divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Heimilið. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Heimilið. Sýna allar færslur

Hreiðurgerð


Nú er viðburðaríku sumri lokið og haustið gengið í garð. Síðan ég bloggaði síðast hefur eitt barn bæst í hópinn hér á heimilinu og öllum heilsast bara nokkuð vel. Ég sest minna niður fyrir framan tölvu en áður svona til að byrja með á meðan allt er að detta í rétta rútínu og við lærum að eiga þrjú börn. 

En mig langaði til að sýna ykkur skiptiaðstöðuna mína. Í húsinu okkar er lítið rými inni í svefnherberginu okkar á milli skápa. Líklega hugsað fyrir spegil og snyrtiborð en við höfðum ekki gert neitt við þetta rými síðan við fluttum inn fyrir ári síðan. Hundarnir okkar fengu að hafa það útaf fyrir sig til að byrja með en núna hefur það fengið nýtt hlutverk. Við ákváðum að máta skiptiborðið þarna inní þetta litla horn og það passaði líka svona rosa fínt. Húsbóndinn málaði vegginn og ég fékk að dúlla við rest :) 

Skiptiborðið sjálft keypti ég notað en það er úr Ikea. Því miður er það hætt í sölu þrátt fyrir að vera ótrúlega fallegt. En ég þræddi sölusíður og fékk það að lokum ;) 
Skiptidýnuna og óróann fékk ég í Petit.is barnavöruverslun en fiðrildin bleiku átti ég til. 
Bæði skiptidýnan og óróinn eru frá sænsku merki sem nefnist Farg & Form sem Petit.is selur en skýin eru einskonar einkenni merkisins.  Mikið af fallegum vörum koma frá þessu merki bæði í fatnaði og öðrum nauðsynjavörum fyrir börnin :)  Endilega kíkið á Petit...þið verðið ekki svikin ;) 







Barnaherbergi


Þessa dagana eru falleg barnaherbergi ofarlega í huga mínum... enda eitt lítið að fara að bætast við fjölskylduna í ágúst ;) En það þarf nú samt að taka í gegn herbergið hjá elstu dömunni á heimilinu sem fyrst og ég er endalaust að skoða og hugsa þetta. Hún er orðin svolítill unglingur í sér og vill losna við flest allt dótið út úr herberginu enda að verða 10 ára. Hún hrúgar því öllu þessa dagana inn  til litlu systur sinnar...og laumar sér svo þangað inn til að leika sér í dúkkó ;) En pæjuherbergi þarf hún að fá. Það er bara þannig. 
Allt þetta svarta og hvíta heillar voða en mér finnst það oft mjög ópersónulegt og því finnst mér ágætt að hafa hvítan grunnlit á húsgögnunum og poppa svo upp með litum svo að herbergið fá sinn persónulega sjarma. 

Við erum búnar að ákveða þetta nokkurnvegin allt saman í sameiningu og okkur langar báðum að  kanínu-segul-veggfóður eins og sjá má hér neðstu á myndinni fari upp hjá skvísunni. En veggfóðrið fæst í Esja dekor.






Páskarnir og Instagram


Páskarnir voru bara dásamlegir hér á bæ. Ég byrjaði páskafríið á dásamlegu brúðkaupi hjá vinum, því næst fékk ég fallega vinkonuhópinn minn í heimsókn eina kvöldstund svo fór ég með börnum og burtu vestur í Dalina í tvær nætur að njóta náttúrunnar (tók engar myndir því ég lyfti hvorki upp myndavél né síma allan tímann....var bara að njóta) og svo var það home sweet home með fjölskyldunni yfir hátíðina sjálfa. Heimilið var mjög gult og sumarlegt þessa daga eins og myndirnar bera með sér en eiginlega allt páskaskraut sem til er á heimilinu hefur komið heim af leikskólanum með börnunum. Uppáhalds páskaskrautið er að sjálfsögðu eftir dóttur mína en það eru páskaliljur gerðar úr eggjabökkum. Ótrúlega fallegar ;) 
Ég tók nokkrar myndir yfir páskana og setti á Instagram síðu hugmyndasvampsins en ef þið eruð á Instagram þá getið þið elt mig hér. 


