divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Fríið. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Fríið. Sýna allar færslur

Húsafellið fagra.


Við fjölskyldan kíktum í eina nótt í bústað til vinafólks okkar í Húsafell nú um nýliðna helgi. Það hafði snjóað rosalega nóttina áður en við mættum og veðrið var eins og best verður á kosið. Þvílíka náttúruperlan sem Húsafell er í svona fallegu veðri! Ég bara hreinlega gapti í allar áttir og tók endalaust af myndum. 
Við skelltum okkur að sjálfsögðu í göngutúr í þessari náttúrufegurð með börnin á þotum og sleðum í eftirdragi og skelltum okkur nokkrar ferðir niður brekkuna við sundlaugina. Ekki leiðinlegt skal ég segja ykkur og einhvernveginn bara miklu skemmtilegra þegar maður hefur svona fallegt landslag fyrir augunum á meðan börnin eyða orkunni í brekkunni. 






Miss Ko - París


Einn af þeim skemmtilegu veitingastöðum sem ég heimsótti í París var veitingastaðurinn Miss Ko. Staðurinn er hannaður af hinum heimsfræga hönnuði Philippe Starck. 
Hönnun staðarins á að gefa fólki örlitla upplifun á asíska menningu og þann ævintýraheim sem þar er að finna. En staðurinn er bæði frekar hrár og yfirþyrmandi. Lýsingin er frekar dimm-rauð þarna inni en svo gefur barinn frá sér ljós þar sem að allur barinn er sjónvarpsskjár með milljón "litlum sjónvarpsstöðum".  Veggirnir eru allir flúraðir japönskum ævintýraheim og borðin eru frekar þétt. Allt þetta á að veita manni örlitla innsýn í götumenningu fjölmennustu borga Asíu.  
Miss Ko er staðsettur á besta stað í bænum eins maður segir, en hann er við aðal verslunargötu Parísar sem nefnist Champs-Elysées við hliðná Louis Vuitton tískuhúsinu. Þegar maður gengur út af staðnum eru öll helstu tískuhúsin rétt hjá ásamt því að hinn fagri Sigurbogi blastar sínu fegursta við enda götunnar nokkrum skrefum frá. 

Maturinn var mjög góður og matseðillinn var fjölbreyttur. Við fengum mjög gott sushi í forrétt ég fékk góðan kjúklingarétt í aðalrétt sem var bara mjög góður og asískur. 
Þegar okkur var svo réttur eftirréttaseðilinn þá leit hann út eins og vegabréf miss Ko og var alveg einstaklega fallegur. Tók því miður ekki mynd af honum, en vonandi bæta aðrar myndir það upp. 

Verðlagið var kannski frekar í hærra lagi miðað við það sem við eigum að venjast þegar við förum til útlanda, en ætli það hafi ekki bara verið svipað og við erum að rukka hér heima á vinsælum veitingastöðunum.









París I

Um síðastliðna helgi skrapp ég til Parísar með kæró og vinafólki. Borgin stóð alveg undir væntingum og meira en það og það má segja að ég hafi algjörlega orðið heilluð af þessari fallegu borg. 
Ég var með tvennskonar þema í ferðinni en það var að taka myndir af öllum hurðum sem mér fannst einstaklega fallegar (og þar fær kæró að njóta sín sem aðal fyrirsætan) og svo tók ég myndir af öllum fallega matnum sem við borðuðum...sem var alls ekkert slor. 

Í þessari færslu fáið þið að skoða fallegu hurðarnar...

...næst býð ég uppá matarmyndir ;) 




Góða helgi gott fólk :) 

Á ferð minni um landið



Veitt í Þingvallavatni


Síðustu vikuna hef ég verið að þvælast um landið hingað og þangað með vinum og börnum. Ekki leiðinlegt. 
Við byrjuðum ferðina á Þingvöllum þar sem þjóðgarðurinn var skoðaður í risa göngutúr þar sem allir voru ansi þreyttir þegar heim var komið. Þar var líka farið að veiða. Þingvallavatn er prýðis staður til þess að leyfa börnunum að veiða. Öllum fannst rosalega gaman þrátt fyrir að einungis veiddust tveir tittir. 
Því næst var haldið á Fossatún. Þangað er ekki leiðinlegt að fara... sérstaklega ekki með börn. Það eru tröllskessur út um allt. Þar er gott kaffi og með'ðí  fyrir mömmur og pabba og þar má finna rosalega fínan leikvöll sem börnin geta alveg gleymt sér í. Og það sem best er að leikvöllurinn er alveg við tjaldstæðið þannig að hægt er að fylgjast vel með villingunum frá tjaldstólnum sínum ;) 

