divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Utandyra. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Utandyra. Sýna allar færslur

Hvað er náttúrulegra heimili?


Nú ætla ég að reyna að koma eftirfarandi frá mér, án þess að það hljómi eins og fiðrildaprump og grænar hljóðbylgjur.

Fyrir skömmu var stofnaður hópur á Facebook, Náttúrulegra heimili.
Nafnið segir sig sjálft en þetta er eitthvað sem ég fór ekki að spá í af neinni alvöru fyrr en ég eignaðist barn. Vilja ekki allir það besta fyrir börnin sín? -Það besta er ekki það dýrasta.
Það er til aragrúi af álíka hópum en ég hef ekki fundið neinn á íslensku, fyrir íslenskar aðstæður.
Það er alltaf gaman að vera í félagsskap fólks sem spáir í svipuðum hlutum og þú. Það er enn skemmtilegra að vera í hópi sem hefur hvetjandi áhrif á þig.
Þrátt fyrir að hópurinn sé nýr ennþá þá hefur margt skemmtilegt og fræðandi verið rætt um. Þú þarft ekki að vera græn/n í gegn til að vera með.

Maíspokarnir sem eru nú loksins að birtast sem valmöguleiki í stað plast innkaupapoka við kassa í mörgum af stóru matvöruverslununum hafa verið ræddir.


Meðlimir hafa líka deilt uppskriftum af uppáhalds DIY hreinlætisvörunum sínum og það á eflaust margt eftir að bætast við. Ég er mjög spennt að prófa uppskrift af þessum líkamsskrúbbi:


Að "vera grænni" snýst ekki bara um að þvo ruslið og stafla því saman í eldhúsinu.
Það er hægt að gera svo miklu meira OG þú gætir bætt heilsuna og sparað í leiðinni. Því fylgir líka góð tilfinning, að finnast þú vera að gera eitthvað örlítið betur. Fyrir utan það að kenna börnunum betri siði.

- Borða betri mat og minnka aukaefnin sem heimilisfólkið þitt innbyrðir
  • Að gefa sér aðeins meiri tíma í að útbúa matinn frá grunni.
- Nota hreinni hreinsivörur fyrir heimilið og líkamann
  • Geturðu borið fram öll efnin sem snerta húðina á hverjum degi?
  • Finnst þér það í lagi?
- Nota þína eigin orku meira til að komast á milli staða þegar þú getur, í stað bílsins.
  • Hitaeiningar í stað mengunar
- Kaupa notaða hluti og gera að þínum eigin

Þú þarft ekki að gera allt í einu. Margt smátt gerir eitt stórt og allt það.
Það er alltaf gott að muna að góður göngutúr byrjar á einu skrefi.

Húsafellið fagra.


Við fjölskyldan kíktum í eina nótt í bústað til vinafólks okkar í Húsafell nú um nýliðna helgi. Það hafði snjóað rosalega nóttina áður en við mættum og veðrið var eins og best verður á kosið. Þvílíka náttúruperlan sem Húsafell er í svona fallegu veðri! Ég bara hreinlega gapti í allar áttir og tók endalaust af myndum. 
Við skelltum okkur að sjálfsögðu í göngutúr í þessari náttúrufegurð með börnin á þotum og sleðum í eftirdragi og skelltum okkur nokkrar ferðir niður brekkuna við sundlaugina. Ekki leiðinlegt skal ég segja ykkur og einhvernveginn bara miklu skemmtilegra þegar maður hefur svona fallegt landslag fyrir augunum á meðan börnin eyða orkunni í brekkunni. 






Falleg íbúð í Gautaborg.


Þessi fallega íbúð er staðsett í Gautaborg. En það sem að náði áhuga mínum í þessari íbúð eru svalirnar. Eigendunum hefur tekist að gera þetta litla útisvæði alveg einstaklega kósý og fallegt.  Oft finnst mér svalir (þá sérstaklega hérna á íslandi) vara frekar kuldalegar og gráar. En að hafa sófa og mottu úti gerir alveg rosalega mikið. Góð stækkun á íbúðinni. 














Páskagleði á instagram

Páskarnir eru alltaf svo skemmtilegir. Ágætis slökun með börnum, hundum og bónda. 

Við mæðgur blésum út úr nokkrum eggjum og leyfðum þeim að litast í matarlit. Maður lætur eggin bara  fljóta í skálinni með vatn og matarlit. Það tekur nokkrar mínútur fyrir skurnina að taka í sig litinn og ekkert vesen. Allir glaðir :) 
Svo settum við Nína, eldri dóttir mín sem er 7 ára, smá skreytingu á borðstofuborðið með eggjunum fallegu. Stelpunum mínum fannst þetta æði. Og mömmunni fannst þetta ótrúlega einfalt :) 
Svo kíktum við í sveitina í gær og skoðuðum dýrin.... Páskalömbin voru ekki mætt á svæðið svo við mynduðum bara fallega hyrntann hrút í staðinn. 

Og svo varð ég auðvitað að láta fylgja mynd af frumraun minni í kransakökugerð. En fóstursonur minn hann Kristófer fermdist um síðustu helgi og ég prufaði að malla í eina rice crispies...það tókst bara ágætlega ;) Nú verð ég óstöðvandi í þessu.





Hunter boots

Ég er dálítið gúmmístígvéla-sjúk...og hef alltaf verið. Ég á núna tvenn stígvél sem mér þykir mjög vænt um, ein í garðinn og önnur til að pæjast í rigningunni.  Ég á reyndar ekki Hunters stígvélin en mig dreymir um að eignast kannski ein eða tvenn... ;) 
Ég á ein háhæluð svört sem glansa frá DinSko í Svíþjóð mjög svipuðum þessum hérna fyrir neðan...bara ódýra útgáfan, en mjög fín. 