Ég vona að þið hafið átt ljúfa páska líka ;) 


Eldhúsið komið í páskagírinn


Bragðgóðar páska-bollakökur
og
uppáhalds páskaliljurnar eftir Heklu Dís í vinsælasta vasa landsins ;) 


Hönnunarmars 2015 - Smíðagripir


Smíðagripir eru stólar/barstólar hannaðir og smíðaðir af myndlistamanninum Daníeli Magnússyni. 
Daníel hóf að smíða þessa fallegu stóla fyrir um 23 árum síðan en stólarnir hafa notið töluverðra vinsælda síðustu árin. Stólana hans má meðal annars finna á 101 bar, Listasafni Reykjavíkur og á nýja vínbarnum í flugstöðinni okkar íslendinga... og svo má líka finna þá í eldhúsinu hjá mér ;) 
Smíðagripir eins og Daníel kýs að kalla stólana sína eru einkar þæginlegir en þeir eru allir á fjórum fótum og með snúanlegri sessu. Þeir eru ekki valtir og verða ekki grút skítugir neðst á fótum eins og svo margir barstólar verða. 

Daníel smíðaði fyrir mig fjóra stóla fyrir um ári síðan og ég get ekki sagt annað en þjónustan hafi alveg verið skemmtilega einstök. Við hjúin fengum að koma við á verkstæðinu hjá honum og hann útskýrði fyrir okkur hvernig allt saman virkar í stólnum (snúnings skífan og fleira) og við völdum hvernig fætur við vildum og hvaða viðartegund við vildum. Síðan fórum við í GÁ húsgögn og völdum okkur leður á sessuna og svo þremur vikum seinna voru tilbúnir fjórir handsmíðaðir fallegir stólar, merktir okkur hjúum undir og framleiðslunúmer á hverjum og einum. 
Mína stóla má skoða á síðustu tveimur myndunum hér fyrir neðan. 


Smíðagripir eru nú til sýnis á Hönnunarmars en þá má finna í Kirsuberjatrénu á Vesturgötunni








Hér fyrir neðan má svo sjá opnunartíma sýningarinnar í Kirsuberjatrénu um helgina.


Límbandið reddar málunum.


Límband er eitthvað sem til er á hverju heimili og er hið mesta þarfa þing þegar á að t.d. pakka inn gjöfum eða einfaldlega að láta eitthvað haldast saman. 
EN það má líka nota límband til þess að hressa uppá heimlið ;) 
Til þess að útbúa svona snilld á veggina heima hjá sér er best að nota litað límband og t.d. þá eru rafmagnsteipin lituð og hafa skemmtilega plastáferð sem prýðir í svona verkum. Rafmagnsteipin fást í öllum helstu byggingavöruverslunum. 
Hér fyrir ofan og neðan má sjá nokkrar skemmtilegar útfærslur fyrir sverfnherbergi og stofur sem má nota sem fyrirmyndir í svona verkefnum :) 

Og það sem er svo skemmtilegt er að ef þetta mistekst þá er svo lítið mál að rífa þetta bara af og kostnaðurinn við gjörninginn er voða voða lítill. ;) 












Hvað er náttúrulegra heimili?


Nú ætla ég að reyna að koma eftirfarandi frá mér, án þess að það hljómi eins og fiðrildaprump og grænar hljóðbylgjur.

Fyrir skömmu var stofnaður hópur á Facebook, Náttúrulegra heimili.
Nafnið segir sig sjálft en þetta er eitthvað sem ég fór ekki að spá í af neinni alvöru fyrr en ég eignaðist barn. Vilja ekki allir það besta fyrir börnin sín? -Það besta er ekki það dýrasta.
Það er til aragrúi af álíka hópum en ég hef ekki fundið neinn á íslensku, fyrir íslenskar aðstæður.
Það er alltaf gaman að vera í félagsskap fólks sem spáir í svipuðum hlutum og þú. Það er enn skemmtilegra að vera í hópi sem hefur hvetjandi áhrif á þig.
Þrátt fyrir að hópurinn sé nýr ennþá þá hefur margt skemmtilegt og fræðandi verið rætt um. Þú þarft ekki að vera græn/n í gegn til að vera með.

Maíspokarnir sem eru nú loksins að birtast sem valmöguleiki í stað plast innkaupapoka við kassa í mörgum af stóru matvöruverslununum hafa verið ræddir.


Meðlimir hafa líka deilt uppskriftum af uppáhalds DIY hreinlætisvörunum sínum og það á eflaust margt eftir að bætast við. Ég er mjög spennt að prófa uppskrift af þessum líkamsskrúbbi:


Að "vera grænni" snýst ekki bara um að þvo ruslið og stafla því saman í eldhúsinu.
Það er hægt að gera svo miklu meira OG þú gætir bætt heilsuna og sparað í leiðinni. Því fylgir líka góð tilfinning, að finnast þú vera að gera eitthvað örlítið betur. Fyrir utan það að kenna börnunum betri siði.