Að lokum héldum við á Hvammstanga sem er ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa ferðasögu niður fyrir ykkur. Ég mæli sérstaklega með því að fólk leggi leið sína þangað. Þar er mjög fínt tjaldstæði með öllum græjum...reyndar svolítið fyrir ofan bæinn. En bærinn er fallegur og margt þar að finna. Ég hreyfst sérstaklega af kaffihúsinu litla krúttlega niðri við bryggju sem heitir Kaffi Hlaðan. Þar var hægt að fá gott kaffi og æðislegar kökur og vöfflurnar voru himneskar (verst ég var ekki með símann á mér til að taka myndir fyrir ykkur af þessum gómsætu veitingum). 
Svo var ég ansi skotin í lítilli handverksbúð sem heitir Gallerý Bardúsa. Þar mátti finna margt fallegt frá handverksfólkinu í sveitinni. En fyrir innan Gallerýið var að finna eldgamla búð og allann gamla lagerinn sem þar var til. Þar var margt fallegt að finna og þá sérstaklega heillaðist ég af gúmmí-dúkkunum sem hafa beðið ansi lengi eftir að vera keyptar. 
Við hliðná Gallerýinu er svo að finna nytjamarkað sem gaman er að róta í. 
Og svo að lokum verð ég að segja ykkur frá ullarverksmiðjunni sem gaman er að heimsækja. Þar er búð með fullt af fallegum vörum og svo mega gestir og gangandi skoða verksmiðjuna sem ekki er leiðinlegt. 


Grýla komin með óþekk "börn" í pottinn sinn í Fossatúni.

Tröllkall sem hefur orðið að steini.

Gallerý Bardúsa á Hvammstanga

Gúmmí dúkkurnar fögru


Nóg til í gömlu búðinni

Húfa frá ullarverksmiðjunni sem gaman er að heimsækja. 


Jumbo stay

Á Arlanda flugvelli í Stockholm er að finna svolítið öðruvísi gistiheimili.
Gistiheimilið kallast Jumbo Stay og er staðsett í gamalli 747 þotu sem að sjálfsögðu er ekki í notkun lengur og búið er að breyta mikið að innan. Það gefur að skilja að það eru ekki mörg herbergi sem gistiheimilið hefur, en þó meira en við var að búast því þeir hafa 29 herbergi. Gistingin er frekar ódýr og er í raun sú hagstæðasta af þeim kostum sem eru í kringum Arlanda flugvöllinn ásamt því að vera skemmtileg upplifun án efa :) 
Hægt er að kaupa flugstjóraherbergið og fá þannig fallegt útsýni og fullt af tökkum ;) 
Myndirnar tala sínu máli.








MoMA - New York

Það síðasta sem við gerðum í New York, áður en við fórum út á flugvöll, var að við fórum á Museum of Modern Art.
Það voru fullt af fallegum verkum að sjá eftir marga meistara. 
Safnið sjálft er líka algjört meistaraverk í arkitektúr. 
ótrúlega fallegt allt saman. 
Ég hendi hérna inn nokkrum myndum af safninu. Sum verkin fá nöfn höfunda við þau, en ég tók ekki niður höfunda hjá neinum...þannig að meirihlutann man ég ekki hvað heitir. 
En þetta er svo mikið augnayndi að það er það sem skiptir mestu :) 
Er það ekki...?


Smá vöruhönnun hér fyrir neðan... við þekkjum þetta mest allt...er það ekki?




Skemmtilegur leikur með form og skugga :) 


Tom Wesselman á þessar fallegu varir hér fyrir neðan...eða málaði þær :) 



Hér fyrir ofan er spegill sem búið er að mála á mann í raunstærð... afskaplega skemmtilegt verk, því það leit út fyrir að þarna væri op inn í annað rými. :) 



Byggingin sem að safnið er í er ótrúlega falleg og hvert einasta rými er listaverk útaf fyrir sig. Ég hefði viljað drita myndum af rýmunum á myndavélina mína, en fannst það pínu óvirðing við verkin á safninu :) haha :) 



Fyrir ofan má sjá verk eftir Vincent Van Gogh
og fyrir neðan er það Picasso sjálfur :) En verkin eftir Picasso heita "Three Musicians" og "Girl before a mirror"



 Hér fyrir neðan er mynd eftir Monet sem kallast "Water Lillies"


Þetta fannst mér bara ótrúlega fyndinn og fallegur skinn-bolli :) 




New York - Maturinn.


Það er voða gott að borða. 
Við hjúin erum að minnsta kosti voðalegt matar-fólk og okkur finnst ekkert leiðinlegt að smakka eitthvað nýtt, eða borða eitthvað uppáhalds. 
Í New York er hægt að fá endalaust af góðum mat. Líka vondum reyndar. 