Hin eru öll komin á drauma-stígvéla listann:)


Þessi hér fyrir ofan eru fáránlega flott! - og í þokkabót þá eru þau alveg vatnsheld alla leiðina upp. Þau eru mjög cavalry style og dálítið barbour style líka :) frekar smart.




Aðeins of flottar þessar túttur hér fyrir ofan!! 



ps. svo fer ég að blogga eins og vindurinn þegar ég hef skilað af mér verkefnum í næstu viku ;) 

Njótið lífsins kæru þið og haldið áfram að vera frábær ;) 




Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar


Í dag byrjar Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. Ég og samnemendur mínur í Listkennsludeild LHÍ ætlum að vera með upplifunar-event í Grasagarðinum í tilefni þess. En auk okkar uppákoma verður finnski umhverfislistamaðurinn Timo Jokela að sýna ísskúlptúra. Timo Jokela kemur sérstaklega frá Finnlandi fyrir vertrarhátíðina og vinnur hann þessa stundina að listaverkum í Grasagarðinum sem hann gerir úr snjó. Búið er að flytja snjó í Grasagarðinn og eru nemendur listkennsludeildar að vinna með honum að því að móta verk úr snjónum. 
Hér fyrir neðan sjáið þið verk úr fyrri sýningum listamannsins og á neðstu myndinni má sjá nemendur LHÍ vera að vinna að snjóverkunum með honum. 

Það er alveg tilvalið að kíkja með alla fjölskylduna í Grasagarðinn á morgun, föstudaginn 8. febrúar til þess að líta verk hans augum og upplifa Magnað myrkur með okkur :) Í boði verður ljósaganga, umhverfishlustun, heit laug fyrir kaldar tær og speglaganga. :) 

Verið Hjartanlega Velkomin.





Snjór og gleði


Það er alltaf svo gaman þegar við hérna fyrir sunnan fáum smá snjó... þó að hann stoppi yfirleitt alltaf of stutt við hjá okkur að mínu mati. En það kom nú samt smá snjór um helgina í 1 dag ;) aðeins til að gleðja lítil hjörtu. 
Við mæðgur skelltum okkur út með sleðan og fengum okkur göngu, renndum okkur smá og gerðum svo litla snjó kisu handa gangandi vegfarendum á göngustignum við hliðná húsinu okkar ;) 
Kisan var voða sæt... en frekar stuttlíf, því seinnipart dags var komin rigning... 

Á neðstu myndinni er smá snjólistaverk sem við gerðum á vegg framan á húsið okkar í fyrravetur. 







Útilegufíkn

Það má eiginlega segja að ég sé orðin pínu heltekinn útilegufíkill þar sem ég er eiginlega ekkert búin að vera heima hjá mér nánast í allt sumar (fyrir utan 2 helgar), núna er þetta allt að detta í réttar skorður og ég er farin að sinna heimili og garði og að sjálfsögðu börnum...og vonandi bloggi :) 

Hér má sjá skemmtilegann útilegubúnað :) 


Tjaldið hér fyrir neðan er sólarsellutjald. Vængirnir þrír sem sjást þarna eru sérhannaðar og einstaklega léttar og þunnar sólarsellur sem auðvelt er að brjóta saman og pakka niður. Hægt er að færa vængina til eftir því hvar sólin er og veita þeir tjaldinu upphitun, ljós og rafmagn sem nýtist til þess að hlaða síma og tölvur :) 
Ég er pínu skotin í þessu :) 



Fáránlega töff hjólhýsi....en nýtist ekki í íslensku veðráttunni.... :) 


MotoCamper :) 



Trjákofar

Töfrandi trjákofar!

Ætli það séu til margir trjákofar á íslandi? 
Ég hef að minnsta kosti bara séð einn í Þingholtunum... :) 





Vorið - Garðurinn :)


Ég er svo heppin að vera með lítinn garð hérna við húsið mitt...en svo óheppin að vera algjör klaufi í garðrækt. Viljinn og áhuginn er þó fyrir hendi... ég bara kann þetta ekki sökum þess hversu mikill nýgræðingu ég er í garðrækt. :) 
En núna í vor er mig búið að klæja svoooo roslaega í puttana að fara að gróðursetja og dúllast eitthvað í garðinum :) - Mig hlakkar svoo til að geta farið að velja blómin og eitthvað nýtt og fallegt tré eða eitthvað til þess að setja niður. :) 
Verst að ég veit ekki alveg hvar skal byrja...haha!


ohh... væri til í að slaka á þarna... ekki amalegt!





Heart-Attack!

Það er eflaust þó nokkur fjöldi að fara að gifta sig í sumar :) 
Vonandi einhverjir lesendur á þessu bloggi! :) 

En hér fyrir neðan er skemmtileg OG ÓDÝR skreyting sem má gera við hvaða tilefni sem er...en hentar mjög vel við brúkaup... jafnvel útibrúðkaup eða sveitabrúðkaup! :) 

Það sem þarf til þess að gera þetta er: 
Skæri, 
Stór og fín kartön-örk, 
skál
hveiti
sigti. 

En afþví að við erum svo umhverfisvæn þá notum við hveiti en ekki hvítt spreylakk! því Hveitið rignir bara í burtu og skaðar ekki umhverfið :) 

Myndirnar tala svo bara sínu máli :)