- Borða betri mat og minnka aukaefnin sem heimilisfólkið þitt innbyrðir
  • Að gefa sér aðeins meiri tíma í að útbúa matinn frá grunni.
- Nota hreinni hreinsivörur fyrir heimilið og líkamann
  • Geturðu borið fram öll efnin sem snerta húðina á hverjum degi?
  • Finnst þér það í lagi?
- Nota þína eigin orku meira til að komast á milli staða þegar þú getur, í stað bílsins.
  • Hitaeiningar í stað mengunar
- Kaupa notaða hluti og gera að þínum eigin

Þú þarft ekki að gera allt í einu. Margt smátt gerir eitt stórt og allt það.
Það er alltaf gott að muna að góður göngutúr byrjar á einu skrefi.

Nýtt en notað stöff :)

Um liðna helgi datt ég í lukkupottinn... en þá hringdi vinkona í mig sem hafði fjárfest í Kartell náttborði á barnalandi en henni fannst það ekki passa inni hjá sér og því hafði hún samband við mig. 
Að sjálfsögðu sagði ég JÁ! Enda hef ég verið að hugsa um að fjárfesta í þessu blessaða náttborði ansi lengi... hugsa og hugsa og hugsa....en aldrei framkvæmt kaupin. Enda er ég viss um að þetta borð sé syndsamlega dýrt beint úr búðinni. En ég gat samt hugsað náttborðið til mín og það passar svona rosalega fínt ;) 

Ég er allvega helsátt... 

...og nú ætla ég að fara að hugsa til mín Polder sofa eftir Hella Jongerius :) 




Herbergið hennar Heklu


Jææææjjja..... Þetta blogg mitt er hálf sofandi þessa dagana... ég veit. En það hefur ýmislegt á daga mína drifiði síðastliðinn mánuðinn sem gjörsamlega hefur sogað úr mér orku og ég hef einfaldlega ekki nennt að opna tölvuna. Ég byrjaði í nýrri vinnu...að kenna 10 ára gömlum börnum, sem er mjög skemmtilegt. Ég hef verið að reyna að klára að koma okkur fyrir í nýja húsinu (sem gengur frekar hægt þessa dagana) og svo auðvitað börnin byrjuð í skóla og rútínan að komast á rétt ról ;)
Hér fyrir ofan á myndinni má sjá einn vegg í herbergi dóttur minnar en í sumar keypti ég þessa fallegu húsa-kassa í Söstrene grene. Alls ekki dýrir kassar og ótrúlega fallegir satt best að segja. Mér datt strax í hug að hengja þá á vegg. Ég skellti aftaná kassana "double-tape" eða eins og dóttir mín segir alltaf "ibbúl-teip" og hengdi þá upp þegar málningin var loksins þornuð og svo settum við í sameiningu falleg leikföng í kassana svo úr kom "húsa hilla".  Ég verð nú að segja að ég er bara ótrúlega ánægð með þetta. Kassarnir príða ótrúlega mikið og setja skemmtileg "lúkk" á herbergið ;) 

Ég er nokkuð viss um að kassarnir séu ennþá til í Söstrene fyrir ykkur sem hafið áhuga ;) 


Strákaherbergi




Ég var stödd í barnaafmæli áðan þar sem ein mamman hafði orð á því að henni fyndist leiðinlegt hvað væri mikið alltaf til af dúlleríi og flottum hugmyndum fyrir stelpuherbergi en lítið fyrir strákaherbergi. Það þarf vart að taka fram að mamman sú er strákamamma og á tvo flotta stráka. 
Það er reyndar alveg rétt hjá henni að internetið lumar á mun fleiri góðum hugmyndum fyrir falleg stelpuherbergi en stráka.... en... það eru þó til helling af fallegum strákaherbergjum og góðum hugmyndum. 
Sérstaklega er ég hrifin af svona skemmtilegum posterum eins og hér fyrir ofan með hvölunum. Það má jafnvel líka vera myndir og upplýsingar um sjávardýr, fugla eða alheimskort.
Flottir púðar og gæjaleg veggfóður heilla mig líka nokkuð mikið sem og stafrófið og fallegir hankar :)