divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu skart. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu skart. Sýna allar færslur

Litla Hönnunar Búðin í Hafnarfirði.


Ég gerði mér ferð í Hafnarfjörðinn síðastliðinn þriðjudag og kíkti þar á Strandgötuna. Þar er að finna mikið af skemmtilegum búðum sem gaman er að kíkja í en ein af þessum skemmtilegu búðum er Litla Hönnunar Búðin.  Það er ekki hægt að segja annað en að ég heillaðist strax af þessari búð bara með því að skoða í gluggann. Þegar inn var komið var ég aldeilis ekki svikin en þar var heill hellingur af fallegum hlutum sem gaman var að skoða og láta sig dreyma um. Þar má finna allskonar skemmtilega hönnunarvöru í sambland við listmuni og fallega grafík. Verk eftir búðareiganda og fleiri íslenska listamenn og erlenda hönnuði. Ég fékk að smella af nokkrum myndum til þess að sýna ykkur og ég stóðst ekki mátið og fjárfesti í fallegum pappírs-nashyrning sem ég ætla að setja saman og hengja upp í stofunni minni. 
Ég get ekki annað en sagt að það er alveg þess virði að fá sér rúnt í Hafnarfjörðinn, kíkja í kaffi á Súfistann og taka rölt eftir Strandgötunni, skoða í búðirnar skemmtilegu, láta sig dreyma og jafnvel fjárfesta í einhverju fallegu :) Dásamleg uppskrift af góðum degi :) 







Nýtt frá Hlín Reykdal.


Hlín Reykdal fata- og skartgripahönnuður kom með nýja línu af skarti nú fyrir þessi komandi jól sem er alveg einstaklega falleg.  Línan hefur skírskotun í skotthúfuna sem er hluti af íslenska þjóðbúningnum en skotthúfan hefur "skott" líkt og sjá má hér á hálsmeninu fyrir ofan. 
Línan er alveg afskaplega elegant og það er á hreinu að á jólagjafaóskalistanum mínum má finna eitt svona fallegt hálsmen með svörtu skotti :) 








Skartgripa skúlptúrar í Kirsuberinu

Í Kirsuberjatrénu stendur yfir sýning listamannsins  Benas Staskauskas.
Sýningin er mjög áhugaverð en á henni má finna fjöldan allan af hringum sem eru nokkuð öðruvísi en við erum vön að sjá. Hringarnir eru unnir sem skúlptúrar en innblástur listamannsins er að hans eigin sögn náttúran og hversdagsleikinn.
Hver einasti hringur er einstakur og hefur sína sögu að segja hverjum einasta áhorfanda og því engir tveir hringir eins. Hringarnir eru að mestu gerðir úr gerviefnum eins og plasti, rafi og carbon en hann notar lítið af dýrum málmum eins og gulli og silfri.
Sýningin er fyrsta einkasýning listamansins en áður hefur hann m.a. unnið með hönnuðinum Guðmundi Jörundssyni hjá JÖR hér á landi ásamt fjöldamörgum listamönnum erlendis.

Ég mæli með að fólk komi við í Kirsuberjatrénu og kíki á þessa einstöku og skemmtilegu sýningu.






Hlín Reykdal og styrktarfélagið Göngum saman.

Á morgun, 10. apríl verður hamingjustund í versluninni KIOSK á Laugavegi 65 en þá mun hefjast sala á þessum fallegu lyklakippum sem sjá má hér á myndum fyrir neðan. Lyklakippurnar eru eins og sjá má, eftir Hlín Reykdal fata- og skartgripahönnuð en kippurnar eru hannaðar fyrir styrktarfélagið Göngum saman og rennur ágóðinn af sölunni til styktafélagsins. 
Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar bæði til heilsueflingar og til að afla fjár í styrktarsjóð félagsins sem styrkir grunnrannsóknir á krabbameini í brjóstum.

Hlín þarf vart að kynna en hún er þekkt fyrir hönnun ýmiskonar fylgihluta svo sem hálsmena og armbanda. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands 2009, með B.A. gráðu í fatahönnun og er einn af eigendum og stofnendum verslunarinnar KIOSK sem er á Laugavegi 65.

Frá kl. 17:00 - 19:00 verða kippurnar frumsýndar í KIOSK á morgun og þeir sem vilja eignast eina slíka ættu að renna við í búðinni hjá Hlín og fjárfesta í einni. Kippurnar eru til í takmörkuðu upplagi og verða seldar nú í apríl eða á meðan birgðir endast. Kippan kostar 3.500 kr.  sem er nú ekki mikið þegar maður styrkir gott málefni :) 



Fallegir kertastjakar í Kirsuberjatrénu.


Ég kíkti í heimsókn til vinkonu minnar, Brynju Emils sem hannar undir merkinu Besla, í Kirsuberjatréð núna fyrr í vikunni. Í glugganum á Kirsuberjatrénu má finna þessa ótrúlega fögru kertastjaka eftir hana Huldu B. Ágústsdóttir.  Hulda hannar líka skart í sama stíl og kertastjakarnir en bæði skartið og stjakana má finna til sölu í Kirsuberjatrénu. 

Mig langar alveg að eignast 2-3 fallega stjaka eftir hana :) 




Verndarbaugur

Ég er komin aftur. Ástæða fyrir bloggleysi er skóli. Skólinn er að klárast hjá mér og ég er að skila af mér nokkrum verkefnum og er í einu prófi sem stendur. Tímaleysi til þess að skoða fallega hluti er því aðal ástæða þess að ég næ ekkert að deila neinu fallegu með ykkur. 

