divider

divider

Hjarn.is - Tallow


Mig langar að segja ykkur fá fallegu Hollensku kertunum Tallow sem eru í sölu í netbúðinni Hjarn.is
Ég fjárfesti í einu svona fallegu bláu kerti og fékk kertið nokkrum dögum síðar keyrt upp að dyrum hjá mér þrátt fyrir að búa á Akranesi. Þvílík þjónusta hjá henni Elenu sem rekur búðina. 
Mjög góð og persónuleg þjónusta hjá henni en um leið og ég keypti kertið í gegnum netið fékk ég skilaboð frá henni í e-mail um hvenær hún ætlaði að senda kertið og svo fékk ég persónulega símhringingu þar sem hún tékkaði á því hvort ég væri heima svo hægt væri að koma með þetta heim til mín í dag. Ótrúlega falleg og góð þjónusta sem fær mig til að vilja endilega versla meira á Hjarn.is. 

En þessi fallegu kerti eru bara svo ótrúlega heillandi að ég mæli eindregið með því að þetta verði afmælis/innfluttnings/óvænta gjöfin sem þið mætið næst með til vinar :) 


Barnaherbergi


Þessa dagana eru falleg barnaherbergi ofarlega í huga mínum... enda eitt lítið að fara að bætast við fjölskylduna í ágúst ;) En það þarf nú samt að taka í gegn herbergið hjá elstu dömunni á heimilinu sem fyrst og ég er endalaust að skoða og hugsa þetta. Hún er orðin svolítill unglingur í sér og vill losna við flest allt dótið út úr herberginu enda að verða 10 ára. Hún hrúgar því öllu þessa dagana inn  til litlu systur sinnar...og laumar sér svo þangað inn til að leika sér í dúkkó ;) En pæjuherbergi þarf hún að fá. Það er bara þannig. 
Allt þetta svarta og hvíta heillar voða en mér finnst það oft mjög ópersónulegt og því finnst mér ágætt að hafa hvítan grunnlit á húsgögnunum og poppa svo upp með litum svo að herbergið fá sinn persónulega sjarma. 

Við erum búnar að ákveða þetta nokkurnvegin allt saman í sameiningu og okkur langar báðum að  kanínu-segul-veggfóður eins og sjá má hér neðstu á myndinni fari upp hjá skvísunni. En veggfóðrið fæst í Esja dekor.






Páskarnir og Instagram


Páskarnir voru bara dásamlegir hér á bæ. Ég byrjaði páskafríið á dásamlegu brúðkaupi hjá vinum, því næst fékk ég fallega vinkonuhópinn minn í heimsókn eina kvöldstund svo fór ég með börnum og burtu vestur í Dalina í tvær nætur að njóta náttúrunnar (tók engar myndir því ég lyfti hvorki upp myndavél né síma allan tímann....var bara að njóta) og svo var það home sweet home með fjölskyldunni yfir hátíðina sjálfa. Heimilið var mjög gult og sumarlegt þessa daga eins og myndirnar bera með sér en eiginlega allt páskaskraut sem til er á heimilinu hefur komið heim af leikskólanum með börnunum. Uppáhalds páskaskrautið er að sjálfsögðu eftir dóttur mína en það eru páskaliljur gerðar úr eggjabökkum. Ótrúlega fallegar ;) 
Ég tók nokkrar myndir yfir páskana og setti á Instagram síðu hugmyndasvampsins en ef þið eruð á Instagram þá getið þið elt mig hér. 


Ég vona að þið hafið átt ljúfa páska líka ;) 


Eldhúsið komið í páskagírinn


Bragðgóðar páska-bollakökur
og
uppáhalds páskaliljurnar eftir Heklu Dís í vinsælasta vasa landsins ;) 


Hönnunarmars 2015 - Smíðagripir


Smíðagripir eru stólar/barstólar hannaðir og smíðaðir af myndlistamanninum Daníeli Magnússyni. 
Daníel hóf að smíða þessa fallegu stóla fyrir um 23 árum síðan en stólarnir hafa notið töluverðra vinsælda síðustu árin. Stólana hans má meðal annars finna á 101 bar, Listasafni Reykjavíkur og á nýja vínbarnum í flugstöðinni okkar íslendinga... og svo má líka finna þá í eldhúsinu hjá mér ;) 
Smíðagripir eins og Daníel kýs að kalla stólana sína eru einkar þæginlegir en þeir eru allir á fjórum fótum og með snúanlegri sessu. Þeir eru ekki valtir og verða ekki grút skítugir neðst á fótum eins og svo margir barstólar verða. 

Daníel smíðaði fyrir mig fjóra stóla fyrir um ári síðan og ég get ekki sagt annað en þjónustan hafi alveg verið skemmtilega einstök. Við hjúin fengum að koma við á verkstæðinu hjá honum og hann útskýrði fyrir okkur hvernig allt saman virkar í stólnum (snúnings skífan og fleira) og við völdum hvernig fætur við vildum og hvaða viðartegund við vildum. Síðan fórum við í GÁ húsgögn og völdum okkur leður á sessuna og svo þremur vikum seinna voru tilbúnir fjórir handsmíðaðir fallegir stólar, merktir okkur hjúum undir og framleiðslunúmer á hverjum og einum. 
Mína stóla má skoða á síðustu tveimur myndunum hér fyrir neðan. 


