divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Sumarbústaðurinn. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Sumarbústaðurinn. Sýna allar færslur

Húsafellið fagra.


Við fjölskyldan kíktum í eina nótt í bústað til vinafólks okkar í Húsafell nú um nýliðna helgi. Það hafði snjóað rosalega nóttina áður en við mættum og veðrið var eins og best verður á kosið. Þvílíka náttúruperlan sem Húsafell er í svona fallegu veðri! Ég bara hreinlega gapti í allar áttir og tók endalaust af myndum. 
Við skelltum okkur að sjálfsögðu í göngutúr í þessari náttúrufegurð með börnin á þotum og sleðum í eftirdragi og skelltum okkur nokkrar ferðir niður brekkuna við sundlaugina. Ekki leiðinlegt skal ég segja ykkur og einhvernveginn bara miklu skemmtilegra þegar maður hefur svona fallegt landslag fyrir augunum á meðan börnin eyða orkunni í brekkunni. 






Notað verður nýtt.


Jæja, þá mun bloggleysið hætta. Nýja tölvan mín reyndist vera örlítið gölluð, en hún var að koma úr viðgerð og þá er hægt að fara að skrifa um allt það sem hlaðist hefur upp hérna á skrifborðinu hjá mér :)

Systir mín á 11 stk. af svona gömlum eldhússtólum sem við erum að lappa uppá.  Við erum að hugsa um að mála helminginn af stólunum hvíta og hafa helminginn af þeim gráa.  Eftir að búið er að mála stólana lífga þeir aldeilis mikið uppá "stofuna" í gamla húsinu sem hún og maðurinn hennar eru að gera upp í sveitinni. Húsið sem þau byrjuðu að taka í gegn vorið 2012 leit út eins og eyðibýli til að byrja með en er að taka hægt og rólega á sig betri mynd. - ég leyfi ykkur að fylgjast með breytingum þar bráðum þegar búið er að klára að múra og mála :) 



A-bústaða rómantík

Það er einhver vorhugur kominn í mig nú þegar að jólin eru búin og hækkandi sól á himni. Ég er farin að láta mig dreym um sumar og sól í sveitalofti. 

Ást mín á A-bústöðum fer bara vaxandi. Ég bara fæ alltaf pínu sting í hjartað þegar ég skoða þessa bústaði. Þeir eru bara svo fallegir og kósý. 

Hér fyrir neðan eru nokkrir sem ég er skotin í. 





Viðbyggingin á bústaðnum hér fyrir ofan er ofsalega falleg lausn til þess að stækka bústaðinn. Ég er sjúk í þennan bústað! ;) 



Pastel litir á heimilið :)

Ég er mikill aðdáandi lita á heimilið. Ég er ein af þeim sem vil hafa liti í kringum mig. 
Pastel litir hafa verið mjög heitir uppá síðkastið og verða það líklega eitthvað áfram.. mér til mikillar lukku :) Ég elska pastel liti :) 

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir þar sem pastel litir púslast fallega inn á heimili í allskonar formum :) 
Svoo fallegt!






Sumarhús

Mig dreymir um að eignast fallegt hús uppí sveit til þess að eyða helgunum (og jafnvel líka öðrum dögum vikunnar). Kósý kot sem ég get alveg gert að mínu og haft eins og ég vill. Reyndar þarf ég fyrst að vinna í lottóinu :) 
En þetta útlit og þessi kofastemmning sem þessi sumarhús hér fyrir neðan hafa heilla mig alveg uppúr skónum. Ég fæ pínu illt í hjartað...mig langar svo að eiga svona í sveitinni :) 



Púða-ást og sumarkósýness :)

Ég er með algjört púða/kodda æði...:) 
Mér finnst ekkert skemmtilegra og notalegra en að eiga fallega púða sem prýða. 
Ég byrjaði þetta æði eftir að eldri dóttir mín fæddist, þá einhvernveginn varð ég alltaf að vera að kaupa einhverja fallega púða inn í herbergið hennar :) Nú er ég búin að færa mig inn í stofuna og svefnherbergið :) 

Þessir fallegu púðar fást allir sem einn í ILVA og eru allir á viðráðanlegu verði :) 

Ég fjárfesti í tveimur svona strípalingum eins og koddinn er á neðstu myndinni - hrikalega flottir :) 






Sumarhúsið

Þetta fallega litla sumarhús er staðsett í Finnlandi. 
Góð hugmynd fyrir þann sem að á sumarbústaðalóð en ekki peninginn til að byggja allann bústaðinn strax :) Þá má byrja á því að gera "gestakofann" og hafa hann tveggja hæða fegurðarkofa með fallegum palli :) Það ætti ekki að kosta eins mikið og allur risa bústaðurinn eins og við íslendingar gerum :) 

Mig langar allavega til að kúra á svona stað :) 







Sumarhúsa-dónaskapur :)

Ég fann síðu á netinu sem heitir, með góðri íslensku-þýðingu, því skemmtilega nafni "Frítt Kofa klám"
Þessi síða er skemmtileg síða fyrir alla þá sem hafa áhuga á fallegum sumarhúsum. 
Mjög gaman að skoða :) 



Sumarbústaðurinn

Einhverntímann ætla ég að gerast svo fræg að eignast sumarbústað. 
A-bústaður er pínu í uppáhaldi hjá mér...það er bara eitthvað svo sjarmerandi við svoleiðis bústaði. 
Þetta svefnloft í A-bústað hefur verið tekið í gegn og er ansi sjarmerandi...ég get ekki annað sagt :) 
Hvíta gólfið birtir svo upp loftirð og gerir heilann helling :)