divider

divider
Sýnir færslur með efnisorðinu keramik. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu keramik. Sýna allar færslur

Lærke Langballe keramik

Hreint út sagt æðislegar keramik vörur Lærke Langballe. Hún er svo til nýútskrifuð úr keramik deild Aarhus Kunstakademi. Hún er 24 ára og býr í Aarhús þar sem hún er með vinnustudioið sitt.

Hún gerir meðal annars svona ótrúlega skemmtilega bakka með hinum ýmsu dýrum á. Hægt er að fá þá alveg hvíta eða með mismunandi litum og eða munstri á.



Svo gerir hún vasa, sem eru kjörnir undir blómin sem oft eru týnd af fólkinu með minnstu hendurnar á þessum árstíma. Vasarnir eru líka kertastjakar, þannig að þeir geta fengið annað hlutverk í skammdeginu. Skemmtilegir mjúkir litir sem hún notar.

 



Hér er svo myndin sem hreif mig í tímaritinu og fékk mig upphaflega til að fara á stúfana og finna meira um hana Længe.

Ég er hrikalega skotin í því sem hún gerir og sé meira að segja fyrir stað í stofunni hjá  mér fyrir vasana hennar og dýrabakka.

Finnsdottir Design.


Þóra Finnsdóttir keramiker nýtur vaxandi vinsælda meðal þeirra sem elska skandínavíska hönnun.
Þóra býr í Danmörku og hannar undir nafninu Finnsdottir. 
Ég er sjúk í stærsta vasann sem er á mynd nr. 4 hér fyrir neðan! Ég væri reyndar ekkert á móti því að eignast bara eitthvað eftir hana... mér finnst þetta allt rosalega fallegt! 

Þeir sem vilja eignast eitthvað eftir Þóru getað farið í Mýrina í Kringlunni. 
Þar er mikið um dýrðir :) 






Bathing Girl Tea Set.

Þessir ótrúlega fyndnu bollar eru eftir hönnuðinn Esther Horchner. 
Þarna hefur hönnuðurinn teiknað stelpur sem baða sig í teinu/kaffinu sem  fer í bollann :) 
ótrúlega fyndin og skemmtileg hugmynd! :) 

Bollarnir eru til sölu á Dutchbydesign



Hidden Animal Teacups

Hidden Animal Teacups eru bollar sem eru komnir á óskalistann minn!!!

Bollarnir eru japanskir og eru framleiddir af Ange-line tetrault. 

hægt er að kaupa þessa undurfögru bolla í amerísku búðinni Huset sem er ótrúlega skemmtileg búð sem leggur uppúr skandinavískri hönnun (þrátt fyrir að bollarnir komi frá Japan)





Gamalt/nýtt



Þetta þríeyki fann ég í gömlu drasli frá mömmu minni og pabba. 
Ég man ekki eftir því að mamma hafi haldið eittvað sérstaklega uppá þetta þegar ég var lítil og man alls ekki eftir því að hún hafi haft þetta fyrir punt. 
En svo eignuðust þau sumarbústað og þetta var sett uppá hillu þar og látið rykfalla.
Enginn sá neitt við þetta og öllum fannst þetta ljótt drasl. 
Ég hirti þetta. 
Svo sansaði uppþvottavélin þetta... gaf þessu glansinn aftur og þetta er líka svona ótrúlega fínt og skemmtilegt í stofunni minni... rokkar hana pínu upp :) 

Mér finnst þetta hrikalega flott :) 
Ég vildi óska þess að ég kynni að vinna með keramik!
hér fyrir neðan eru fallegir hlutir sem eru úr keramik sem mig langar til að skoða eða eiga.... og svo á ég fullt af hugmyndum sem mig langar að leira :)

kannski að maður skelli sér á keramik námskeiðið sem er í Símenntunarstöðinni. Það er bara verst að dóttir mín leyfir mér ekki að fara í burtu í svona langann tíma í einu eins og ég virðist þurfa ef ég færi á námskeiðið... hún er of lítil til þess :)