divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu DIY. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu DIY. Sýna allar færslur

DIY: Heimagerðir kertakrukkustjakar


Í síðustu viku fór ég að dunda mér með póstulínspenna á meðan ég beið eftir að kvöldmaturinn eldaðist. Ég ákvað að prufa að teikna á eina af þessum fjölmörgu krukkum sem hafa safnast saman heima hjá mér og gerði lítið þorp með jólastjörnu og snjókomu. Stelpurnar mínar fengu að sjálfsögðu líka að teikna sín listaverk en þær eru 9 og 4 ára. Við mæðgur sátum því saman í kósý stemmningu og gerðum jóla-kertastjaka. Listaverkin sem dætur mínar gerður voru að sjálfsögðu æðisleg og útkoman var þessir líka afskaplega fallegu og jólalegu kertastjakar. 
Eldri stelpan mín fór að sjálfsögðu að framleiða kertastjakana í nokkru mæli og ákvað að þetta yrði jólagjöfin frá henni í ár handa öllum sem hana langaði að gefa jólagjafir. 

Það sem þarf í þetta er ekki kostnaðarsamt en póstulínspennin fæst í föndru og kostar 995 krónur og svo eru það bara fallegu krukkurnar. Ég sýni ykkur þetta svona hrátt og eins og það lítur út eftir að teikningin hefur verið gerð, en auðvitað má setja á krukkuna borða eða falleg bönd, jólagrein eða köngul og gera þannig krukkurnar hátíðlegri (sem verður næst á dagskrá hjá okkur).
Hér fyrir neðan má sjá krukkurnar komnar á sína staði á heimilinu með kertaljósi og kósýheitum. 




Límbandið reddar málunum.


Límband er eitthvað sem til er á hverju heimili og er hið mesta þarfa þing þegar á að t.d. pakka inn gjöfum eða einfaldlega að láta eitthvað haldast saman. 
EN það má líka nota límband til þess að hressa uppá heimlið ;) 
Til þess að útbúa svona snilld á veggina heima hjá sér er best að nota litað límband og t.d. þá eru rafmagnsteipin lituð og hafa skemmtilega plastáferð sem prýðir í svona verkum. Rafmagnsteipin fást í öllum helstu byggingavöruverslunum. 
Hér fyrir ofan og neðan má sjá nokkrar skemmtilegar útfærslur fyrir sverfnherbergi og stofur sem má nota sem fyrirmyndir í svona verkefnum :) 

Og það sem er svo skemmtilegt er að ef þetta mistekst þá er svo lítið mál að rífa þetta bara af og kostnaðurinn við gjörninginn er voða voða lítill. ;) 












Hvað er náttúrulegra heimili?


Nú ætla ég að reyna að koma eftirfarandi frá mér, án þess að það hljómi eins og fiðrildaprump og grænar hljóðbylgjur.

Fyrir skömmu var stofnaður hópur á Facebook, Náttúrulegra heimili.
Nafnið segir sig sjálft en þetta er eitthvað sem ég fór ekki að spá í af neinni alvöru fyrr en ég eignaðist barn. Vilja ekki allir það besta fyrir börnin sín? -Það besta er ekki það dýrasta.
Það er til aragrúi af álíka hópum en ég hef ekki fundið neinn á íslensku, fyrir íslenskar aðstæður.
Það er alltaf gaman að vera í félagsskap fólks sem spáir í svipuðum hlutum og þú. Það er enn skemmtilegra að vera í hópi sem hefur hvetjandi áhrif á þig.
Þrátt fyrir að hópurinn sé nýr ennþá þá hefur margt skemmtilegt og fræðandi verið rætt um. Þú þarft ekki að vera græn/n í gegn til að vera með.

Maíspokarnir sem eru nú loksins að birtast sem valmöguleiki í stað plast innkaupapoka við kassa í mörgum af stóru matvöruverslununum hafa verið ræddir.


