sér eftir að þau sjá fallegu útkomuna :) 

Hægt er að nota karton, hvít blöð, gamlar bækur og jafnvel jólapappír í verknaðinn. 
En muna þarf að ýta brotunum vel niður og renna fingrunum alltaf yfir þau, svo að stjanan verði fallegri. 
Og við þurfum að klippa út ferninga sem hefur allar hliðar jafn langar - og allir 8 ferningarnir sem fara í að gera eina stjörnu verða að vera jafn stórir.

svo tala myndirnar fyrir sig sjálfar :) 
Gangi ykkur vel :) 











Origami - Ljós

Nú þegar farið er að dimma svolítið á kvöldin og allir farnir að hafa ljósin kveikt aftur...og kertaljós og rómantíkin komin á kreik, þá er nú kominn tími á blogg í þeim dúrnum :) 

Ég gerði þetta ljós í vor/sumar til þess að fela rússann sem hangir enn inní svefnherberginu hjá mér (rafvirkinn eitthvað að skrópa á þessu heimili). En ljósið gerði ég úr fallegum afmælispappír og gerði úr honum origami Trönur, þann fallega fugl. 
Ekkert mál fyrir Jón Pál, skal ég segja ykkur!
Svo koma svo fallegar skuggamyndir á veggina...sem er nú ekki verra :) 

það sem þarf er: 
Girni/band að eigin vali. 
Hring úr jánir, áli eða einhverju sniðugu til þess að hengja á. 
afmælispappírinn eða origami-pappír.
hugmyndaflugið :) 


Ég elska svolítið Origami :) 



Ísland/Japan

Titill færslunnar hljómar eins og fótboltaleikur... I know!

Sæunn Þorsteinsdóttir, myndlistakona, býr til þessa ótrúlega fallegu Origami Trönur sem hún fegrar síðan með fjöðrum, perlum og öðru glingri. Trönurnar eru allar gerðar úr landakortum sem gerir þetta fallega skraut eitthvað svo spennandi. Það er eins og Óróinn sem verður úr þessu öllu saman hafi einhverja spennandi sögu að segja og einhvernveginn þá sækist maður pínu í að horfa á  þetta :) 

Hægt er að kaupa þessa fallegu óróa í Mýrinni í Kringlunni.




Veggflétta


Hér sést glitta í lokaverkefnið mitt sem er til sýnis á Kjarvalsstöðum:) 
Opnunin á sýningunni var í gær og gekk bara rosalega vel... líklega um 2000 manns sem mættu á svæðið:) 

Fyrir áhugasama þá er sýningin opin alla virka daga frá 10 - 17 alveg til 3 maí :)



Origami

Origami er ótrúlega skemmtilegur heimur í hönnun... og mikið að gerast greinilega :) 
Ég fann hérna nokkra kolla sem ég ætla að sýna ykkur sem allir eiga ættir sínar að rekja til Origami.

þessi hér að neðan heitir Trigami. 
mér finnst hann reyndar ekkert sérlega fallegur... 



Svo er það Origami Chair
hann er ekkert brjálæðislega origami-legur... en fær að vera með...


þessi er úr línu sem heitir Rockin' fun, er hannaður fyrir börn.


svo er það þessi skemmtilegi origami kollur frá Ligne roset.


og svo að sjálfsögðu minn uppáhalds origami kollur eftir íslenska hönnuðinn Guðrúnu Valdimarsdóttir
Kollurinn heitir 2M2



Lokaverkefnið mitt.


Ég held að það sé kominn tími til þess að ég upplýsi alþjóð um hvað ég er að pæla í lokaverkefninu mínu:)

Ég ætla að þróa einhverskonar vöru (kemur í ljós hvað það verður) út frá Japönsku Origami. 
líkt og myndirnar hér að neðan... þá hafa hönnuðurnir þróað vörur sínar út frá Origami.

ég skemmti mér konunglega í rannsóknarvinnunni og hlakka ótrúlega mikið til að fara að byrja:) - þetta er bara skemmtilegt - allavega núna eins og er :)





svo hendi ég inn mynd af þessum púða... bara svona afþví að mér finnst hann mjög skemmtilegur og ég væri alveg til í að eiga einn slíkann:)

Mig langar....


Ég er að stúdera svolítið Origami núna útaf lokaverkefninu mínu.
Ég er orðin frekar klár sko....

En þetta er eitthvað sem mig langar fáránlega mikið að dunda í.. finnst þetta alveg ótrúlega fallegt!
Og svo er ekkert mál að gera þennan fugl!




Mig hefur líka alltaf  langað fáránlega mikið í þessa klukku! Hún hefur bara verið alltaf svo dýr....þ.e. í verði:) sem hefur orsakað nísku mína á að kaupa hana... en hún var reyndar til í Saltfélaginu sáluga. Og nú sé ég enn meira eftir því að hafa ekki fjárfest í henni...úff...