En mig langar að segja ykkur frá þessu meni. Menið ber nafnið Verndarbaugur og er útskriftarverkefni Elínar Brítu Sigvaldadóttur, en hún er að útskrifast sem vöruhönnuður úr LHÍ. Menið var til sýnis á útskriftarsýningunni sem haldin var í Hafnarhúsinu. 
Verndarbaugur er unnin úr silfri, þorskleðri, áli, steini og tré, en öll efnin eru náttúruleg og hafa langan líftíma. 

Fallegur skartgripur. 





Forget Me Knot by Sruli Recht

Ég bara verð að segja ykkur frá nýjustu íslensku hönnuninni sem er á allra vörum þessa dagana. 
Sruli Recht hannaði þennan einstaka hring. Hringurinn er einstakur þar sem hann er búinn til úr 24 karata gulli og mannshúð. Húðin var tekin af maga Sruli og fékk hann í lið með sér lýtalækni til þess að fjarlægja húðina, en hérna má sjá video-upptöku af aðgerðinni. Húðin af maga Sruli var síðan unnin eins og leður er unnið... sútuð og svo sett utanum 24 karötin. 

Ég get ekki annað en sagt að hringurinn veki hjá mér örlítinn hroll enda ekki á hverjum degi sem maður sér skartgripi úr mannshúð. En um leið fær hönnunin mann til þess að hugsa um þá staðreynd að okkur þykir ekkert ógeðslegt að nota húð annarra dýra í skart, föt, töskur og skó... hversvegna er það þá ógeðslegra þegar notuð er mannshúð?  
...það er það samt pínu...

Hringurinn verður einn sinnar tegundar en er hluti af haust og vetrar línu Sruli fyrir árið 2013/14. 
Hægt er að eignast hringinn fyrir litlar 60 milljónir eða 350.000 evrur. 




Vinsælustu bloggfærslur ársins 2012 á Svampinum

Í forvitni minni fór ég að skoða hvaða færslur voru mest skoðaðar árið 2012. 
Ég tók saman 4 vinsælustu færslurnar :) 

Allra vinsælasta færslan árið 2012 var skrifuð í Janúar 2012 og var... daddararammm....




Færslan sem var næstmest skoðuð var tekin saman í maí mánuði og er bara nokkuð áhugaverð líka...sérstaklega fyrir pæjur ;) 



Í febrúar skrifaði ég um þessa íslensku barnafatalínu sem er alveg algjört æði. 




Og síðast en ekki síst var það barnaherbergi dóttur minnar sem ég tók í gegn og bloggaði um það í nóvember :) - þarna á myndinni má einmitt sjá glitta í bænina sem er á myndinni hér að ofan.





6 dagar til jóla - Hvað viltu í jólagjöf?

Ég fæ nú ekki margar jólagjafir. Eiginlega bara fá manninum mínum og börnum. 
En það er þó sitthvað sem mig langar í...og margt af því alltof dýrt. 
En það má nú láta sig dreyma... er það ekki? 


(Fyrir ofan) Hálsmen eftir Hlín Reykdal. Ég er ekki orðin það fræg enn að hafa eignast svona fallegt skart, en það orsakast kannski af því að ég er aldrei með neitt skart og því gefur mér það enginn.... en ég væri nú alveg til í að vera með svona fallega festi um hálsin :) Skartið hennar Hlínar fæst í Kiosk og Hrím á Laugaveginum og svo fæst það líka í gjafavöruversluninni @home - hér á Akranesi. 

(Fyrir neðan) Kollurinn Fuzzy eftir Sigurð Már Helgason, en stóllinn er hannaður á því góða ári 1972 og er orðin klassísk hönnun. Fæst í Epal, Kraum og gjafavöruversluninni @home hér á Skaganum.



(Fyrir ofan) Stelton kaffikannan er búin að vera á óskalistanum mínum í nokkur ár :) Hún fæst í Epal og   Gjafavöruversluninni @home
(Fyrir Neðan) Superliving kertastjakarnir eru ofarlega á lista þetta árið, enda líka nokkrum númerum of fallegir. Fást í Hrím á Laugaveginum. 



(Fyrir ofan) Sindrastóllinn er klassísk íslensk hönnun frá árinu 1962.  Hönnuður stólsins er Ásgeir Einarsson. Sindrastóllinn var til á mörgum heimilum hér á árum áður en hefur verið ófáanlegur frá árinu 1970. Fyrr á þessu ári hófst endurframleiðsla á stólnum og er hægt að kaupa stólinn hjá GÁ húsgögnum í Síðumúla. - Hér heima hjá mér er sérstakt pláss tileinkað þessum stól. 

(Fyrir neðan)  Wooden Dolls frá Vitra. Ég fæ pínu sting í hjartað því mér finnst þær svo fallegar. 
En þær kosta agalega mikið svo maður verður eiginlega að safna sér... ég væri til í að eiga sirka 5 stk. 
Wooden Dolls fást í Pennanum.  En þar eru ýmis góð tilboð á fallegri hönnunarvöru nú fyrir jólin. 


Hvað langar ykkur í?

DIY - Hálsmen

Það eiga held ég bara flestir efnið til í svona hálsmen heima hjá sér :) 
Tilvalið að föndra svona um helgina :) 




DIY: Hrikalega smart armbönd!

Þetta er eitthvað sem allar pæjur geta gert :) 

Myndirnar útskýra 100% hvernig þetta er gert :)