Meðlimir hafa líka deilt uppskriftum af uppáhalds DIY hreinlætisvörunum sínum og það á eflaust margt eftir að bætast við. Ég er mjög spennt að prófa uppskrift af þessum líkamsskrúbbi:


Að "vera grænni" snýst ekki bara um að þvo ruslið og stafla því saman í eldhúsinu.
Það er hægt að gera svo miklu meira OG þú gætir bætt heilsuna og sparað í leiðinni. Því fylgir líka góð tilfinning, að finnast þú vera að gera eitthvað örlítið betur. Fyrir utan það að kenna börnunum betri siði.

- Borða betri mat og minnka aukaefnin sem heimilisfólkið þitt innbyrðir
  • Að gefa sér aðeins meiri tíma í að útbúa matinn frá grunni.
- Nota hreinni hreinsivörur fyrir heimilið og líkamann
  • Geturðu borið fram öll efnin sem snerta húðina á hverjum degi?
  • Finnst þér það í lagi?
- Nota þína eigin orku meira til að komast á milli staða þegar þú getur, í stað bílsins.
  • Hitaeiningar í stað mengunar
- Kaupa notaða hluti og gera að þínum eigin

Þú þarft ekki að gera allt í einu. Margt smátt gerir eitt stórt og allt það.
Það er alltaf gott að muna að góður göngutúr byrjar á einu skrefi.

DIY: Blómakrans í hárið


Það hefur ekki farið framhjá neinum að blómakransar í hár eru í tísku. 
Mig hefur alltaf langað til að kunna að gera svona kransa, en hér er aðferð sem er ekki svo flókin. 
Hér er notast við blóm sem kallast Brúðarslör. Það sem þarf til þess að gera þennan krans þurfið þið: 

- skæri
- blóma-límband (litað hvítt ef þið notið hvíta borða)
- borða
- blómavír. 



Skref 1. Byrjið á því að búa til litla vendi úr brúðarslörinu. 
Skref 2. Stillið litlu vöndunum upp við vírinn og notið blóma-límbandið til þess að vefja utan um stilkana á litlu blómvöndunum og vírinn saman. Vefjið hvern vöndinn á fætur öðrum þar til komið er út á enda. 
Skref 3. Gerið litlar lykkjur sitthvoru megin á blómavírinn og lokið fyrir vírendana með límbandinu. 
Skref 4. Festið borðana í lykkjurnar. 

Og þá ætti blómakransinn að vera tilbúinn til þess að nota :) 
Gæti jafnvel verið fallegt fyrir brúðargreiðsluna :) 



Áramótagleði


Á áramótunum er alltaf gleði og glens hjá minni fjölskyldu. Allir hittast. Allir fá skemmtilega hatta og allir eru glaðir. Ég bjó til yfirvaraskegg fyrir alla í fjölskylduboðinu til þess að hafa í hverju glasi um síðustu áramót. Skeggin komu skemmtilegri stemmningu á yfir matnum og ungir sem aldnir höfðu gaman að. 
Það er lítið mál að búa til skegg til þess að festa á rör, en ég komst þó að því að skeggin eru ekki rétt staðsett ef það gatað með gatara á mitt skeggið og smellt uppá rörin. Best er að byrja á að búa til skapalón. Ég braut hvítt blað saman og klippti út helminginn af skegginu útfrá brotinu. Þá verður skeggið heilt þegar það er tekið í sundur og eins báðu megin. Því næst teikna ég á karton og klippi út. Svo er það að búa til lítinn renning með litlum flipa upp og niður. Renningurinn er límdur í hring utan um rörið og skeggi er límt á flipana útfrá renningunum, þannig helst skeggið ofaná rörinu og á sínum stað á efrivör þegar drukkið er úr glasinu :) - þetta tekur smá tíma í dúlleríi... en ekki svo langann að þetta sé ógerlegt :)
Gangi ykkur vel... 

og 
Njótið gamlársdags og nýja ársins. 




Jóla-nostalgía og föndur.




