divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu Leikföng. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Leikföng. Sýna allar færslur

Óróar í barnaherbergið.


Þessa dagana er ég voðalega hrifin af óróum. Mig langar svo til þess að búa til fallegann óróa í barnaherberin hjá dætrum mínum. Eitthvað fallegt sem gaman er að eiga. 
Hér fáið þið að sjá þá óróa sem hafa verið að veita mér innblástur í þetta verkefni mitt sem enn er reyndar á byrjunarstigi. Vonandi kemst verkefnið á lokastig :) 

Fallegir ekki satt? 

...og líklega ekkert svo flókið að búa þá til heldur. 

Eigið góða helgi.








AmeRÍKA !

Anthropologie er búð í Ameríkunni góðu sem er alveg sérstaklega úthugsuð fyrir konur :) 
Reyndar eru allar búðir þannig þar sem að konur sjá yfirleitt um að eyða peningum... en...
Þessi skemmtilega búð hefur í raun allt fyirr konur...allt frá snyrtidóti og skóm yfir í fallega hluti fyrir heimilið.

hér fyrir neðan má sjá nokkra hluti sem ég heillaðist af. 
Held ég verði bara að fara til sameinuðu fylkja ameríku!



Þessir dýrahausar hér fyrir ofan eru fatahengi - nokkuð snoturt.

og svo ef maður á ekki mikið af bókum en langar í...þá má bara veggfóðra þær á vegginn :) 
örugglega flott að vera með svartann vegg og einn renning af þessu veggfóðri á góðum stað á veggnum.


Það voru til svona fallegir viðarkubbar með stöfum á hjá ömmu minni og afa þegar ég var lítil... ég hef alltaf heillast ótrlúlega af svona... finnst þetta ótrúlega fallegt dót!


Þessi heklaði sveppur hér fyrir ofan er barna kollur. Hann myndi sóma sér vel í barnaherberginu heima hjá mér :) - eða í stofunni bara :)

Drauma leikmotturnar!

Ég vildi óska þess að ég hefði átt svona mottur í herberginu mínu þegar ég var lítil :)

en þessar mottur er hægt að fá í búðinni Bubbabling sem er mjög skemmtileg búð fyrir krakka :)





Barbie í 50 ár!

Allar stelpur hafa einhverntímann leikið sér í Barbie....enda er hún líka orðin 50 ára kéllingin sú. En það er samt alltaf gaman að skoða barbie og þegar ég var lítil þá lék ég mér mjög oft í barbie....enda skemmtilegast:)



Ég átti aldrei barbie hús, en ég man eftir því að einhver vinkona mín átti svona barbie hús eins og er hér fyrir neðan. Það hús kom á markaðinn árið 1974 og er ótrúlega seventís... heitur pottur og alles...allt tvívítt..:)
En nýjasta húsið sem Barbie á er ALLT BLEIKT!!! það er hér fyrir ofan... persónulega finnst mér neðra húsið miklu flottara og skemmtilegra.... kannski er það tengt minningum...en lyftan er líka flott...og það eru skemmtilegri litir:) meika ekki allan þennan bleika lit.




Hver var það sem átti svona hús???