(Fyrir ofan) Við ákváðum áður en við fórum að vera ekki með innifalinn morgunmat á hótelinu, því að við vildum alveg endilega smakka allskonar amerískan morgunmat á allskonar Diner-um. 
Að sjálfsögðu ræddum við alltaf hvað okkur langaði mest í og pössuðum alltaf að panta sinn hvorann réttinn og gefa svo helming og fá helming til það smakka sem mest í einni máltíð :) Það voru að sjálfsögðu pantaðar pönnukökur og eggja-hrærur. Hér fyrir ofan má sjá bananapönnukökur með sýrópi og bláberjum og eggjahræru með steiktum kartöflum og grænmeti. mmm... mæli með Diner í morgunsárið :) 


Við hittum Sigurjón frænda minn sem er orðinn rosalegur new yorker, enda búinn að búa þarna síðan haustið 2006. Drengurinn fór með okkur á sinn uppáhalds Sushi stað Hiroshi Sushi, á 3 ave á milli 38 & 39 st.,  en hann sagðist ekki hafa smakkað það betra. Staðurinn var lítill og fámennur, enda vorum við heldur snemma á ferðinni.  Sushi-ið þar var himneskt! - Eins og sjá má á myndunum, þá réðumst við á matinn um leið og hann kom, við gleymdum að taka myndir af diskunum, og það fattaðist ekki fyrr en það var einn biti eftir af þessari laxa-rúllu hér fyrir ofan...sem er b.t.w. besti sushi biti sem ég sett inn fyrir mínar varir... ohh...ég verð svöng að hugsa um þetta!
Fyrir neðan er rækju-rúlla sem var líka svakaleg.
Staðurinn hefur fengið mjög góða dóma á MenuPages.com
Við smökkuðum líka tvennskonar djúpsteiktar rúllur sem voru mjög áhugaverðar og góðar :) öðruvísi sushi. 
Svo spillti ekki fyrir að maturinn er á góðu verði þarna hjá þeim :) 


LaugardagshádegisLunch er perfect á veitingastaðnum Boathouse í Central Park! - Reyndar er svolítil bið eftir borði þar, en biðin er vel þess virði og staðurinn er með klassa bar og klassa barþjóna sem að búa til ótrúlega góða kokteila. Ég er ekki frá því að ég hafi þarna fengið besta Mohito sem ég hef smakkað hingað til. Svakalega góður :) 



Maturinn á Boathouse svíkur heldur ekki. - Við vorum í lunch-menu og það voru frekar léttir réttir á matseðilinum. Við pöntuðum okkur Griggtown Farm Chicken, en það var borið fram með trufflu-kartöflumús og ristuðum vorlauk. Einnig pöntuðu við okkur vöfflur með bláberjum og jarðaberjum borið fram með sýrópi. En báðir þessir réttir voru aðalréttir af hádegisseðlinum, en okkur fannst pínu skrítið að hafa vöfflur sem aðalrétt. En góðar voru þær :) 
Eitt sem við vorum ekki ánægð með var vatnið á staðnum... það er bara boðið upp á kranavatn sem er alveg einstaklega vont á bragðið og við gátum ekki drukkið það. En það er reyndar liður í umhverfisvænni stefnu staðarins að bjóða uppá þetta vatn svo það má næstum ekki kvarta yfir því. 



Við duttum óvart inná kaffihús/veitingastað á 58. stræti á milli 5. - 7. av. Við einfaldlega munum ekki hvað staðurinn heitir, en það var eitthvað rússneskt nafn. En vá! Æðislega fallegur staður og allt tipp topp þar! - mér leið pínu eins og fínni frú frá Upper East side að fá mér kaffi þarna. :) - Við fengum okkur bara saman eina litla fallega marens. Alvöru rósarblað, gras og jarðaber skreyttu tertuna. Hún var svo falleg að við týmdum varla að borða hana. Hún smakkaðist líka rosalega vel :) 
Hér á myndinni fyrir ofan má sjá afgreiðsluþjóninn uppábúinn að afgreiða take-away frá kökuborðinu. 
fyrir neðan má sjá fallegu kökuna okkar :) 



(Fyrir ofan) Síðast morgunmatur ferðarinnar var tekinn á Applebee's Diner. Þar pantaði ég mér að sjálfsögðu almennilegann skammt af pönnukökum  með rjóma, sýrópi og berjum. Rosaleg bomba! (ég er eitthvað að grínast á myndinni... smart!) - en ég gat ómögulega klárað þetta..rosalega mikið! Hilmar fékk sér ristabrauð og egg... kláraði það á 0.1sek og enginn mynd náðist. 
(Fyrir neðan) Áður en við fórum út á flugvöll ákváðum við að kíkja á Museum of Modern Art (MoMA)  sem var æðislega gaman... en ská á móti MoMA er frekar fínn asískur veitingastaður sem heitir China Grill. Svakalegt Sushi þarna á ferðinni líka, ég mæli hiklaust að þær sem gera sér ferð á MoMA komi við þarna og fái sér Sushi - kostaði reyndar meira en á hinum staðnum... en á maður ekki að gera vel við sig fyrst maður er hvort sem er í New York? 


Eini staðurinn sem við vorum mjög ósátt með matinn var á Hard Rock Café á Times Square. Fengum kaldann mat þar og það var eitt stykki fluga í matnum hans Hilmars. - mæli alls ekkert með því að fólk eyði tíma í að bíða í röð til að fá borð þar, til þess eins að fá svo bara ömurlegann mat. En okkur fannst við verða að prufa staðinn :) - aldrei aftur!

Síðasta færslan verður MoMA færsla. Kemur von bráðar :)