Svona afþví að loksins get ég almennilega einbeitt mér að jólunum... og blogginu, þá er um að gera að koma með einn jólapóst. 
Mig dreymir alltaf um að gera fallegan og ævintýralegan jólabæ fyrir litlu stelpurnar mínar. Það er pínu nostalgía í þessum draumi mínum þar sem að mamma setti alltaf upp fallegan burstabæ og kirkju ásamt trjám, snjó, dýrum og jólasveinum, þegar ég var lítil stelpa. Og það sem ég gat setið og horft á þetta. 
Hér má sjá nokkrar ódýrar aðferðir til að útbúa lítið jólaþorp. Allt er þetta gert úr ódýrum efnum eða afgangs efnum sem hægt er að nálgast ókeypis...eins og t.d. mjólkurfernuhúsin.
Þetta gæti verið skemmtileg föndurstund með börnunum og skapar örugglega fallegar minningar.






DIY: Jólatré


Ég föndraði þessi skemmtilegu jólatré um síðustu helgi og mér fannst útkoman bara nokkuð góð þó ég segi sjálf frá. Ég var enga stund að skera tréin út en það tók þónokkuð langann tíma að mála þau.
En fyrir ykkur elsku blogglesendur hef ég ákveðið að henda inn smá leiðbeiningum að svona tré. Læk á það er það ekki?  :) 

Til að byrja með þurfið þið kæru föndrarar að gera ykkur ferð í Handverkshúsið. Kaupa þar 2-3mm þykkan balsavið. Viðurinn kemur í 1m lengjum og 1m dugði mér í 3 tré... bara lítil tré. En viðurinn býður ekki uppá að gera stór tré þar sem viðarplöturnar eru alls ekki breiðar. 

Það sem þarf: 
Balsaviður
góð reglustika eða T-stika
dúkahnífur
blýantur
svartur línutúss (fyrir þá sem ætla að gera svart munstur)
og svört málning. 



Ég byrjaði á því að strika upp tréin á balsaviðinn með reglustikunni. 


Því næst sker ég eftir línunum. Ég nota reglustikuna til þess að skera meðfram svo allt verði beint. Passa þarf líka að vera með gott skurðarbretti undir. 


Þar sem ég keypti 2mm balsa þá geri ég svona "rennur" uppi og niðri sem eru nákvæmlega 2mm. á breidd. Rennurnar ná niður í miðju á trénu. 


Svo er það bara að skreyta. 
Ég notaði reglustikuna og blýantinn til að teikna fyrst það sem ég ætlaði að mála og fór með svarta línutússinu í útlínurnar og málaði svo innan línanna. 
Svolítil þolinmæðisvinna ef fólk vill hafa þetta eitthvað flúrað, en gaman. 


Gangi ykkur vel :) 

DIY - Veggfóður eða ?


Með slatta af þolinmæði má alveg gera stofuvegginn fallega "veggfóðraðann". 
Það má t.d. kaupa svona gylltan túss (eða lit eftir smekk) og mæla, nota málningateyp og svo tússa. 
getur ekki verið flókið ! 




Brúðkaup - föndur og gleði

Um helgina síðastliðna var mín bestasta að gifta sig. Við ákváðum að föndra og gera fallegan bakgrunn fyrir myndatökur fyrir veisluna. Við tókum einn eftirmiðdag þrjár saman og gerðum "nokkrar" fallegar pappírs-skífur. Á föstudaginn setti ég svo bakgrunninn upp á vegg í veislusalnum en ætlunin var að taka myndir af öllum veislugestunum þarna við vegginn fyrir gestabókina. 
Ég get ekki annað sagt en að þetta hafi komið rosalega fallega út.



Föndur og nammi.



Fyrir ofan:  Veggurinn tilbúinn
Fyrir neðan: ég lengst til vinstri, brúðurin hún Marín og Inga Birna...mínar allra bestustu. 


Fyrir utan veislusalinn var að finna lúpínur út um allt. 
Ég bjó til fallegt hjarta úr lúpínublómunum í grasið fyrir utan... það kom bara nokkuð fallega út. 


Nýtt útlit á ísskápinn


Átt þú ljótan ísskáp...eða kannski bara orðin þreytt á gamla ískápnum? 
Þetta er hugmynd sem er auðveld í framkvæmd og bara alls ekki svo vitlaus :)
Sé alveg fyrir mér að nokkrir sumarbústaðir taki stakkaskiptum ef að ískáparnir gömlu sem eru þar oft fengu svona andlitslyftingu.