Smíðagripir eru nú til sýnis á Hönnunarmars en þá má finna í Kirsuberjatrénu á Vesturgötunni








Hér fyrir neðan má svo sjá opnunartíma sýningarinnar í Kirsuberjatrénu um helgina.


Hugmyndasvampurinn lifnar við !

Jææææja... Nú vaknar Hugmyndasvampurinn til lífsins aftur eftir aaaansi langt hlé. Ég hef ekkert bloggað síðan í desember en vegna veikinda og almenns orkuleysis vegna fjölgunnar í fjölskyldunni þá hef ég varla litið í tölvu. Ég hef bara farið í vinnu og hreiðrað svo um mig og sofið síðustu mánuði... ég s.s. skreið í hýði yfir verstu mánuðina eins og dýrin. En nú hef ég loksins lifnað við eftir járngjöf í æð og góða hvíld. 
Ég var að velta fyrir mér að hætta alveg að blogga samt...en fékk þó ansi oft frá fólki á förnum vegi gott pepp til að halda áfram. Svo nú fékk ég loksins andann yfir mig.

 Og að sjálfsögðu byrjum við á Origami ;) 


Origami er aldagömul pappírsgerðalist sem á rætur sínar að rekja til Japan. Listina geta allir lært og með nútíma tækni má læra þetta allt saman heima í stofu. Origami er nokkurð vinslælt meðal hönnuða í dag má sjá falleg ljós eða aðra fallega skrautmuni gerða eftir aðferðum origami í hverju hönnunarblaði. Með origami listinni er hægt að skreyta í kringum sig á fallegan, fágaðan og ódýran hátt... ef maður gerir það sjálfur. 
Með misstórum pappír má stækka og minnka listaverkin sem gerð eru en oft er gaman að nota stórar arkir sem nýtast þá betur undir gottið. 
Ég hef algjörlega heillast af origami listinni í gegnum árin og er ennþá heillaðri eftir að hafa dundað við að gera þrjár skálar undir góðgætið sem má narta í þegar dimma tekur á kvöldin og kertaljósin verða daglegt brauð.


Goggurinn.

Þessa skál kunna flestir að útbúa. Skálin er einfaldlega pappírsgoggur sem snúið er á hvolf og myndar þannig fjögur hólf undir hvað sem hugurinn girnist.


Stjarnan. 

Uppskrift af stjörnunni má finna á youtube.com en stjörnuna má bæði nota sem skál eða sem kertastjaka. Ég mæli þó með að nota frekar batteríis-kerti í svona pappírs-stjaka svo að minni líkur 
séu á að kvikni í. 
Slóð: https://www.youtube.com/watch?v=aMnkM3JylpM (Það má líka bara skrifa “Origami       Candle holder” og þá kemur upp greinagott video).


Gul skál.

Þessa skál gerði ég í raun útfrá uppskrift af origami demanti. En skálin er í raun bara helmingurinn af demantinum. 
Nokkuð góðar leiðbeiningar má finna af demantinum/gulu skálinni á heimasíðunni designoform.com http://designoform.com/crafts/tutorial-paper-diamonds-diy/



Nýtt frá Hlín Reykdal.


Hlín Reykdal fata- og skartgripahönnuður kom með nýja línu af skarti nú fyrir þessi komandi jól sem er alveg einstaklega falleg.  Línan hefur skírskotun í skotthúfuna sem er hluti af íslenska þjóðbúningnum en skotthúfan hefur "skott" líkt og sjá má hér á hálsmeninu fyrir ofan. 
Línan er alveg afskaplega elegant og það er á hreinu að á jólagjafaóskalistanum mínum má finna eitt svona fallegt hálsmen með svörtu skotti :) 








Terta Duo - Ný íslensk hönnun


Terta Duo er nýtt íslenskt merki sem þessa dagana er að riðja sér til rúms í hönnunarheiminum hér á Íslandi. Á bakvið merkið standa þær María Marko og Þórunn Vilmarsdóttir en þær hafa nú þegar unnið að 5 vörum sem komnar eru á markað undir merkinu. 
Þær stöllur hafa verið að vinna mikið með fjármörkin í verkum sínum en fyrir þá sem ekki þekkja til þá eru það munstur sem klippt eru í eyrun á lömbum og löghelgar markeigandanum eignarréttinn á sauðfénu. Munstrin eru fyrir sumum mjög persónuleg og fyrir aðra eru þau einfaldlega safn af fallegum munstrum og hver og einn nýtur þeirra á sínum forsendum.
Fyrsta verk þeirra hjá Terta Duo var að hanna plaggat með munstrum fjármarkanna en síðar færðust munstrin yfir á púðaver og afmælisdagatöl þar sem unnið var með þau meira abstrakt. Núna fyrir jólin fóru þær stöllur einnig að framleiða Semanta sem eru demantar úr sementi og útikertastjaka sem er tilvalinn í öll veður og óveður, hannaður með íslenska veðráttu í huga.